Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1985, Page 10

Lesbók Morgunblaðsins - 04.05.1985, Page 10
fólk Samantekt úr Der Spiegel „Margir sjúklingar virðast falla saman við þá streitu sem fylgir því að vera sífellt að grafast fyrir um löngu liðna hálfgleymda at- burði frá barnæsku, en þess krefst sálgreining- in. Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa leitt í ljós að sumir þeirra verði áreitnir og ofbeldishneigðir, en aðrir fyllast sjúklegum hugmyndum eða flýja í ofdrykkju eða eitur- lyf.“ Aþessum tíma hófst hann handa um að sálgreina sjálfan sig, svo sem frægt er orðið, og varð sú greining að langri og kveljandi birgðatalningu í sálarkirnunni. Hún er fram á þennan dag fyrir- mynd skyldugreiningar rétttrúaðra geð- lækna. Eftir nokkur ár, að greiningunni lokinni, kom Freud aftur fram á sjónar- sviðið með nýjar kenningar. Marianne Krull lýsir hamskiptunum svo að Freud „hafi hætt að grafast fyrir um sök föður síns, gefið „áreitiskenninguna" frá sér og tekið sem góður sonur alla skuld á sig sjálfur með því að setja kenninguna um Ödipusarduldina í hennar stað“. Sú kenning er fengin að láni frá leikriti Sófó- klesar með ákveðnum breytingum þó. Leikritið fjallar um þríhyrning þar sem sonurinn girnist móðurina og er eljari föð- ur síns. Hjá Sófóklesi er ljóst í byrjun að faðirinn hefur framið hræðilegan glæp á syni sínum þegar hann var barn, en Freud minnist ekki á það. Er hér kominn sá fóta- skortur á tungunni, sem kenndur er við Sigmund Freud? Marianne Krull lítur á þessi dularfullu sinnaskipti Freuds sem nokkurs konar frelsun frá bæði vísindalegum og persónu- legum vandamáium, en hún er einnig þeirrar skoðunar að tími sé kominn til að „veita fyrri kenninu' Freuds uppreisn æru“. HANN Skýrði Frásögn Sjúklinganna Eschenröder telur þessar deilur skipta litlu máli. í hans augum er ekki lengur hægt að geta sér til um hvort hinir móð- ursjúku kvensjúklingar Freuds sögðu satt eða lugu því Freud hafi yfirleitt sett þeim orð í munn þó svo sé látið líta út sem þeim hafi dottið sjálfum alit þetta í hug þegar þær voru lagstar á beddann hjá prófess- ornum. Freud sagði að markmið meðferðarinn- ar væri að kalla fram bernskuminningar, hugaróra eða drauma úr undirdjúpum meðvitundarinnar, raða þessum brotum saman eins og raðspili og „túlka" síðan með þeim árangri ef vel gengi að sjúkling- urinn skildi sjálfan sig betur á eftir. Reyndin var samt önnur segir Eschen- röder sem álítur að Freud hafi beitt klók- indum eins og miðalda þrætubókarmaður til að leggja gildrur fyrir sjúklinga sina. Ef þeir vildu ekki viðurkenna túlkun hans á t.d. ákveðnum draumum, sagði hann þá sýna „mótþróa" sem sprytti af tregðu hinna taugaveikluðu til að viðurkenna óþægilegar og því sérlega mikilvægar staðreyndir. Vitni hafa lýst því hvernig Freud tókst að brjóta slíka mótspyrnu á bak aftur. Hann stýrði frásögn sjúklinga sinna með því að setja mildilega ofaní við þá, hrósa þeim hóflega, humma og rýta eftir því sem við átti allt þar til þeir sögðu sögur sem voru í samræmi við það sem hann vildi sjálfur heyra. Þetta segir Eschenröder að sé ein tegund heilaþvotts sem hafi reynst mjög árangursrík í sálfræðitilraunum. Að sjálfsögðu þverneitaði Freud opin- berlega að viðhafa slíkar aðferðir. Hann skrifaði eitt sinn að hann „gæti varla brýnt nógsamlega fyrir starfsbræðrum sínum að taka sér skurðlækni til fyrir- myndar við vinnu sína, en hann setji eigin einkenni og jafnvel samúð til hliðar og beiti andlegum þrótti sínum að því einu að framkvæma aðgerðina svo vel sem unnt er“. Nauðsynlegt væri að halda fullri fjar- lægð til að koma í veg fyrir hættuna af „yfirfærslu", því að sjúklingarnir skipi sálgreininum í nokkurs konar foreldra- hlutverk og beri þá tilfinningar til hans, kaldar eða heitar eftir aðstæðum. VAFASÖM áhrif á Sjúklingana Margir gagnrýnendur hafa á hinn bóg- inn grun um að þessi skipan mála hafi helst þjónað þeim tilgangi að vernda lækn- inn sjálfan. Freud var teprulegur maður sem lagði allt kynlíf á hilluna þegar hann var fertugur. („Manni