Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1985, Qupperneq 12
Þróun og nýjung-
ar í bílaiðnaði
EVRÓPA:
Eftir nokkur mögur ár virðist bílaiðnaðurinn vera að rétta úr kútnum og þrátt
fyrir allt sem sagt hefur verið um frumkvæði Bandaríkjanna og Japans á
tæknisviði, eru sumir Evrópubílar í fararbroddi, t.d. í þróun bensínvélarinnar
og tölvustýrðri hemlunartækni.
pákonan leit í kristalskúluna og sagði: Það er
Ford í framtíðinni hjá þér — there is a Ford
in your future —. Þessa auglýsingu notaði
Ford í gamla daga, þegar menn voru vissir
um, að bíllinn ætti sér glæsta framtíð. Svo
þegar umferðarþunginn fór að verða
vandamál í borgum sem voru byggðar á
dögum hestvagnaumferðar, — og and-
rúmsloftið fór að mengast af öllum þess-
um koltvísýringi úr útblæstrinum fóru
sumir að efast um, að bíilinn ætti framtíð
fyrir sér og því var spáð, að dagar hans
yrðu taldir fyrir næstu aldamót.
Síðan hefur það gerzt, að olíukreppan
hefur átt sinn þátt í því að bílar eru nú
yfirleitt minni, léttari og langtum eyðslu-
grennri. Þar að auki hefur rafeindatæknin
haldið innreið sína í vaxandi mæli og hinn
hefðbundni bulluhreyfill hefur verið stór-
um endurbættur jafnframt því sem tekizt
hefur að hreinsa útblásturinn.
Nú er svo komið aftur, að einkabílnum
er spáð langri framtíð og að um næstu
aldamót verði engin breyting orðin á stöðu
hans. Maðurinn sem talinn er hafa bjarg-
að Chrysler Corporation frá hruni, Lee
Iacocca, var ekki talinn spámannlega vax-
inn árið 1965 (þá frægur orðinn sem upp-
hafsmaður að Mustang hjá Ford) þegar
hann gaf út svohljóðandi spásögn um bíl-
inn að tveimur áratugum liðnum:
„Bíllinn verður þá enn á fjórum hjólum,
miklu léttari en nú, með bensínhreyfilinn í
Gömul tízka endurvakin: Blæjubíllinn, sem
ekki bafði sést lengi, er nú aftur fáanlegur.
Nokkrar smábílagerðir gefa kost á þessari
útfærslu.
miklu þróaðri mynd og hann verður ekki
með varadekk. Það verða engir rafbílar, og
dísilbílar munu ekki skipta verulegu máli
og vandamál túrbínuhreyfilsins verður þá
enn óleyst."
Nú, 20 árum síðar bætir Iacocca við:
„Þetta reyndist allt rétt nema varadekkið.
Og ég spái því sama fyrir næstu tvo ára-
tugi.“
Á þeim tíma, sem það tekur lesandann
að lesa þessa grein, segjum 15 mínútum,
hefur iðnrisinn General Motors fjárfest
fyrir 400 þúsund dali til viðbótar í bílaiðn-
aðinum. Séu allir aðrir framleiðendur bila
teknir inn í dæmið nemur upphæðin 1,8
milljón Bandaríkjadala, en það svarar til
þess að heimurinn leggur i bíla-
framleiðsluna 120 þúsund Bandaríkjadali
á mínútu hverri.
Hér er ekki um að ræða einhvers konar
ógnarlegan kipp, heldur þann kostnað sem
af því leiðir að halda þessari stóru iðn-
grein gangandi, — og svo stór er hún, að
nemur sjöunda hluta af öllum viðskiptum í
Audi quattro 80 er barla venjulegur í útliti, en hann er með drifi á öllum
hjólum.
Mercedes Benz 190 hefur hlotið mjög góðar viðtökur og nú verða miðgerð-
irnar afBenz endurhannaðar eftir þessari fyrirmynd.
heiminum. En þar gengur ekki öllum jafn
vel. Meira að segja „þeir stóru" í Detroit
viðurkenna, að slagurinn standi viö Jap-
ani, sem geta framleitt sína smærri bíla á
innan við 1500 Bandaríkjadali. Það hafa
bandarískir framleiðendur aftur á móti
ekki getað og nú er unnið aö því þar vestra
að koma á japönskum framleiðsluaðferð-
um vegna smábíla, sem eiga að sjá dagsins
ljós seint á þessum áratugi.
Talið er að evrópskir bílaframleiðendur
gætu framleitt tvær milijónir bíla á ári
umfram það sem þeir selja. Afleiðingarnar
Nýkjörinn bíll ársins 1985: Opel Kadett,
endurhannaður að miklu leyti.
12