Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1983, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1983, Qupperneq 14
Margeir Pétursson Marshall árásin hefur staðist tímans tönn í HUGUM margra skákáhuga- manna er Marshall-árásin í spænska leiknum sveipuð dýrðarljóma og ekkl að ástæðulausu, því ef svartur nær að beita henni losnar hann viö að verjast í þung- lamalegu Chigorin-afbrigð- inu, en fær í staðinn skemmtileg sóknarfæri með því að fórna peði. Það var hugmyndaríkur bandarískur stórmeistari, Frank Marshall, sem fyrstur beitti afbrigði þessu á öörum áratug aldar- innar, og dregur það nafn sitt af honum. Það hefur æ síðan verið afar vinsælt og mikið teflt, en því Stjarna Þórðar var í austri an fiski- og flutningaskipaflota á Vestfjörðum á 13du öld. Þórði og hans mönnum voru alls stað- ar tiltæk skip á tíma sögunnar. Það er ekki vitað, hvenær það verður málvenja á Vestfjörðum að kalla sexæringinn skip og þaðan af stærri báta, en fjagra manna för og minni fleytur báta. Þessi málvenja getur hafa myndazt snemma með sjómönn- um, þótt söguriturum á 13du öld væri hún ekki töm og það er ekkert hægt að átta sig í Sögun- um eða Sturlungu á stærð þeirra fleyta, sem við sögu koma á orðafarinu skip eða bátur. Það er greinilega allt á reiki um þau skil hjá söguriturunum. Þeir kalla flestar fiskifleytur skip. Það gætu því orðalagsins vegna hafa verið fjagra eða fimm manna för í þessum fjölskipa flota Þórðar en það er ekki lík- legt þó, að hann hafi lagt uppí langferð og siglingar fyrir Látrabjarg á minni bátum en sexæringum og mest hafa þetta verið útróðrabátar Vestfirðinga, sexæringar, áttæringar, teinær- ingar en tólfæringar eflaust fá- ir. Það hefur ekki verið neinn smáræðis fiskifloti á Vestfjörð- 14 meira sem það hefur verið teflt og rannsakað síðustu 65 árin því lengra virðist vera í nokkra sjá- anlega niðurstöðu um það hvort peðsfórnin eigi rétt á sér eða ekki. Árás Marshalls hefur að þessu leyti algjöra sérstöðu á meðal bragða þeirra eða gam- bíta sem réðu ríkjum á skák- mótum hér áður fyrr, en hafa nú að mestu fallið í gleymsku, að stöku þrákálfi undanskildum. Marshall virðist hins vegar hafa smíðað vopn sitt úr ryðfríu stáli, því enn skýtur árásin mörgum skelk í bringu og jafnvel hefur verið fundið upp svonefnt „Anti- -Marshall“-afbrigði spænska leiksins, en það miðar fyrst og fremst að því að hindra að svartur geti nýtt sér hugmynd Marshalls. Áhorfendur fá yfirleitt eitt- hvað fyrir sinn snúð þegar af- brigðið verður upp á teningnum, því það leiðir nærri undantekn- ingarlaust til mjög snarprar baráttu. Skákin hér á eftir er heldur ekki af lakara taginu. Þar eigast við tveir af öflugustu skákmönnum Sovétmanna. Lev Psakhis, ungur og frumlegur stórmeistari reynir að hrekja árásina með nýstárlegum að- ferðum, en að baki henni stend- ur gamall kunningi okkar, sókn- arjaxlinn og byrjanasérfræðing- urinn Efim Geller, sem er nú farinn að nálgast sextugt og bú- inn að fást við Marshall-árásina í áratugi. Skákin er tefld á minningarmótinu um Chigorin í Sochi við Svartahaf fyrir ára- mótin. Hvítt: Psakhis Svart: Geller Spænski leikurinn 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. (M) — Be7, 6. Hel — b5, 7. Bb3 — 0-0, 8. c3 Psakhis er óhræddur, en margir kjósa að leika hér 8. d4, af einskærum ótta við árás Marshalls. 7. —d5 Á minningarmótinu um Michael Chigorin, sem oft er nefndur faðir rússneska skák- skólans hefði e.t.v. verið meira viðeigandi að tefla hið rólega Chigorin-afbrigði og leika 8. — d6, 9. h3 — Ra5. (Þannig teflir Bronstein alltaf gamlar kóngspeðsbyrjanir á minn- ingarmótinu um Keres, en á þeim hafði eistlenski stórmeist- arinn mikið uppáhald). En það verður hver að þjóna eigin lund og sviptingarnar í framhaldinu eiga vel við hvassan skákstíl Gellers. 