Lesbók Morgunblaðsins - 02.07.1983, Side 3
Betra að eiga nóg í buddunni, ef maður ætlar að Ifta inn hjá Yves Saint
Laurent og kaupa samkvæmiskjól svo sem þennan hér.
ur öllu fremur spretthlaup milli
búðarglugga.
Allra stærstu nöfnin í tízku-
heiminum hafa ef til vill ekki
mest aðdráttaraflið, þegar mað-
ur skoðar sig um á Rue Fau-
bourg Saint-Honoré, því tízku-
fatnað þeirra er nú á dögum að
finna í fremstu tízkuverzlunum
út um allan heim. Það eru hinir
alveg sérstöku, sem vekja mestu
forvitnina eins og til dæmis
„Rety“. Hef aldrei heyrt það
nafn! Þó er þetta tízkuhús stór-
veldi í borgum eins og Jidda,
Kuwait eða Abu Dhabi austur í
Arabalöndum.
Gullvægir viðskipta-
vinir frá Arabíu
Satt bezt að segja er ekkert
svo sérstakt að sjá á neðri hæð-
inni hjá „Rety“, sem er til húsa í
tveimur heldur litlum og forn-
fálegum húsum, sem standa hlið
við hlið vinstra megin götunnar,
og maður fer jafnvel að undrast,
hvað það er, sem austurlenzkir
viðskiptavinir hússins sjái eig-
inlega svo spennandi við þennan
stað. En það er uppi á annarri
hæð, sem undrið skeður, og
hverjum og einum má verða
ljóst, hvað það er, sem dregur og
lokkar hinar fagureygðu austur-
landadömur eins og segull stál-
ið: Þar getur að líta ævintýra-
lega skrautsýningu í tylli og öll-
um regnbogans litum. ,,.Rety“
hefur sérhæft sig í kvöldklæðn-
aði fyrir stórsamkvæmi í Aust-
urlöndum. Fyrir 10.000—75.000
franka fást þarna skrjáfandi,
gull- eða silfurofnir kvöldkjólar
og tilheyrandi aukahlutir í gíf-
urlegu úrvali. Framkvæmda-
stjóri hússins, virðuleg eldri
dama, skýrir okkur frá því, að
eitt sinn hafi ein af þessum
austurlenzku meyjum pantað
1000 kjóla handa sér og gestum
sínum fyrir brúðkaupsveizlu
sína. En með slíkri pöntun var
jafnvel „Rety“ ofboðið, svo að
hin væntanlega brúður varð að
láta sér nægja að kaupa aðeins
75 kvöldkjóla í það skiptið.
Á viðskiptakortum „Retys" er
ekki einungis gefið upp heimil-
isfang tízkuhússins í París,
heldur líka í London, og þá í Old
Bond Street að sjálfsögðu. Að
fyrirtækið skuli hafa heimilis-
föng á þessum tveimur stöðum,
gefur til kynna nýja stefnu
hinna auðugu austurlenzku
viðskiptavina: London er ekki
lengur í þeirra augum einasta
innkaupaparadísin; þeir hafa
komizt að raun um, að það er
líka einkar auðvelt að eyða pen-
ingunum sínum í frönsku höfuð-
borginni. Og þar sem frankinn
er á sífelldri niðurleið hjá hinni
sósíalísku stjórn Frakklands,
styrkist um leið kaupmáttur
olíumilljónanna við innkaup í
París.
Cartier — gjafavörur
upp á milljónir
hver hlutur
Nokkrum skrefum fjær ræður
Cartier ríkjum. Ungu stúlkurn-
ar, sem leiðbeina viðskiptavin-
unum í verzlunarsölum hans,
hafa fyrir löngu vanizt arabísku
tölustöfunum á ávísunum og
telja helzt núllin fyrir aftan
fyrstu tölustafina — þegar töl-
urnar gerast mjög háar, er
stundum hætta á mistalningu.
