Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1983, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1983, Side 11
Garðar Baldvinsson Þögnin hugljúfur blær svalandi gola kitlandi ánægja örvandi hæglát fullnægja Þögnin umljúkandi slæða þokukennd hugvekja vermandi ábreiða þægilegt mistur unaðslegt faðmlag Þögnin ómþýð hljómkviða dropi úr krana mjöll af himni hægur andardráttur straumlétt æðaslög Þögnin lífið ég vaki. Höfundurinn er 28 ára Reykvíkingur, sem um þessar mundir starfar við þýðingar. Ljóð hafa ekki birzt eftir hann áður. Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir Þið hin Með tungu og tönnum fjas ykkar pressið nú sem áður segi égfátt langt í burtu er ég_ laus við stressið Sé ykkur fyrir mér samtala hátt í glaumi þessum finnst ekkert næði leið ykkar virðist mér einföld og mjó Hrokafull titrandi af hræðslu þið bæði ódrukkin aldrei finnið ró. Höfundurinn er Reykvíkingur að uppruna, 26 ára, og uppalin bæði syðra og norður í Húnavatnssýslu. Hún er sjúkraliði og vann við það nokkur ár í Sví- þjóð, en núna er hún nemandi í Söngskólanum og vinnur á lögfræðiskrifstofu. Ljóð hafa ekki birzt eftir hana áður. Ofbeldismyndir tjáningarfrelsi Tjáningarfrelsið er ein dýrmætasta eign okkar, sem búum við lýðræðislegt þjóðskipulag og öllum ber að standa dyggilega vörð um það. Fregnir af því hvernig þessi sjálfsögðu mannréttindi eru fótum troðin í einræðisríkjum heims eru okkur víti til varnaðar. Tjáningarfrelsið á hinu listræna sviði er ef til vill einna mikilvægast, vegna þess að þar býr sá vaxtarbroddur þjóð- félagsins, sem mannkyn getur helst bundið vonir sínar við. Sé hann heftur eigum við á hættu að ótalin tækifæri glatist til þess að okkur miði fram á veg. Kvikmyndir eru áhrifamesti fjölmiðill nútímans sem höfðar til nær allra skiln- ingarvita mannsins og kennda hans. Við eigum líka því láni að fagna að í þá listgrein hafa valist margir hinir ágæt- ustu listamenn, sem kunna að nota þá tækni sem kvikmyndin býður upp á í þjónustu þessarrar listgreinar. Auðvitað hafa óvandaðir aðilar líka notað þennan fjölmiðil í því augnamiði einu að græða fé. Þeirra framleiðsla hef- ur gengið sinn gang á markaðinum og ekki skilið eftir nein spor. En á síðustu árum hafa hins vegar bættst í þennan flokk svo grófar ofbeldismyndir að okkur ber að staldra við og athuga málið. Þróunin í gerð þessarar sérstöku teg- undar kvikmynda hefur verið ör, spann- ar varla meira en síðasta áratug. Upp- hafið hefur sennilega verið á þessa leið: Kvikmynd þar sem sýnd eru hrottaleg ofbeldisatriði kemst í hámæli, vekur at- hygli og afhenni verður góður gróði. Síð- an er gengið á lagið, en framleiðslan lýt- ur ákveðnu lögmáli. Ofbeldið verður að vera grófara með hverri mynd, viðbrögð áhorfenda gagnvart ofbeldinu á tjaldinu slævast við endurtekninguna, meira þarf til næst og svo koll af kolli. Þar til svo er komið eins og nú er, að myndin býður ekki upp á annað en nákvæma útfærslu á því hvernig menn geta misþyrmt, Iim- lest, svívirt, seigdrepið og pyntað hver ■annan. Þetta er sú tegund kvikmynda sem verið er að fjalla um í tveimur frum- vörpum sem liggja fyrir Alþingi og fjalla um heftingu á dreifingu eða bann á hér á landi. Aðrar ekki. Og í langflestum til- vikum er í lófa lagið að greina þær frá öðrum. En við erum ekki ein um það hér á landi að sjá okkur knúin til að taka á þessu máli. Á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var í maí síðastl. á vegum breska kvikmyndaeftirlitsins var ofbeldi í kvikmyndum aðal umræðu- og áhyggju- efnið. Þar gafst þátttakendum sem komnir voru hvaðanæva að úr heiminum m.a. kostur á að sjá atriði úr slíkum kvikmyndum sem eru að koma á mark- aðinn. Greinilegt er að þróunin heldur áfram í sömu átt, meira og magnaðra ofbeldi en fyrr hefur sést. Ef nokkur breyting var merkjanleg frá núverandi framleiðslu önnur, þá var hún sú að ofbeldið beinist í nýjustu myndunum einkum að konum — og börnum. Hvaða tilgangi skyldi slíkum kvikmyndum vera ætlað að þjóna ? í umræðum manna á meðal og í fjöl- miðlum sem orðið hafa vegna frumvarp- anna fyrrnefndu, hefur nokkuð borið á því að meðal þeirra sem eru hvað ákaf- astir málsvarar tjáningarfrelsisins, hafa alls ekki kynnt sér þessa ákveðnu tegund kvikmynda segjast ekki hafa áhuga eða aðstæður til að sjá slíkt eða e.t.v.: slíkt er fyrir neðan þeirra virðingu! Öll erum við áreiðanlega sammála um að frelsið sé okkur hin dýrmætasta eign en frelsinu fylgir óhjákvæmilega ábyrgð. Sterk rök þarf til að réttlæta í nafni tjáningafrelsis dreifingu slíkra ofbeld- ismynda sem hér um ræðir. Þau hafa ekki heyrst enn. En við verðum að vona að þeir aðilar sem ákvörðun eiga að taka um málið kynni sér það gaumgæfilega svo hin rétta niðurstaða fáist. Hulda Valtýsdóttir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.