Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1983, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1983, Blaðsíða 4
FRU HEIBERG Taumlaus aðdáun — en öfundin var heldur ekki langt undan — Síðari hluti. Anna María Þórisdóttir tók saman Johanne Luise Heiberg — ung og upprennandi leikkona og klædd sam- kvæmt tízku tíraans. Nafnlausar ástar- játningar bárust heim til hennar En hveitibrauðsdögunum lauk og Heibergs-hjónin urðu að flytjast inn í Kaupmannahöfn í byrjun september, þar sem þá hófust æfingar í Konunglega leikhúsinu. Þau settust að í Brogaden 3 í Christianshavn, andspænis húsinu þar sem Pátges-systurnar dönsuðu uppi á billjarðborðinu forðum. Unga frúin hefði auðvitað viljað búa ein með manni sínum, en gamla frú Gyllembourg gat ekki hugsað sér að yfirgefa þau, svo að hún og fóstursonur henn- ar, Georg Buntzen, bjuggu hjá þeim — gamla frúin reyndar til æviloka. Fyrsta kvöldið afhenti hún frú Heiberg heimilisreikn- ingabókina með þessum orðum: „Hér afhendi ég þér yfirráðin og stíg niður úr hásæti mínu.“ Vinsældir frú Heiberg jukust ár frá ári. Hún hlaut lof og klapp á sviðinu, ljóðabréf, blóm, gjafir og nafnlausar ástarjátn- ingar bárust heim til hennar og heimboðum rigndi yfir þau hjón, en Heiberg hafnaði þeim flest- um, ungu frúnni til sárrar óánægju í fyrstu. En margir lærðir menn, svo og skáld og heimspekingar sóttu þau hjón heim og frú Heiberg fræddist mjög af umræðum þeirra við mann hennar. Heiberg undrað- ist stundum gáfulegar athuga- semdir hennar og spurði: „Hvað- an veistu þetta? Þú kannt eins og af sjálfu sér þaö, sem við þurfum að lesa okkur vandlega til um.“ Skáldið Herz var mikill vinur þeirra hjóna og rigningarsum- arið 1832 dvöldust þau ásamt honum og frú Gyllembourg á Hirscholm, þar sem fyrrum lifðu ástarævintýri sitt Matt- hildur drottning (móðir Friðriks 6.) og Struensee. Uppáhalds- staður ungu frúarinnar var í toppi mórberjatrés, þar sem hún sat og lærði hlutverk fyrir næsta vetur. Þremenningarnir, Heiberg-hjónin og Herz, léku billjarð og áttu bágt með að hætta, þegar frú Gyllembourg vildi fá þau í te. Á kvöldin sungu þau Bellmans-söngva sem þá voru lítt þekktir í Danmörku og í endurminningum sínum kallar frú Heiberg þetta sumar Bell- mans-sumarið. Frú Heiberg átti eftir að leika í mörgum leikritum, sem Hertz samdi fyrir Konunglega leikhús- ið, svo og í leikritum Oehl- enschlágers, en þeir Heiberg voru engir vinir á timabili vegna frægra ritdeilna í sambandi við gagnrýni Heibergs á skáldskap Oehlenschlágers. Skáldið dáði frú Heiberg þó alla tíð og var gamall vinur frú Gyllembourg og heimsótti hana oft, svo og tónskáldið Weyse. Dramatískur höfund- ur gat H.C. Andersen aldrei orðið Skáld og rithöfundar kepptust um að skrifa leikrit með hlut- verkum fyrir frú Heiberg. Einn þeirra var H.C. Andersen. Frú Heiberg hafði leikið í leikriti hans „Múlattinn“, sem gert hafði mikla lukku hjá áhorfend- um. Sjálf var frúin lítið hrifin af stykkinu og henti gaman að því ásamt meðleikurum að tjalda- baki. Uppveðraður af viðtökum áhorfenda réðst Andersen í að skrifa annað leikrit og ennþá lengra, „Márastúlkuna“ og auð- vitað skyldi frú Heiberg leika aðalhlutverkið, mikið að vöxtum og langt. Hún færðist eindregið undan, bar m.a. við slæmsku í hálsi, sem ágerðist. Hún reyndi. að skýra undanfærslu sína ákveðið fyrir Andersen og færa rök fyrir máli sínu. En hann hagaði sér eins og óþægt og erf- itt barn og kallaði upp yfir sig: „Þetta er ljótt af yður, þetta er ljótt af yður.