Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Qupperneq 9
salnum (efst t.v.) var á
ladrottningu og kostaði
á Ásgrími, en ramminn,
guld<4, kostaði nærri
8Töfrar íslands, 3,60x2 m, olíu-
málverk eftir Jón Engilberts.
Þetta er stærsta myndin í for-
salnum á Hótel Holti og raunar
stærsta mynd í eigu Þorvalds að Lífs-
hlaupinu undanskildu. Jón Engilberts
hafði um langt skeið verið einn af
okkar beztu, fígúratífu málurum, þeg-
ar hann hreifst meö abstraktbylgjunni
seint á sjötta áratugnum. En Jón var
alltaf Ijóðrænn og vann aldrei undir
merki hinnar stífu myndbyggingar,
Ljósmyndir: Guðmundur Ingólfsson, ímynd.
Hestagjá-aftir Jóhannes Kjarval. Sjá texta nr. 19.
Matarhlé eftir Gunnlaug Scheving. Sjá texta nr. 17.
ir. 8.
rtret eftir Kjarval. Sjá texta nr.
Áning eftir Jón Stefánaaon. Sjá texta nr. 21.
sem um skeið hafði farið sigurför.
Þetta er mjög áhrifamikil og mögnuö
mynd, einskonar hugleiðing um lands-
lag, unnin með kröftugum pensilstrok-
um.
9Mæðgurnar með Skjöldu, ca.
2x3,5 m, olíumálverk eftir
Gunnlaug Scheving. Þetta er
kannski sú myndin í safninu á
Hótel Holti, sem hrífur mann dýpst og
gæti vel heitið Töfrar íslands ekki síð-
ur en stóra myndin hans Engilberts.
En þótt við kunnum svona vel að meta
hana, segir Þorvaldur að útlendingur
taki meira eftir smærri myndum af
siglingu Danakóngs til íslands, sem
hanga á öðrum vegg.
Þarna er semsé kýrin Skjalda, þessi
sígildi lífgjafi og kúrir hjá tveimur kon-
um úti í haga, en jökullinn á bak viö.
Umfram allt ríkir rósemin eins og
oftast hjá Scheving, og honum hefur
tekizt að gæða myndina sérstakri
dýpt. Eins og átti sér stað á tímabili,
málaöi Scheving þessa mynd mjög
þykkt, en meö ónógum bindingi. Hún
var að verða ónýt; öll sprungin og að
molna, þegar Þorvaldur keypti hana
fyrir 5 árum. Ástæðan var einnig sú,
að myndinni hafði verið rúllað saman
því eigandinn haföi ekki húsrými fyrir
hana — og vissi ekki heldur hvaða
verðmæti hann var með í höndunum.
En Frank Ponzi, sem sérfróður er í
viðgeröum á listaverkum, tók myndina
aö sér og var hún hjá honum í hálft
fjórða ár með góðum árangri.
WTyrkjarániö, lítil olíumynd
eftir Jóhannes Kjarval, af-
skaplega Ijúf mynd í lit og
teikningu, enda þótt hún
sýni mikið drama í aðsigi. „Ég tel víst
að þaö sé Guðríður, öðru nafni
Tyrkja-Gudda, sem er hægra megin í
myndinni," segir Þorvaldur, en hinum
megin í myndinni siglir sjóræningja-
skipið að landi. Myndin er mjög heii í
lit og einkennandi fyrir sumar myndir
Kjarvals meö skáldskaparívafi. Sjá
bls. 16.
Ekki hefur maður lengi verið
í forsalnum á Hótel Holti,
þegar mikilúðleg mynd af
frakkaklæddum manni tekur
til sín athyglina. Hver er sá hinn herða-
breiöi og vörpulegi maður, er þar fer?
Þórarinn Olgeirsson í Grimsby, er
svarið; portret eftir Jóhannes Kjarval
og sýnir vel færni hans á þeirri erfiðu
sérgrein, sem portret-málverk er.
Hvort myndin er lík Þórarni skal ekki
dæmt um hér, en hún er sterk og
áhrifamikil. Hingað til lancjs var mynd-
in komin frá ekkju Þórarins og búin aö
vera lengi í sölu, þegar, Þorvaldur
keypti hana.
gÆ Borgarfjöröur eystri, stórt
olíumálverk, eftir Jóhannes
| Kjarval og eitt af mörgum
lw* frá þessum æskustöövum
hans. Ekki virðist Kjarval hafa átt
nógu stóran striga, svo hann hefur
saumað ofan á ræmu, sem er rúmt fet
á hæð. Myndin er að mestu máluð í
gráum lit og brúnum og myndar allt
innihald hennar þétta samfellu eins og
var háttur Kjarvals. Myndina hefur
hann málaö árið 1930, en hún er búin
að vera í eigu Þorvalds í áratug.
Saltfiskstúlkur, olíumálverk
■ JP eftir Gunnlaug Blöndal.
[ Þetta er eitt Ijúfasta verkiö í
■ forsalnum á Hótel Holti —
alveg dæmigerð Biöndalsmynd í þess-
um heitu litum. Mikið hvað hann hafði