Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1985, Side 13

Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1985, Side 13
bæ, síðan gamla bjallan var og hét. Nú er kominn Golf með skotti, en haldið áfram með Jetta, Passat og Santana, sem einnig verður framleiddur í Japan hjá Nissan og um 1988 einnig í Kína. AUDI er á uppleið og framleiðslan jókst um 50 þúsund eintök á árinu ’83 og 3000 manns þurfti að ráða til að geta annað því. Síðla á sjöunda áratugnum sýndu markaðskann- anir, að kaupsýslumenn sem vilja vera vel ríðandi, gengu framhjá Audi og þá var allt sett í gang: Þeir smíðuðu Audi Quattro með drifi á öllum, sem síðan hefur getið framleiðandanum gott orð og verið harður í rallkeppnum. Með Audi 100 tókst að krækja í viðurkenninguna „Bíll ársins" í Evrópu og einnig að fá lægsta vindstuðul á nokkrum fólksbíl, 0,30. Nú hefur Renault að vísu slegið það út með hinum nýja lúx- usbíl, Renault 25, sem er ennþá hálli. Þeir eru þekktir fyrir tæknilegan metnað hjá Audi og nú mun í deiglunni Audi 100 með drifi á öllum, en Audi 80 hefur verið fáan- legur þannig. Bæði Audi Quattro og 80 koma í nýjum búningi 1986, en á teikni- borðinu og sennilega lengra komið er nýtt flaggskip flotans, Audi 300, sem verður lúxusbíll á borð við beztu Benzana. OPEL Og Vauxhall Við árslok hafði GM tekizt að ná í all- góða sneið af kökunni og aukið hlutdeild sína á Evrópumarkaðnum um 2%. Þar munar mest um gerðirnar Opel Ascona, Opel Kadett og Vauxhall Astra. Opel varði 1,5 milljarði þýzkra marka í þróun á þeim nýja og nú eru uppi fyrirætlanir um að selja 550 þúsund eintök í Evrópu, sem yrði þá met. Til marks um fjölbreytnina má geta þess, að Kadett/Astra er fáanlegur í 17 mismunandi útgáfum og völ er á 6 stærðum af vélum. Aftur á móti hefur Pord ekki gengið eins vel í Evrópu. í þróun á Sierra var varið 850 milljónum dala, en viðtökur voru ekki sem skyldi þrátt fyrir nýstárlegt og straum- línulagað útlit. Stærri útgáfa af Evrópu- Ford, nefnd Granada, átti einnig við sölu- tregðu að stríða. Ford átti hlutdeild sína í Evrópumarkaðnum að mestu að þakka Escort, sem hefur má segja erft vinsældir Cortinunnar. Þessi nýi Renault 25 rakti mikla athygli á bílasýningunni hér í vor. Hér er lúxusbíll með franskri mýkt í fjöðrun og sætum og með framhjóladrifi. birtast í harðvítugri samkeppni og tap- rekstri. Það hefur verið harðlega gagnrýnt á Vesturlöndum, að veikleiki japanska yensins hafi gefið Japönum yfirburðaað- stöðu og nú, þegar meira ber á verndartoll- um ýmiskonar, hafa Japanir gripið til þess ráðs að reisa bílaverksmiðjur í Bandaríkj- unum — þar eru 12 verksmiðjur á leiðinni eða tilbúnar. Nissan Motors hefur náð ítökum í Motor Iberia á Spáni og Honda er komin í samband við British Leyland. Sagt er að japanska verkalýðshreyfingin sé mjög óhress með þá þróun. En nú hafa Japanir fengið samkeppni, sem sprottið hefur upp svo að segja á bak- lóðinni. Suður-Kórea er á fullri ferð og framleiðir um 100 þúsund bíla af Hyundai- og Daewoo-gerðum. Þeim hefur þegar tek- izt að ná yfirhöndinni frá Japönum í Mið- Ford íEvrópu hefur átt frekar litlu láni að fagna, en skæðasta vopnið þaðan er EscorL Hér sést Turbo-útfærslan, sem er mjög spræk. Þessi á að fara framúr Benz og BMW á hraðbrautunum, CX Turbo frá Citroen. Sportgerðin GTi befur fengið forþjöppu og nær nú 240 km hraða. Austurlöndum með 25% lægra verði en Japanir geta boðið. Nú eru Kanar komnir með puttana í þessa Kóreu-framleiðslu; General Motors og Daewoo hafa samið um að framleiða í sameiningu 167.000 bíla árið 1987 og helmingur þeirra verður fluttur til Ameríku. Fiat Vno var sannarlega bíll ársins ífyrra, hann kom, sá og sigraði, og seldist eins og heitar lummur. Nú er komin íburðarmeiri útfærsla með stærri vfel. NÝJAR GERÐIR Á Markaðnum Jafnframt öllum hugsanlegum afbrigð- um af hinum hefðbundna fólksbíl, hefur bílaiðnaðurinn í vaxandi mæli fjórhjóla- drifna bíla á boðstólum. Sú þróun er að gera vart við sig, að hægt verði að fá smá- bíla með drifi á öllum, Fiat Panda til dæmis og Audi 80 í millistærðarflokki, eða Audi Quattro, sem er sportlúxusbíll með drifi á öllum. En venjulega eru þetta ein- hvers konar jeppaafbrigði, t.d. sá litli frá Suzuki, Pajero frá Mitsubishi, Patrol frá Nissan og Land Cruiser frá