Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Síða 12
Bílahönnuðir,
gagnrýnendur
og lesendur
víölesins tíma-
rits spuröir
álits um feg-
urstu bíla í
heimi
Fegurðarkóngur meðal bíla: Jaguar E-type, árgerð 1961—’67.
10
FEGURSTU
BÍLARNIR
FRÁ
UPPHAFI
Niðurstöður úr banda-
rískri skoðanakönnun
í öðru sæti: Cord 810, árg. 1935—’37.
Bandaríska tímaritið Car and
Driver fjallar nýlega um þá erfiðu
spurningu, hver sé fegursti bíll í
heimi og hverjir 10 þeir fegurstu
frá upphafi bílaiðnaðar. Til að fá
sem gleggsta mynd af þessu, hefur
blaðið snúið sér til fjölda hönnuða,
gagnrýnenda sem að staðaldri
prófa og skrifa um bíla, svo og
lesenda blaðsins. Allt þetta fólk
var beðið um að útnefna „tíu á
toppnum" og þá í þeirri röð, að sá
bezti yrði talinn fyrstur og síðan
koll af kolli.
Enda þótt sigurvegarinn hafi
orðið Evrópubíll, setur það mark
sitt á úrslitin, að hér eru það
Bandaríkjamenn fyrst og fremst,
sem greiða atkvæði. Og þeim þykir
sinn fugl þó nokkuð fagur. Eins og
vænta má, fá amerískir bílar þó
bezta útkomu hjá hinum almenna
lesanda, en ekki eins hjá hönnuð-
um og gagnrýnendum. I vali hönn-
uðanna eru 6 Evrópubílar meðal
efstu 10. Af 20 efstu í vali gagn-
rýnendanna eru 14 Evrópubílar,
en 6 eru amerískir. Japanskir
komast ekki á blað. Af þeim 10,
sem lesendur völdu, er helmingur-
inn Evrópubílar, fjórir eru amer-
ískir, og þar kemst einn japanskur
á blað: Mazda RX-7.
Það skal tekið fram, að at-
kvæðagreiðslan snerist einungis
um fjöldaframleidda bíla, en ekki
þá, sem hafa verið smíðaðir í fá-
einum eintökum, né heldur um
tilraunabíla.
Hönnuðir töldu, að fegursti bíll
sögunnar væri Cord 810/812, sem
framleiddur var 1935—37 í Banda-
ríkjunum. E-týpan af Jagúar varð
nr. 2 í vali þeirra og númer 3 varð
ítalski sportbíllinn Ferrari 308
GTB. Gera má ráð fyrir að sport-
mennirnir í hópi lesenda hafi
framar öðrum greitt atkvæði, því
hjá þeim var nr. 1 þýzki sportbíll-
inn Porsche 911/930. í öðru sæti
var þeirra eigin Pontiac Firebird
frá 1970—81 og Chevrolet Corvette,
12
I þriðja sæti: Ferrari 308 GTSi.