„Og samt er þetta eiginlega bara
lítið útibú hjá okkur hérna í
Saint-Honoré," segir verzlun-
arstýran, „því hinir virkilega
dýru munir eru seldir í aðal-
verzluninni." Hún dregur fram
pakka af svörtum sígarettum
innan úr hrúgu af skjölum,
skartgripum, úrum, kveikjurum
og öðrum persónulegum smá-
hlutum, sem liggja í einni bendu
á borðinu fyrir framan hana —
allt saman hlutir, sem um allan
heim gefa til kynna, að eigandi
þeirra sé í allra efsta launa-
flokki. Þarna er jafnvel boðið
upp á úrvals espresso við búð-
arborðin, og bollunum ýtt á ein-
hvern hátt inn á milli verð-
mætra skrautmunanna. Hafi
manni yfirleitt verið hleypt inn
fyrir skotheldar glerdyrnar á
verzluninni og jafnvel verið boð-
ið upp á efri hæðina, þá er það
einfaldlega merki þess, að mað-
ur hafi áunnið sér traust
Cartier-hússins.
Þetta kunnum við óneitanlega
að meta að verðleikum og reyn-
um líka að sannfæra Cartier-
liðið um, að við séum þessa
trausts verð, með því að koma í
skyndingu auga á undurfagran
skrauttappa úr silfri innan um
alla milljónamunina á gjafa-
vöruborðunum. Skrauttappinn
sá árna reynist á verði, sem er
nánast ókeypis: kostar aðeins
vesæla 950 franka.
Vissara að vera
afar vel klæddur
Við erum núna stödd í allra
fínasta hluta hinnar hávirðu-
legu Rue du Faubourg Saint-
Honoré við gatnamótin á Rue de
Castiglione. Handan þessarar
þvergötu fellur aukanafnið
„Faubourg" niður; gatan heitir
eftir það Saint-Honoré, fær um
leið á sig alþýðlegri blæ og verð-
ur að mun ódýrari. Þó er greini-
legt á ýmsum umsvifum, sem
standa yfir við þennan hluta
götunnar, að það alþýðlega yfir-
bragð á víst ekki eftir að standa
ýkja lengi.
En lítum svolítið nánar á áð-
urnefnd gullin gatnamót, þar
sem „Morabito" hefur allar hill-
ur fullar handa þeim fjáðu
viðskiptavinum, sem sólgnir eru
í leðurvörur í gæðaflokknum
„haut luxe“. Sá sem kemur þar
inn í leit að varningi úr ósköp
blátt áfram kálfsskinni, sútuðu
af sérhæfðum meistara í þeirri
grein, mun víst örugglega finna
eitthvað við sitt hæfi hjá „Mor-
abito“; en mannskapurinn í af-
greiðslunni tekur þá fyrst veru-
lega við sér, ef viðskiptavinur-
inn strunsar bara beint inn og
biður umsvifalaust um að fá að
líta á vörur úr krókódílaskinni.
Sá sem fer að virða fyrir sér
litla skjalatösku úr krókó á 1575
franka (um 5.100 ísl. kr.) og sýn-
ir greinilegan áhuga, getur verið
öruggur um verðuga athygli og
lipurð afgreiðslufólksins; sá sem
kastar stóru ferðaskjóðunni á
24.750 franka (um 80.000 ísl. kr.)
sér um öxl og sýnir öll ummerki
einlægs áhuga á að kaupa grip-
inn, hlýtur strax heilan hóp af-
greiðslufólks sér til halds og
trausts við innkaupin. Svo ekki
sé talað um þann, sem fer að
virða nánar fyrir sér stóru lang-
ferðatöskuna á 84.000 franka
(ísl. kr. 268.800.00), því þá birtist
framkvæmdastjóri verzlunar-
innar sjálfur til að veita við-
skiptavininum upplýsingar um
öll einstök smáatriði varðandi
frábæra gerð ferðatöskunnar —
það er að segja, að ef þessi
viðskiptavinur er yfirleitt álit-
inn vera sennilegur kaupandi.
Til þess að öðlast það álit, verð-
ur viðskiptavinurinn að vera til-
svarandi vel klæddur, karlmenn
til dæmis í fötum með greini-
legum virðuleikastíl í sniði og
(hverjum kunnáttumanni) auð-
sýnilega af dýrustu gerð.
