Lesbók Morgunblaðsins - 18.05.1985, Blaðsíða 11
„Eigi skal grita“ er nafn á mynd eftir Hark Bohm frá Þýzkalandi. Myndin fjallar um bið
þekkta mál er nýlega kom upp í Þýzkalandi þegar móðir skaut til bana morðingja barns síns
Úr myndinni „Nótt San Lorenzo“ eftir Tavianni-bræður.
bókunum sem verða gerðar að hluta til á
íslandi. Þessir síðasttöldu tengjast líka
óbeint að því leyti að Bohm er gamal-
reyndur Fassbinder-leikari en mynd
Gabrea, Eva í mannslíki, fjallar einmitt um
Fassbinder. Þðtt undarlegt megi virðast er
það kona sem leikur Fassbinder og er það
hin víðkunna Eva Mattes.
hana. Hafa menn gert sér grein fyrir
þessu? Er Kvikmyndahátíð ekki mikils-
verðari en svo að menn reyni að skapa
úlfúð kringum óséðar myndir? Sjálfur seg-
ir Godard að myndin sé sín skírlífasta
mynd enda fjalli hún um skírlífi.
ÖNNUR MIÐ
/ réttarsal.
Úr kvikmynd Wim Wenders „Engin leið tíl baka“. Þessi mynd hlaut gullverðlaun í Feneyjum
Frakkland
Það verður hart lið frá Frakklandi.
Myndin Peningar er eftir hinn aldna meist-
ara og ókrýnda konung franskrar kvik-
myndagerðar Robert Bresson. Strákur í
stelpuleit er eftir Leo Carax en hann er
einhver skærasta vonarstjarna franskra
kvikmynda, 24 ára gamall. Myndin er frá
því í fyrra og fékk þá umsögn á Cannes-
hátíðinni að hún væri athyglisverðust
allra mynda það árið. Frá Frakklandi
kemur einnig gestur hingað, enginn annar
en Jean-Luc Godard. Hann hefur haft
einna mest áhrif allra leikstjóra í kvik-
myndagerð heimsins síðustu 25 ár. Eftir
hann verða sýndar þrjár myndir, Bjargi sér
hver sem betur getur, en hún hefur hvar-
vetna gengið mjög vel, m.a. í Bandaríkjun-
um. Hún heitir Carmen er mjög gódörsk
mynd um hina sígildu Carmen-goðsögn.
Nútímamynd sem gefur goðsögninni líf.
Þá er ótalin Ég heilsa þér María.
MARÍA
Styrr hefur staðið um þessa mynd en
einkennilegt verður það að teljast að fjöl-
margir hafa tekið til máls um hana og
taka enn án þess að hafa séð hana. Mér
skildist í fréttum að páfinn hafi ekki séð
hana áður en hann lýsti yfir vanþóknun
sinni. Hins vegar fékk hún viðurkenningu
kaþólikka á síðustu Berlínarhátíð. Þeir
höfðu séð hana. Samt verðlaunuðu þeir
Af löndum sem eiga fulltrúa á hátíðinni
og ekki eru daglegir viðburðir að kynnast
hér má nefna Júgóslavíu en þaðan kemur
mynd sem heitir því dásamlega nafni
Hvernig ég var kerfisbundið lagður í rúst af
fíflum. Þá kemur mynd frá Kúbu og heitir
Gammurinn en höfundurinn er frá Chile,
Miguel Litten að nafni. Áður hafa verið
sýndar myndir eftir hann á Kvikmynda-
hátíð. Þykir þetta ein besta mynd hans frá
upphafi þar sem saman fara ljóðræn efn-
istök, suður-amerísk frásagnarhefð og
merkilegt sögulegt viðfangsefni, siðustu
dagar Sómósa-stjórnarinnar í Nicaragua.
Aðurnefnd var mynd frá Ítalíu, hin
geysivinsæla Dansinn dunar, og þaðan
kemur einnig Nótt í San Lorenzo eftir Tav-
iani-bræður, þá merku menn. Þrjár mynd-
ir eru spænskar og ein eftir fornvin
Kvikmyndahátíðar Carlos Saura. Það er
Carmen, en efnistökin eru önnur en hjá
Godard eins og við mátti búast. Hér eru
það flamenco-dansarar sem halda uppi
fjörinu. Um spænsku myndirnar verður
fjallað sérstaklega annars staðar. Þá eru
ótaldar myndir frá Ungverjalandi, en það-
an kemur Segðu mér söguna aftur, besta
mynd Mörtu Meszaros til þessa en hana
þekkja menn að góðu frá fyrri hátíðum, og
ennfremur myndir frá Ástralíu, Austur-
ríki og Indlandi og heimildarmynd um
öaráttu Sama.
Það liggur í augum uppi að úrvalið er
mikiö og gott fyrir alla þessa tfu daga í
Austurbæjarbíói.
KRISTfN jóhannesdóttir
1983.
Kvikmyndin „Gullgrafararnir“ var tekin að hluta hér á landi, en þessi mynd er úr henni.
Höfundur er Sally Potter. Myndin er at binni margfrægu leikkonu Julie Christíe í blutverki
sínu í myndinni.
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 18. MA( 1985 1 1