Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1985, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1985, Side 8
Á Sprengisandi. Eitt af málverkum Bjarna Þórarinssonar. KREPPUMALVERK Bjarna Þórarinssonar á sýningu í Gallerí Borg Bjarni Þórarinsson vakti fyrst athygli á Kirkju- listarsýningunni á Kjarvalsstöðum í marz 1983, en hann átti stærstu mynd sýningarinnar. Hún hafði veru- legan slagkraft, sumpart vegna stærðarinnar, en sumpart vegna innihalds af dularfullum toga, sem lá þó ekki beint við að setja í samband við kirkjulist. Bjarni er Reykvíkingur, fædd- ur 1947, varð stúdent frá MR 1968. Nokkru síðar sneri hann sér að myndlistarnámi og lauk prófi frá Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskólans 1977. Þetta var á þeim tíma, þegar ungir menn voru búnir að afskrifa málverkið sem úrelt þing, og konseptið, hugmyndalistin, átti þá alla, því þar töldu þeir að framtíðin væri. En margt fer öðruvísi en ætlað er og gamla olíumálverkið var ekki eins bráðfeigt og margir hugðu, sem þá voru blautir á bak við eyrun. Svo fór í kringum 1980, að flestir nýlistamenn höfðu fengið nóg af konsepti og einhverra hluta vegna sneru þeir sér að málverki í anda nýja expressjónismans sem þá hafði farið eins og eldur í sinu um Vestur-Evrópu. Bjarni Þórarinsson var einn þeirra í nýlistahópnum, sem turnuðust til trúar á málverk, og hefur ræktað þann garð síðan. En undirbúningurinn var ekki sem beztur; menn höfðu ekki verið í skólanum til að læra gömul vinnubrögð og þegar til átti að taka, voru þeir eins og hverjir aðrir byrjendur, sem verða að láta slag standa og þreifa sig áfram. Áður hafði Bjarni .verið í hópi, sem rak sýningarstaðinn í húsinu nr. 7 við Suðurgötu, og hann hafði raunar lagt gjörva hönd á margt; unnið við hvaðeina, sem til félí, til dæmis við Búrfells- virkjun. Og þó hann líti nú fyrst og fremst á sig sem málara, því þar er hugur hans allur, hefur hann að brauðstriti vinnu í pósthúsinu i Múla. Hann getur ekki lifað af listinni fremur en flestir ungir myndlistarmenn og hann vill frekar vera í vinnu óskyldri listmálun en að vera svo blankur að hann eigi varla fyrir efni. Þegar Bjarni hóf að mála, um 1980, var það fyrst með raunsæ- isútfærslu. Ekki þóttist hann finna sjálfan sig þar og hvarf þessvegna til frjálsari tjáningar eins og fram kom á sýningunni Gullströndin andar, þar sem ungu spírurnar fóru hamförum, eða reyndu það að minnsta kosti. Bjarni heyrir til þeim hópi, sem aðhyllist nýbylgjumálverkið; hann er expressjónisti, sem hef- ur verið í leit. að persónulegu svipmóti, en það er ekki auðveld- ast af öllu að ávinna sér eigin stíl eins og menn þekkja. Bjarni hefur ekki varpað hugmyndalistinni fyrir róða að því leyti að ennþá ræður hug- myndalegt inntak miklu. Þetta er ekki L’art pour l’art, listin fyrir listina, — og ekki heldur formræn rannsókn. Bjarni vinn- ur með það hugmyndalega inn- tak, að staða mannsins í heimin- um sé vægast sagt vafasöm. Hann telur sig pólitískan málara í þá veru, að hann fjallar um stórar spurningar, sem snúast um framtíð mannsins og inögu- leika hans til að lifa áfram á jörðinni. Grundvallarspurningin snýst um frið annarsvegar og kjarnorkuvá hinsvegar. Hann sér ógnarjafnvægið fyrir sér sem tvo marghöfða þursa, eða risa, k'~.! Ein af vatnslitamyndum Kristínar: Arnarfeil við Þingvallavatn. STILLUR Kristínar Þorkelsdóttur á sýningu í Gallerí Langbrók Allir þeir sem lifa og hrærast í námunda við auglýsingar, þekkja Kristínu Þorkelsdóttur, sem um árabil hefur rekið stóra auglýsingastofu og sjálf hefur hún getið sér orð fyrir smekkvísi á þeim vettvangi. Nú sýnir Kristín hinsvegar á sér nýja hlið. í Gallerí Langbrók stendur nú yfir sýning hennar á vatnslitamyndum og yfirskrift sýningarinnar er Stillur. Það gæti gefið vísbendingu í tvær áttir; uppstillingar eru stundum nefndar stillur, en hjá Kristínu merkir það kyrrð. Var þetta gamall draumur, sem loksins gat rætzt? Ef til vill, segir Kristín. Hún kveðst hafa „orðið ástfangin af vatnslitn- um“ í fyrrasumar, — hafði þó raunar grip- ið í vatnsliti í sumarleyfum árum samai En það vildi verða lítið sem eftir lá efti árið, og hún var ekki heldur alltaf sátt vi það. En allt í einu var eins og vatnslitui inn gæfi sig henni á vald og nú gaumgæfi hún landið, þegar hún bregður undir si betri fætinum og „sér það með vatnslit' segir hún. Er þetta eitthvað sem auglýsingateikr arar þrá: Að eitthvað liggi eftir þá anna en auglýsingar? Með réttu eða röngu hefu því stundum verið haldið fram, en Kristí hefur verið mjög sátt við fagið, segir hú og bætir við: „Þetta eru svo ólík svið o ekki gæti ég notað eina einustu þessar mynda í auglýsingu." Kristín var í Handíðaskólanur 8

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.