Hefðarskyrtur
frá Charvet
Öruggur vitnisburður slíkra
æðri lífshátta eru til dæmis
skyrtur frá Charvet — aðeins
örfá skref til vinstri frá „Morab-
ito“ — við Place Vendome. í
hægra horni þessa fagra torgs,
með sitt frábæra arkitektíska
jafnvægi í öllum hlutföllum, er
aðsetur fyrirtækisins Charvet
að finna. Stofnað árið 1838 og
stendur því á gömlum merg og
heldur margar hefðir í heiðri í
sinni skyrtugerð. Charvet verð-
ur að teljast einasti skæði
keppinautur skyrtuskraddar-
anna í London, sem löngum hafa
talizt heimsins beztu. Klæðsker-
arnir hjá Charvet eiga í fórum
sínum lista yfir vellauðuga
viðskiptavini frá fornu fari og
allt fram á þennan dag: Napol-
eon III var einn af fyrstu stór-
löxunum, sem létu sauma á sig
hjá Charvet, de Gaulle var þar
fastur viðskiptavinur allt frá
þeim dögum, er hann var ungur
liðsforingi. Hann pantaði skyrt-
urnar sínar hjá Charvet, jafnvel
á meðan hann dvaldi í útlegð í
London á stríðsárunum. Um
svipað leyti komu líka nýir
viðskiptavinir til Charvets, og
létu taka mál af sér: Það voru
þeir Hermann Göring og Joseph
Goebbels. Jacques Offenbach
var aftur á móti betur þokkaður
hjá fyrirtækinu; svitagjarnir
þóttu hins vegar fyrirrennarar
arabísku olíufurstanna, þ.e.a.s.
indversku auðkýfingarnir hér
áður fyrr. Colban, fram-
kvæmdastjóri hjá Charvet,
dregur fúslega fram reikn-
ingana, sem maharadsjinn frá
Patiala þurfti að borga á sínum
tíma. Árið 1931 lagði hann inn
pöntun hjá fyrirtækinu á fjöl-
mörgum mismunandi skyrtum
handa sér, og af hverri gerð
skyldi sauma nokkrar tylftir í
einu, svo að mahradsjinn hefði
örugglega nægilegt til skipt-
anna; hverri einstakri skyrtu
skyldu svo fylgja nokkrir flibb-
ar.
Kennedy forseti var einn af
föstum viðskiptavinum Charv-
et-hússins, en það reyndist
ómögulegt að lokka það upp úr
Monsieur Colban, hver af stór-
mennum vorra daga séu fastir
viðskiptavinir Charvets. Hann
brosir einungis við slíkum
spurningum og lætur sér nægja
að benda á, að hver sem er geti
keypt sér skyrtur hjá Charvet,
einnig hálsbindi eða vasaklúta
úr efnum, sem séu sérstaklega
ofin fyrir Charvet af handvefur-
um á Ítalíu, í Englandi eða
Frakklandi. Sama gildi um
knipplingana, sem skreyta
dömublússur frá fyrirtækinu.
Tilbúin skyrta kostar í verzlun-
inni 395 franka (um 1260 ísl.
kr.), sérstærðir af skyrtum
kosta þó 590 franka (ísl. kr.
1888.-) og skyrta, saumuð eftir
máli, kostar 695 franka (2224
kr). Þetta verð hækkar vitan-
lega, ef viðskiptavinurinn óskar
eftir skyrtuefni, ofnu úr hand-
tvinnuðu líni, silki eða úr ör-
þunnum baðmullardúk, sem er
orðin feiknasjaldgæf vara nú á
dögum.
Gullofinn glitvefnaður
Sá sem gjarnan vill þukla á
fínustu efnum og fatadúkum og
hefur líka — vel að merkja —
efni á að kaupa slíka vöru og
greiða út í hönd, honum skal
ráðlagt að ganga þvert yfir
Place Vendome frá Charvet yfir
til „Wilmart". Arabískar fursta-
frúr, sem stundum koma fljúg-
andi til Parísar frá nálægari
Austurlöndum og hafa kven-
klæðskera sína með sér, kaupa
gjarnan inn hjá „Wilmart“.
Þeim er naumast fjár vant, því
samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum eru ávísanirnar, sem þær
fylla út eftir gerð kaup, oft um
350.000 fr. og upp í 500.000
franka (frá rúml. 1,1 upp í 1,6
milljónir ísl. kr.).
Viðskipti við nálægari Aust-
urlönd er engin nýlunda í verzl-
uninni „Wilmart", því egj^pzka
konungsfjölskyldan keypti þar
reglulega inn á valdatímum
Farúks konungs. Fín kjólaefni
kosta þarna þetta 600 og upp í
Frh. á bls. 16
3