“ Frú Heiberg var hrifin af ævintýrum Andersens og ein hinna fyrstu, sem hrós- uðu honum fyrir þau. En „dramatískur rithöfundur gat Andersen aldrei orðið; til þess var eðli hans of kvenlegt," segir hún. Andersen sármóðgaðist yfir þessum viðtökum, en tók þó seinna upp samband við frú Hei- berg og færði henni t.d. nýtt og snoturlega innbundið bindi af ævintýrum sínum árið 1858. Þá sagi hann henni frá síðustu ferð sinni til Englands, þar sem hann sat í besta yfirlæti í boði Charl- es Dickens. En dag einn barst honum að heiman neikvæð gagnrýni úr blöðunum. Hann rauk frá borðum og út í garð og kastaði sér hágrátandi í grasið. „Ég þoli ekki gagnrýni," sagði hann. Frú Heiberg segir frá heim- komu Thorvaldsens og móttök- um íbúanna, en bætir því jafn- framt við að í rauninni hafi al- menningur lítið sem ekkert vit- að um hann og verk hans, sem t.d. kom fram í því að mann- fjöldinn á Kóngsins Nýjatorgi hrópaði „Tordenskjold", þegar hann vildi fá listamanninn fram á svalirnar á Charlottenborg. Thorvaldsen lézt í leikhúsinu Thorvaldsen og Oehlenschlág- er voru ákafir leikhúsunnendur og komu næstum á hverja ein- ustu sýningu og söknuðu leikar- arnir þeirra mjög, annars hvít- hærðs og hins svarthærðs, þegar þeir féllu frá og sátu ekki lengur á sínum stað í áhorfendasætun- um. Thorvaldsen varð bráð- kvaddur í Konunglega leikhús- inu 1844, en Oehlenschláger lést 1850. Bestu og tryggustu vinir Hei- bergs-hjónanna voru Collin, gamli leikhússtjórinn, sem frú Heiberg hélt tryggð við og heim- sótti löngu eftir að hann var gleymdur af umheiminum og bjó einn með þjóni sínum og hundum, og Martensen biskup og frú, en þeir Heiberg og bisk- upinn áttu langar viðræður um heimspeki, trú og siðfræði. Eftir að Heiberg-þrenningin flutti úr Brogaden bjuggu þau um skeið í Bredgade, en 12. október 1844 fluttu þau í Sökvæst-húsið við Christi- anshavn og bjuggu þar til ævi- loka Heibergs. Ibúðinni fylgdi stór garður, sem frú Heiberg annaðist af mikilli alúð alla tíð og varð henni til mikillar ánægju. Eftir 5—6 ár segist hún hafa farið að sitja í skugga fyrstu trjánna, sem hún lét gróðursetja og garðhús hennar umvafið síblómstrandi berg- fléttu vakti mikla athygli. Stutt var að ganga frá heimilinu út á Amager. Eftir tíu mínútna gang var frú Heiberg komin langt út í sveit, þar sem bændur unnu við bú sín og hún kynntist fólki á næstum öllum bæjunum. Oft sat hún á gömlum rústum úti á sléttunni og sá þá stundum héra skjótast hjá. Hún horfði á segl- bátana undan Kalvebodstrand, sem virtust sigla eftir grænni sléttunni, en sjórinn var í hvarfi. Hún sá veðurbarða hafn- sögumennina í hvítum, þykkum ullarpeysum með barðastóra hatta og litríkur klæðnaður fólksins í hollenskum stíl hreif hana. Hún frétti af böllum á Amagerkránni á sunnudögum og Lisbet, Jochum og óham- ingjusami elskhuginn Rasmus birtust í hugarheimi hennar. Leikkonan var oft einmana á kvöldin En oft var frú Heiberg ein- mana í Sökvæst-húsinu. Eigin- maðurinn hafði nú fengið aldeil- is ágætt húsnæði til að stunda stjörnuathuganir, herbergi á efri hæð hússins, þar sem hann eyddi öllum stundum sínum við kíkja sína og reiknitöflur. Gamla frúin var heilsuveil og fór snemma að sofa, svo að frú Heiberg fann til mikillar ein- semdar, þegar hún kom heim úr leikhúsinu á kvöldin, oft í upp- námi eftir erfiðar sýningar og í þörf fyrir að úthella hjarta sínu fyrir einhverjum. Að vísu kom eiginmaðurinn niður til hennar i te, en flýtti sér svo aftur á fund „Uraníu". Frú Heiberg fannst nú bestu stundir þeirra liðnar, þegar þau sátu saman á síð- kvöldum í sófanum og töluðu undir fjögur augu. Oft sveipaði hún hvíta sjalinu sínu þétt að sér og fór út í garðinn og reikaði þar um og horfði á stjörnurnar, sem eiginmaðurinn athugaði á vísindalegan hátt og fylgdist með ljósinu í gluggum hans, þangað til hann slökkti. „Ólýs- anleg viðkvæmni greip mig stundum á þessum næturgöng- um, hljóðlaust runnu tár mín í nafnlausri þrá, þrá sem virðist ætla að fylgja mér frá vöggu til grafar," segir hún. En þetta varð til þess að frúin fór að rifja upp píanóleik sinn og svo kom að þessar einsemdar næturstundir urðu miklar ham- ingjustundir. Hún fór að semja lítil lög og seinna texta við þau og upp úr þessum stundum spruttu leikrit hennar „Apa- kötturinn" og „Sunnudagur á Amager", sem gengu árum sam- an í Konunglega leikhúsinu og hafa verið leikin hér á íslandi næstum fram á þennan dag. Lengi vel vissi enginn hver höf-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.