Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Blaðsíða 7
í forsal: Síldar- stúlkur Blöndals og Mæögurnar meö Skjöldu eft- ir Scheving. Sjá nánar texta nr. 9 og 13. safiiið Hótel Holti í okkar örlitla þjóðfélagi er að vonum ekki mjög margt á svo- kallaðan heimsmælikvaröa. Þá er ekki átt við ótal margt, sem er jafn gott og annað um víða ver- öid, heldur eitthvað, sem svo er framúrskarandi, að tekið sé mið af því. Ég ætla að gerast svo djarfur að útnefna tvennt á sviði atvinnu og tækni: Aflabrögð og hæfni íslenzkra sjómanna og hinsvegar hitaveitu Reykjavíkur, sem ugglaust er á heimsmæli- kvarða. Tvívegis hafa íslenzkir rithöfundar orðið á heimsmæli- kvarða: Þeir er á sínum tíma rit- uðu íslendingasögur og er víst óhætt að fullyrða, að aldrei í sögu lands og þjóðar hefur neitt verið aðhafst hér, sem svo mjög bar af öðru á sama tíma. í okkar tíð nær svo Halldór Laxness því marki aö verða rithöfundur á heimsmæli- kvarða og þarf ekki að fjölyrða nánar um þaö. En úr því fer að verða fátt um fína drætti. Þó ætla ég aö taka þá áhættu að gizka á eitt til viöbót- ar. Það er hótel, sem er búið fá- gætum og framúrskarandi mynd- lístarverkum, að í raun er það listasafn; Hótel Holt. Ekki skal þaö fullyrt hér, aö þarna sé eitthvaö, sem aetti aö vera í heimsmeta- bók Guinness, en ég hef innt allra víö- förlustu íslendinga eftir þessu og þeir vita ekki um neina hliöstæöu neinstaöar. Hótel þykja yfirleitt ekki æskileg til aö hýsa söfn fágætra listaverka, enda hafa ófáir erlendir gestir á Hótel Holti látiö i Ijósi undrun og aödáun á því trausti sem þarna birtist gagnvart gestunum. Yfirleitt þykir ekki fært aö hafa annað en eftir- prentanir eöa gersamlega verölausar myndir til aö prýöa meö forsali, matsali og herbergi hótela, — nema þá verkin séu þess eðlis, aö ekki sé hægt aö nema þau burt. Jafnvel allra frægustu og fín- ustu hótel í stórborgum nágranna- landanna eru fátækleg aö þessu leyti og þaö sem gert er fyrir augað, er þá í innréttingum, innanhússarkitektúr eöa skreytingum. Þorvaldur Guömundsson er einstakur í röð listunnenda og safnara í þá veru, aö hann hefur ekki safn sitt fyrir sjálfan sig einan eða fjölskylduna, heldur á al- mannafæri, þar sem margir geta notiö þess. Hann hóf aö safna lista- verkum 1931 og hefur síöan oröið langsamlega stór- tækastur þeirra er teljast safnarar, og aðeins á Hótel Holti eru samtals 305 myndir. Áhugi hans hefur ekki nvaö sízt beinst að því aö kaupa verk íslenzku brautryöjendanna í myndlist og mörgum ágætisverkum þeirra hefur hann bjargaö heim til is- lands með því að kaupa þau á uppboö- um í Danmörku. Af einstökum stórvirkj- um ber þó hæst kaup Þorvalds á Lífs- hlaupi Kjarvals, eftir að Reykjavíkurborg hafnaöi tilboöi seljandans. Sem stendur er Lífshlaupið vandlega innpakkaö í plastumbúöir og geymt í nýju stórhýsi Þorvalds í Hafnarfirði, þar sem hann er í þann veginn að ganga frá 450 fermetra salarkynnum til myndlistarsýninga. Sal- urinn verður glæsilegur til sýninga og notast þar margfalt betur aö dagsbirtu en á Kjarvalsstööum til dæmis, og ætl- unin er aö leigja hann út til sýninga. Á neöri hæö hússins er kjötvinnsla Þor- valds og er kaffistofa starfsfólksins og fleiri staðir þar prýddir með málverkum eftir fjölmarga íslenzka myndlistarmenn. Ef til vill veröur Lífshlaupinu komiö fyrir i hluta salarkynnanna á efri hæö- inni. Og vera kann aö Þorvaldur festi þar einnig upp stórt og dýrmætt myndlistar- verk, sem hann keypti nýlega á uppboði í Kaupmannahöfn. Þetta er geysistórt veggteppi, unniö eftir fyrirmynd danska málarans Asger Jorn. Um leiö festi Þor- valdur kaup á verki eftir færeyska málar- ann Mykines, sem vel má telja í röö fremstu myndlistarmanna Norðurlanda fyrr og síöar. Annaö verk eftir Mykines á Þorvaldur einnig: Portret, sem er ein höfuðprýðin í forsalnum á Hótel Holti. Síöastliöinn vetur var til muna aukið við safnið á Hótel Holti, þegar vígöur var nýr bar, en þar er komið fyrir hvorki meira né minna en 65 mannamyndum eftir Jóhannes Kjarval. Enda þótt þessar myndir séu flestar í svörtu og hvítu, eru þær gæddar þeim töfrum, sem teikn- ingar Kjarvals búa ævinlega yfir; mikilli fjölbreytni og ríkulegri tilfinningu fyrir rytma. Myndir í forsal IFóstra Gunnlaugs Scheving blasir viö til hægri um leið og komið er innúr dyrum á Hótel Holti. Gagnstætt því sem oft átti sér stað hjá Scheving, er þessi mynd fremur þunnmáluð og kemur þá í Ijós, aö striginn er óvenju grófur, enda ekki venjulegur málverkastrigi. Þegar myndin var máluö austur á Seyöisfiröi í byrjun kreppunnar miklu, hefur hag- ur listamannsins aö öllum líkindum veriö þannig, aö hann hefur ekki átt þetta hefðbundna efni til aö vinna á. Þess í staö hefur hann útvegað sér sykurpoka og ennþá má lesa aftan á myndinni: Fine, English raffined Sug- ar. Scheving hefur aö öllum líkindum fariö sparlega með litina af ásettu ráði. Myndin er samt nokkuö stór,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.