9. exd5 — Rxd5, 10. Rxe5 — Rxe5, 11. Hxe5 — c6, 12. d4 — Bd6 Svartur hefur misst peð, en vinnur nú tíma með því að stugga við hvíta hróknum. 13. He2!? Miklu algengara er 13. Hel — Dh4, 14. g3 - Dh3, 15. Be3 - Bg4, 16. Dd3 - Hae8,17. Rd2 - He6, og framhaldið í skák þeirra Tals og Gellers, sovézka meist- aramótinu 1975 varð 18. a4 — f5!, 19. Dfl - Dh5, 20. f4 - bxa4,21. Hxa4 og nú hefði svart- ur átt að leika 21. — Hb8! 13. — Dh4,14. g3 — Dh5,15. Rd2 — Bh3 Endurbót Gellers á skák þeirra Balashovs og Tsesh- kovskys á sovézka meistaramót- inu 1980/81, sem tefldist: 15. — Bg4, 16. f3 - Bxf3, 17. Rxf3 - Dxf3, 18. Dfl og hvítur getur einnig leikið 18. Hf2 og hefur í báðum tilfellum biskupaparið. 16. Hel? Mistök sem gera svörtum kleift að hrifsa til sín frum- kvæðið. Rétt var 16. He4! því eftir 16. — Dxdl?, 17. Bxdl — Hae8, 18. Hxe8 — Hxe8,19. Rf3 — Bg4, 20. Bd2 og losnar hvítur úr prísundinni. Svartur yrði því að Ieika 16. — Dg6, og þá kemur 17. Hel vel til greina. 16. — Hae8!, 17. f3 Svartur hótaði 17. — Rf4! 17. — f5!, 18. c4 — Re3! Geller nýtir sér það að hvítur hefur ekki komið liði sínu á drottningarvæng í leiknum og fórnar tveimur mönnum fyrir hrók til að auka sóknarþungann. 19. c5+ — Kh8,20. Hxe3 — Hxe3, 21. cxd6 - f4!, 22. Re4 — Hxf3, 23. Bxf4! — H8xf4, 24. d7! (Sjá stöðumynd í næsta dálki.) Psakhis er útsjónarsamur í vörninni, þó ekki dugi það til að bæta fyrir yfirsjónina í 16. leik. Hér gekk hvorki 24. gxf4? — Dg4+, 25. Rg3 - Hxg3, né 24. um um þessar mundir, því að varla hefur Þórður náð saman öllum útróðraflota Vestfirðinga og eftir var allur heimræðisflot- inn og hann var alla tíma hlut- fallslega stór á Vestfjörðum. Vestfirðingar stunduðu sjóinn almennast allra landsmanna vegna landleysis í mörgum sveitum, undirlendi lítið við ströndina en góð fiskimið nær alls staðar skammt undan landi, því að fiskur dreifist nokkuð jafnt um grunnin fyrir Vest- fjörðum og gekk árstíðabundið inn á hvern fjörð og uppá hverja vík. Heimræði var því frá hverj- um bæ við ströndina á fjagra manna förum og minni fleytum, því að víðast var smábýlt og heimamenn réðu ekki við stærri báta í heimræði. Þeir hentuðu heldur ekki til að skjótast framá miðin undan bænum oft úr öðr- um verkum, ef vel viðraði eða menn héldu fisk genginn. Vestfirðingar þurftu einnig að eiga sér sérstök flutningaskip sökum brattra fjalla og erfiðra hestum undir klyfjum. Fiskibát- ar hentuðu ekki til allra flutn- inga, til dæmis ekki rekaviðar- flutninga eða heyflutninga. Undir rekaviðinn voru smíðaðir svonefndir byrðingar en ferjur undir hey og skreið, stórgripa- og fjárflutninga, og enn er að nefna skútur, sem menn telja að hafi verið almenn flutningaskip. Flutningafloti Vestfirðinga hef- ur þó eflaust ekki verið fjöl- skipa, því að stórir fiskibátar hafa dugað þeim langt og verið liðlegastir að grípa til. Skútur og ferjur geta hafa verið í þessum þrjátíu og þriggja skipa flota Þórðar en varla hafa þau skip verið mörg. Allt svipað og hér hefur verið sagt af Vestfjörðum mætti segja frá Breiðafirði en þótt undarlegt sé, þá kemur breiðfirzki flotinn mjög lítið við sögu Þórðar. Það gæti verið orsökin, að fylgi hans við Breiðafjörðinn er aðallega og reyndar einvörðungu uppi í Dölunum en ekki á Snæfellsnes- inu, og Breiðfirðingar voru allt- af tvístígandi í fylginu við Þórð. Það var ekki jafnt að eiga Hrafn Oddsson