Lesbók Morgunblaðsins - 02.07.1983, Page 15
er konan hans reyrð niður í
hjónarúmið, nakin, og voru á
ferðinni vinir fautans Adolph
Karls. Newman skelfist við að-
komuna og er síðar sömu nótt
hótað í gegnum síma. Daginn
eftir dregur hann vitnisburð
sinn til baka en leggur á ráðin,
með vini sínum og konu, að
koma illmennunum fyrir katt-
arnef. Æsast leikar og er ekki
ráðlagt að tíunda efni þessa am-
eríska reyfara frekar.
HFtJlA
m i'rri
l-.lL
Ronald Fraser:
In hiding — The life
of Manuel Cortes.
Penguin Books.
Þegar Manuel Cortes kom
loksins fram úr fylgsni sínu eft-
ir þrjátíu ára innilokun, þá
hafði hann um það orð hve „túr-
isminn" hefði farið illa með
frændur sína á Suður-Spáni.
Hann var útlendingur í eigin
landi eftir þessa löngu inniveru.
Þegar Franco hafði náð undir-
tökunum í borgarstyrjöldinni
spænsku, þá fór Cortes í felur
vegna þess að hann óttaðist, að
honum yrði ekki langra ævidaga
auðið þar sem hann var bæjar-
stjóri á dögum lýðveldisins og
hafði að auki barist með lýð-
veldissinnum. í þrjátíu ár fór
hann aðeins tvisvar sinnum út
úr húsi, í bæði skiptin þegar
kona hans og dóttir fluttu bú-
ferlum. í öll þessi ár fylgdist
hann náið með innanlands-
málum sem og alþjóðamálum,
hann las blöð og hlustaði á út-
varp. I sjónvarpi horfði hann
einvörðungu á nautaat og þótti
það tilkomulítið.
In Hiding segir sögu Manuels,
en ekki aðeins persónusögu
hans, heldur einnig örlagasögu
Spánar frá dögum Alfonsar
þrettánda og allt þar til útlend-
ingar tóku að flykkjast þangað
til að sleikja sólina. í húsi í
þorpinu Mijas sat Manuel í þrjá
áratugi, og aldrei féll grunur á
konu hans, að hún héldi mann
sinn þar inni. Það var ekki fýrr
en opinber yfirlýsing um sakar-
uppgjöf var gefin út af stjórn-
völdum þar í landi, að Cortes
áræddi að koma fram í dagsljós-
ið.
Bók þessi er tæpar 240 síður
og er að finna í henni margan
fróðleik um Spán fyrir valda-
töku Francos.
Höfundurinn, Rónald Fraser,
fæddist í Þýskalandi, menntað-
ist á Englandi og í Bandaríkjun-
um. Hann sat í ritstjórn New
Left Review og hefur skrifað
nokkrar bækur. Ein þeirra er
Blood of Spain sem fræg hefur
orðið um byggðina.
í Reykjavík, á horni Lækjargötu og Vonarstrætis. Hús Iðnaðarbanka íslands. Myndin er lýsandi dæmi um það hvað gerist þegar gömul hús eru rifín
í eidri hverfum höfuðstaðarins eða þau brenna. Lóðum þeirra er umsvifalaust breytt í bflastæði. Enda þörfín mikil. Flest ef ekki öll þessara bflastæða
eru vægast sagt nöturleg á að líta. Þau eru okkur til skammar.
Á fjölförnum stöðum sem þessum ætti að kappkosta að gera umhverfíð eins aðlaðandi og efni og ástæður leyfa. Myndin hér að ofan sýnir hvernig
bflastæðið gæti litið út.
Betra umhverti - hversvegna ekki?
Eftir Birgi H. Sigurðsson skipulagsfræðing
og Stanislas Bohic garðarkitekt
Þetta þarf ekki að líta
UMNVISRH út eins og eyðimörk
15