Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1985, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1985, Síða 4
Hlíf Sigurjónsdóttir kom fyrst fram opinberlega þegar bún var 11 ára gömul og lék þá einleik með Sinfóníuhljómsreit íslands undir stjórn Igor Buketoff, en debut-tónleikar hennar voru hjá Tónlistarfélaginu í Reykjavík 1979. Hún hefur marg- sinnis leikið einleik, haldið einleikstónleika og tekið þátt í flutningi á kammertónlist á íslandi, í Danmörku, Svíþjóð, Bandaríkjanna, Kanada, Englandi, Sviss og Frakklandi og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Hlíf var lausráðin í Sinfóníuhljómsveit íslands 1970—1975 og var jafnframt stundakennari við Tónlistarskólann í Reykja- vík 1973—1975. Hún kenndi við Tónlistarskóla ísafjarðar 1981—1983 og var aftur einnig stundakennari við sama skóla 1984—1985. Hún var konsertmeistari íslensku bljómsveitar- innar 1983—1985 og konsertmeistari í hljómsveit íslensku óperunnar 1984. Hlíf Sigurjónsdóttir var nýlega komin heim úr tónleikaferð þar sem hún lék meðal annars í Carnegie Ilall í New York, þegar ég náði tali af henni á Laugarnestanganum, nánar tiltek- ið á heimili móður bennar, Birgittu Spur, sem er ekkja Sigur- jóns Ólafssonar myndhöggvara. Hlíf er næstelst af fjórum systkinum, bræðurnir eru þrír. „Þeir eru allir út um hvippinn og hvappinnt,“ segir Hlíf, þegar ég spyr hana um fjölskylduna og ég kemst að því að tveir þeirra eru tónlistarmenn, og yngsti bróðirinn, Dagur, er í námi úti í Kaupmannahöfn í socialpeda- gogik, sem okkur kemur saman um að sé einhverskonar félags- fræðilegt þroskaþjálfanám. „Óli er sellisti, býr í Kaupmanna- böfn en spilar í Malmö, þar sem Einar Grétar Sveinbjörnsson er konsertmeistari, og Freyr er flautuleikari og spilar með Sinfóníuhljómsveitinni íBiIbao á Spáni. Ég bef ekki séð hann í tvö ár, sá hann síðast um það leyti sem pabbi dó, en við ætlum að hittast í sumar. Hann ætlar nefnilega að hjálpa mér og vinkonu minni við sumarnámskeið uppi í fjöllunum íSviss/‘ LARI / faraldsfæti Viðtal við Hlíf Sigurjónsdóttur Kristín Bjarnadóttir tekur hana tali líf er búin að sýna mér húsakynnin, vinnustofu föður síns og gamla íbúðar- húsið, sem er hluti af því nýja, þannig að innangengt er um glugga á gamla húsinu. Það vissi ég reyndar ekki fyrr en ég var komin í gegn, hélt mig vera að ganga gegn- um lágar gamaldags dyr. Til að kóróna kynnisferðina er mér svo boðið upp á ísa- fjarðarkleinur með kaffinu. Hvers vegna Isafjarðarkleinur, á hún kannski ömmu á ísafirði? „Nei, kleinurnar hafa ekkert með ættar- tengsl að gera, en það kemur hinsvegar í ljós að Hlíf á sterkar taugar til ísafjarðar eftir að hafa verið kennari við tónlistar- skólann þar í tvo vetur. „Ég hef verið með annan fótinn á ísa- firði siðan og kenndi reyndar nemendum þaðan í vetur þó svo ég væri bundin hér í bænum sem konsertmeistari hjá íslensku hljómsveitinni. En kleinurnar úr frystin- um eru eiginlega kabarettkleinur, þvi með- an ég bjó á ísafirði kom upp sú hugmynd að byrja að safna fyrir skólahúsi yfir tón- listarskólann. Þá settum við á laggirnar kabarett, sem hefur verið árlegur viðburð- ur síðan. Þá er hefðin sú að bjóða upp á veitingar og konurnar baka gjarna riflega. Ég mætti á kabarettinn síðast og fékk þetta í nesti, þannig eru þær tilkomnar, frá henni Sigríði, konu Ragnars H. Ragn- ar, skólastjóra. Þau eru frábært fólk. Hugsaðu þér, Ragnar H. er búinn að búa þarna í 40 ár, í þessu litla plássi, eftir að hann kom heim frá Ameriku. Hann hefur aldrei komið út fyrir landsteinana siðan, nema rétt í eina Noregsferð, en hann er hinsvegar einhver sá best lesni maður sem ég hef hitt á ævinni. Það er góð lexía og holl að hitta svona fólk.“ Já, þetta segir Hlíf, sem hefur gert víð- reist og var í samfelldu tónlistarnámi í u.þ.b. tvo áratugi. ÞÁ VILDI ÉG LÆRA Á ÖLL HUÓÐFÆRI Hvernig atvikaðist það að þú valdir að læra á fiðlu? „Ég held það hafi fremur þróast en at- vikast. Ég var fimm ára þegar ég byrjaði i forskóla Barnamúsikskólans, sem núna heitir Tónmenntaskólinn. Þá voru þeir nú með þá reglu að maður yrði að vera læs og skrifandi til að geta haldið áfram í „al- vörunámið", svo ég fékk námshlé i einn vetur. Annars held ég að ég hafi örugglega verið læs, því bróðir minn sem er ári eldri byrjaði í skóla á undan mér og á hverjum degi þegar hann kom heim, þá heimtaði ég að hann kenndi mér allt sem hann hafði lært í skólanum þann daginn. Þannig lærði ég að stafa og var örugglega búin með Gagn og gaman á undan honum, ég er viss um það. En þegar ég svo byrjaði í „alvörunáminu" þá var komið að