eins og mér er ekki hollt að finna til holdlegrar ástríðu.") Á fyrstu árum sálgreiningarinnar kom oft fyrir að kvensjúklingar Freuds yrðu ást- fangnar af honum — en það var þessum siðvanda manni hin mesta raun. Það eina sem hann lét eftir sér var að keðjureykja vindla. En sennilega er hættan á „yfirfærsl- unni“ tilkomin vegna þess hvernig Freud sviðsetti meðferð sína. Þegar sjúklingur- inn er látinn liggja eins og kornabarn við hliðina á fullorðnum manni sem situr í stól er nema von að hann fari smám sam- an að haga sér eins og barn. Nýjustu rannsóknir hafa leitt í ljós að flestir sjúklingar sem gangast undir sál- greiningu verða háðir sálgreininum ævi- langt. Þeir fá „undur eigin persónu" á heil- ann og „upplifa stöðuga sálgreiningu án þess að breytast hætishót". Hve margir geðveilir ná þeim árangri sem Freud stefndi að, að „verða færir um að framkvæma og njóta", liggur ekki á ljósu, en það litla sem vitað er lofar ekki góðu. Samanburðarrannsóknir hafa leitt i ljós að fjórum af hverjum tíu geðveiki-sjúkl- ingum virðist batna, stundum skyndilega, eftir nokkur ár og skiptir þá engu máli hvort þeir hafa verið hjá sálgreini eða ekki. Hins vegar kom í ljós að mun meiri líkur voru til þess að þeim versnaði sem Ieitað höfðu til sálgreinis og verið í með- ferð. Margir sjúklingar virðast falla saman við þá streitu sem fylgir því að vera sífellt að grafast fyrir um löngu liöna hálf- gleymda atburði frá barnæsku, en þess krefst sálgreiningin. Rannsóknir í Banda- ríkjunum hafa leitt í ljós að sumir þeirra verði áreitnir og ofbeldishneigðir, en aðrir fyllast sjúklegum hugmyndum eða flýja í ofdrykkju eða eiturlyf. Þeir sem að rannsókninni stóðu komust að þeirri niðurstöðu að sálgreining geti „gert fólk heilbrigt, en geti líka átt þátt í því að gera það brjálað". Þessi hætta vofir ekki einungis yfir sjúklingunum heldur líka „læknunum". Bandarískur sálgreinir heldur því fram að sá sem vill koma til móts við „yfirgengi- lega sérstöðu" hvers sjúklings eigi það á hættu að „drukkna í öllu því margræða og flókna upplýsingaflóði" sem honum fylgir. Það sé nokkuð víst að „þessi vinna geri mann vitskertan" þegar til lengdar lætur. En Freud var ekki eins viss um lækn- ingarmátt aðferðar sinnar og margir þeir sem fetað hafa í fótspor hans. Hann kvaðst eitt sinn ekki mæla með sálgrein- ingunni sem lækningaraöferð heldur vegna þess sannleika sem hún gæti dregið fram í dagsljósið. Bæði sálgreinikenningin og það álit á sálar-„apparati“ mannsins sem hún byggir á fela í sér að einungis þurfi að draga Gordionshnút sálarflækjunnar upp í með- vitundina til þess að hann rakni af sjálfu sér. Hreinsun Breuers Vinur Freuds og velgerðarmaður Jósef Breuer vakti áhuga taugalæknisins Freud á sálarfræði á níunda áratug aldarinnar sem leið. Breuer var iæknir í Vín sem reyndi að losa konur við móðursýkisein- kenni með því að dáleiða þær. Breuer hélt að ef konunum tækist að ná leyndum orsökum þjáninga sinna upp úr undirmeðvitundinni þegar þær væru í dái ætti að vea hægt að lækna þær með því að gera þeim grunnmeinið ljóst. Þetta kallaði Breuer „hreinsun" (kaþarsis). Freud hafði verið í læri í París hjá Je- an-Martin Charot, frægasta taugalækni þess tíma, og fengið þar hugmynd sem hjálpaði honum við leitina að hinum duldu orsökum móðursýkinnar: Charot hafði ein- hvern tíma látið þau orð falla að „kynlíf væri víst alltaf með í spilinu" þegar um móðursýki væri að ræða. Á áratugnum eftir tilraunir þeirra Freuds og Breuers (sem flestar fóru út um þúfur) skóp Freud yfirgripsmikla kenn- ingu um mannlegan persónuleika og þróun hans. Helstu atriði hennar eru þessi: I barnæsku, eða til sjötta æviárs þroskast maðurinn á flókinn hátt og árekstrar verða margir. Þá myndast flestir þættir síðari persónuleika hans. Verði þroskinn ekki eölilegur á þessu skeiði t.d. vegna uppeldis eða skelfilegrar Taugalæknirína Charcot íParís, lærífaðir Freuds (fyrir miðju á myndinni) — Kynlíf alitaf meó í spilinu, þegar um móðursýki er að ræða — l —^ 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.