Toyota. Eng- um hefur þó tekizt að skáka Range Rover og jeppinn eini og sanni frá American Motors heldur alltaf vinsældum sínum. Mestum tíðindum hafa þó sætt þeir bíl- ar, sem byggja á því að stórauka innra rými, t.d Mitsubishi Space Wagon, Honda Shuttle og Renault Espace. Kanar hafa nokkuð lengi framleitt sendibíla með lúx- usinnréttingu, sófasetti, rúmi og ef til vill eldhúskrók. Þesskonar bílar þykja maka- lausir til ferðalaga og eftirspurn eftir þeim hefur stóraukizt. Gamall ljúflingur, blæjubíllinn, hefur birzt endurborinn og sama er að segja um tveggja sæta bílinn, sem þó er ekki í sport- útgáfu heldur sem venjulegur brúkunar- hestur. Önnur útgengileg vara er „hatch- back“-útfærsla af ýmsum gerðum með sprækari vél en hefðbundnu gerðirnar hafa. Honda býður einn slíkan og sport- gerðirnar af Escort og Volkswagen Golf hafa reynzt mjög auðseljanlegar. Sumir eru orðnir glettilega sprækir, þótt ekki láti þeir mikið yfir sér: Opel Kadett GSi hefur sama hámarkshraða og Porsche 924, en er ennþá skarpari í viðbragði. Vestur-Uýzkaland Mercedes Benz heldur stöðu sinni og vel það. Á dýrustu Bæði Renault 5 og Peugeot 205 eru framúrskarandi smábílar og Turbo 2-gerðin af Renault 5 og GTi-gerðin af Peugeot eru alger tryllitæki. gerðunum, S-class, varð 10% söluaukning á síðasta ári. Miðstærðarbenzinn, 200—250, kemur að öllum líkindum á þessu ári í nýjum búningi og þá sniðinn eftir þeim litla, Benz 190, sem hefur verið fádæma vel tekið; 200 þúsund eintök hafa verið smíðuð. Það er eftirtektarvert, að hann er með beinni innspýtingu, en ekki turbo, eða afgas-forþjöppu, sem er þó ódýrasta aðferðin til að stórauka kraftinn. Meinið er, að sá kraftur skilar sér ekki á lágum snúningshraða og framleiðendur greinir talsvert á um það, hvort forþjapp- an muni ryðja sér meira til rúms en orðið er. BMW seldi helminginn af framleiðslu sinni úr landi á siðasta ári og söluaukningin var 20% í Bandaríkjunum og Japan. BMW hefur farið sér hægt í ytri breytingum, en áherzlan er lögð á vöndun, sportlega ímynd og hraðaksturshæfni. Styrkur verk- smiðjunnar liggur í að geta boðið geysilega breidd, allt frá 300 gerðinni uppí toppana í 700 gerðinni, sem eru samstiga við þá beztu frá Jaguar og Benz. Hryggurinn í framleiðslunni felst samt í 300-gerðinni; 250 þúsund slíkir voru smíðaðir á síðasta ári og nam það helmingi allrar framleiðsl- unnar. Til að slá við þeim skörpustu frá, Porsche og Jaguar, hefur verið hleypt af stokkum tryllitækinu BMW M1 en frekari tíðinda er að vænta 1986, þegar nýjar gerð- ir koma í stað BMW 518 — 528 og einnig í staðinn fyrir 700 gerðina. Geysileg áherzla er lögð á tölvutækni hjá BMW og mun á þessum tilvonandi gerðum verða hægt að sjá slit á einstökum hlutum bílsins. Einnig kemur tölvustýrður búnaður í veg fyrir að bíllinn missi fótanna ef svo mætti segja, þegar hjólin fara að skrika og spóla eins og getur gerst við ákveðin skilyrði í beygjum eða í hálku. Þá eru uppi raddir um, að 500 og 700 gerðirnar verði fáanlegar með drifi á öllu hjólum. VOLKSWAGEN Golf hatchback frá Volkswagen varð sölu- hæstur einstakra Evrópubíla á árinu ’83 (442.293 eintök), en sú velgengni hrökk ekki til; framleiðslan dróst saman um 2,2% í liðlega milljón eintök og útflutning- ur dróst saman um 11%. Golf er það vin- sælasta, sem smíðað hefur verið á þeim Frakkland Renault Þar gera menn sér vonir um að selja 150 þúsund eintök af þeim nýja Renault 25, sem sætir mestum tíðindum hjá þessari ríkisreknu, frönsku verksmiðju. Hann hef- ur minnsta loftmótstöðu allra fólksbíla í svipinn, vindstuðullinn er 0,28 og verð- munurinn á þeim ódýrasta og dýrasta er tvöfaldur. í dýrustu útfærslu er hann skinnklæddur að innan, með sóllúgu, fjar- stýrðum læsingum og rödd segir ökumanni ef eitthvað er að. Af einstökum framleiðendum tók Ren- ault stærstan hluta af Evrópumarkaðinum sl. ár. Athyglisverð þykir ný gerð af smá- bílnum Renault 5, sem fæst með turbo og er i svipinn sparneytnasti bensínbíll á markaðnum. Af öðrum nýjungum frá Ren- ault má nefna sjö sæta bílinn Espace, fyrsta Evrópubílinn samkvæmt þeirri formúlu. Peugeot/Citroén Eftir fjögurra ára lægð er Peugeot á LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 12. JANÖAR 1985 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.