því að velja sér hljóðfæri. Ég man mig langaði til að læra að spila á gítar, en það var enginn gítarkennari í skólanum. Svo mamma stakk upp á fiðlunni. Ég var svo jákvæð að ég held ég hafi þá helst viljað læra á öll hljóðfæri. Svo gerðist það nú mjög fljótt að ég tileinkaði mér fiðluna, hún varð mitt hljóðfæri, það er ekkert vafamál. Enda komst ég að því að það var svo mikið hægt að læra á hana. Ég hef verið að því síðan. Seinna lærði ég auðvitað á píanó og líka á lágfiðlu, en fiðlan er mitt aðalhljóðfæri." Hverjir voru kennarar þínir hér heima? „Gígja Jóhannsdóttir var fyrsti kennar- inn minn, hún kenndi mér í þrjú ár. Þegar ég byrjaði í Tónlistarskólanum varð Björn Ólafsson kennari minn; ég hef verið mjög heppin með báða mína kennara hér og ég elskaði og dáði þau bæði mikið. Einleikarinn Sem Gleymdist Síðasta vorið í Barnamúsíkskólanum var hún beðin að leika einleik með Sinfón- íuhljómsveitinni, sem hún og gerði, aðeins ellefu ára gömul. „Það var Igor Buketoff, sem var hér til að stjórna tónleikum Sin- fóníuhljómsveitarinnar, og hann bað mig að spila konsert í a-moll eftir Bach, þegar hann hafði hlustað á okkur krakkana spila. Svo var þetta sett upp eins og „happ- ening“ á tónleikunum, ég sat úti í sal og svo var látið líta þannig út að það vantaði einleikara, hann lét ekki sjá sig, svona rétt eins og hann hefði hætt við eða misst af flugvélinni og til þess að geta hafið tón- leikana var kallað fram í sal, hvort einhver gæfi sig fram til að leika einleik á fiðlu. Þá rétti ég auðvitað upp höndina eins og Igor hafði sagt mér að gera. Ég komst að því á eftir að einhverjir trúðu því að ég hefði gert þetta óundirbúin. Þetta var bráð- skemmtilegt og auðvitað var mér vel tekið, þessu litla kríli með fiðluna." Hlíf lauk einleikaraprófi eftir átta ára nám í Tónlistarskólanum. Hvað tók svo við? „Já, það var ’74, ég var nítján ára þegar ég útskrifaðist og fannst mér ekkert liggja á að fara út í heim og eins langaði mig til að læra meira hjá Birni. En hálfu ári seinna veiktist hann og kom aldrei til starfa aftur. Það var sorgarsaga sem ekki verður breytt. En ég fór til Bandaríkjanna haustið ’75 og var í tímum hjá ítala nokkr- um sem heitir Franco Gulli við háskólann í Indiana. Þetta er einn af bestu tónlist- arháskólum Bandaríkjanna og ég var þar í tvo vetur. Síðan fór ég til Toronto í Kan- ada og var þar í tímum hjá Ungverja, Lor- and Fenyves. Það má gjarna koma fram að hann bauð mér ókeypis kennslu, sem bæði kom sér vel fyrir mig og eins það að vissu- lega var í því fólgin viss upphefð. í staðinn greiddi ég bara í styrktarfélag skólans. Hann kenndi við tónlistardeildina í há- skólanum þar og ég var hjá honum í tvo vetur. Þá spilaði ég bæði í skólahljóm- sveitinni og í strengjakvartett sem fór mjög víða, meðal annars í Wigmore Hall í London. Hjá Heimsins Bestu HUÓÐFÆRALEIKURUM Eftir þetta fór ég enn í tveggja ára nám við Listaskólann í Banff, það er í Alberta í Kanada. Banff er þjóðgarður í Klettafjöll- unum, það er svo fallegt þar að ég fæ enn heimþrá þegar ég hugsa þangað. Þetta er dálítið sérstakt nám, ég var þarna einmitt fyrstu árin sem þessi deild starfaði (The New Wintercycle Program of Music). Leið- beinendurnir voru nokkrir af heimsins færustu hljóðfæraleikurum, sem voru þarna til að miðla okkur af reynslu sinni. Það var stórkostlegt að fá að kynnast þeim. Einn af kennurum mínum var Willi- am Primrose, fiðluleikarinn frægi, og ann- ar var Zoltan Szekely, sem var fyrsti fiðl- arinn í gamla Ungverska kvartettinum, sem starfaði í þrjátiu ár. Szekely er orðinn 81 árs gamall og hann kennir enn. Hann var náinn vinur tónskáldsins Béla Bartók, sem skrifaði einmitt Fiðlukonsert nr. 2 og Rapsódíu nr. 2 fyrir Szekely. Þessi gamli fiðluleikari gaf mér innsýn í fortíðina á allt annan hátt en hægt er að fá í gegnum annan og þriðja aðila. Það hefur gerst mikið í tónlistarheiminum á einum mannsaldri og þetta voru mér dýrmæt kynni af tónlistarsögunni." Svo hefurðu útskrifast úr skóla eftir þetta sex ára framhaldsnám ? „Já, mér fannst nóg komið í bráð. Það koma tímar þegar ég vil fá að vera í friði og hugsa málin sjálf. Þegar ég var búin með þetta nám í Klettafjöllunum, vorið 1981, ákvað ég að fara til Evrópu og heim- sækja vini og kunningja í Mið-Evrópu. Það sumar tók ég í fyrsta sinn þátt í námskeið- unum hjá Súsönnu vinkonu minni í Sviss, réð mig sem kennara hjá henni og hef verið þar á hverju sumri síðan. Þetta eru námskeið fyrir unglinga og mjög skemmti- leg að mér finnst, óvenjuleg að því leyti að 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.