að á Vestfjörð- um og Sturlu Þórðarson í Döl- unum. Þá voru og Dalamenn meira undir högginu hjá Kol- beini. Hann var jafnan fljótur að bregða við að berja uppá þeim, ef honum þótti þeir mót- þægja sér. Snæfellingar með all- an sinn fiskiflota koma og lítið sem ekki við sögu Þórðar. Þórður ráðgast við sína „beztu og vitrustu menn“ Það spurðist í Selvoga, þar sem Þórður lá með liði sínu, að Broddi og Hafur Bjarnarsynir, væru komnir á átta skipum und- ir Æðey. Þórður kallaði til sína „beztu og vitrustu" menn í liði sínu til að ráðgast við þá. Einn foringja Sturlungaaldar notar Þórður þessa „herráðsaðferð" að staðaldri. Hann leggur ekki til orustu án þess að ráðgast fyrst við sína „beztu og vitrustu" menn. Furðulega oft um svo skap- mikinn og ráðríkan mann fer að hann að ráðum foringja sinna, þótt honum sýnist annað sjálf- um. Þórður veit að hann á undir högg að sækja á flestum sviðum og hann má ekki gera neitt, sem hrekur hans öflugustu menn frá honum. Þá hefur Þórður áttað sig á því strax eftir fundinn með bændum í Hjarðarholti í upp- hafi baráttu sinnar, að honum dugði ekki, hafði styrk til þess að fara að bændum með ofsa í liðsbóninni. Þá var honum það einnig nauðsynlegt, svo liðfár sem hann var, að fara til orustu með einhuga lið, að minnsta kosti alla sína helztu menn, sem leiða áttu bardagann. Hann hefur og vitað, að ef Svarthöfða, Hrafni Oddssyni eða Teiti Styrmissyni þætti eitthvað ófært, þá myndu margir aðrir reynast honum lausir í fylkingu, þegar í orustu kæmi. Rd2 — De8!, 25. Rxf3 — De3+, 26. Khl - Df2, 27. Rh4 - Hxh4. 24. — Bxd7, 25. Rd3 — Bh3, 26. Rxf3 — Hxf3, 27. Dd2 — Hf8 Hvítum hefur tekist að kom- ast með jafnt lið út úr ógöngun- um, en á enn í vök að verjast vegna ótryggrar kóngsstöðu sinnar. 28. De3 — Df5, 29. De2 — c5!, 30. Bc2 — Dd5 ónákvæmni sem gefur Psakh- is kost á að lengja taflið. Rétt var 30. — Df6!, því 31. dxc5? gengur ekki vegna 31. — Dd4, 32. Khl - Bg4!. 31. De4! — Dxd4+, 32. Dxd4 — cxd4, 33. Be4 — g6, 34. Hdl — Kg7, 35. Bg2 — Bxg2, 36. Kxg2 - Hc8, 37. Hd2 — Kf6, 38. Hxd4 — Hc2+, 39. Kh3 — Ke5!, 40. Hb4 — Kd5, 41. a3 — Kc5, 42. Hh4 — Hxb2, 43. Hxh7 — Hb3, 44. Hc7+ — Kb6, 45. Hg7 — Hxa3, 46. Hxg6+ — Kc5 Enn er liðið orðið jafnt, en svartur er langt á undan í kapphlaupinu með peðin. 47. Kg2 — b4, 48. h4 — b3, 49. Hg8 — Ha5, 50. Hc8+ — Kd4 og hvítur gafst upp. Þórður vildi leggja norður til móts við þá Brodda og Hafur, ^n Teiti og Svarthöfða var meira um að leita suður til Breiða- fjarðar. Þeir vissu Kolbein vera að herja um Dalina og hafa lík- lega hugsað sér að leggja til at- lögu við hann. Talið meiri slæg í því, en eltast norður við þá Brodda og Hafur á einum átta skipum. Norðurfrá sögðu þeir ekki vera: „nema búkarla og fiskimenn og þá er ekki var mannsmót að. Sögðu það og, sem satt var, að suður frá væri allir fylgdarmenn Þórðar, þeir er fræknastir voru.“ Það kom ekki fram í þessum leiðangri hverjir þeir fræknu menn voru. Á flota Þórðar hafa verið sem fyrr er getið á fjórða hundrað manna og nær allt Vestfirð- ingar, og ekki aðrir en vígfærir menn. Það hefur því ekki verið eftir neinum mannafla að slægj- ast norður við Djúp og ekki heldur tekið því að verja þær sveitir. Þar var enga að drepa sem „mannsmót var að“ fyrir þá Brodda og Hafur, enda drápu þeir enga. Ef Þórður kæmist með allt þetta lið suður til Breiðafjarðar, þar sem hann hélt sig eiga liðs von, þá gat hann reynzt hafa mannafla til að ráðast á Kolbein sjálfan. Það ráð var tekið að halda suður með allan flotann. Áframhald síðar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.