Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1985, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.1985, Síða 13
/ fyrrí hluta frásagnar frú Blackburn sagði frá komu leiðangurs- manna til íslands og skoðunarferðum þeirra um Reykjavík og ná- grenni. Verður nú fram haldið frásögn frúarínnar og fjallar þessi síðari hluti um för hópsins til Geysis. íslandsferð frú Blackburn Síðari hluti nokkuð jöfnum hraða, um fimm mílur á klukkustund, hvort sem farið er upp eða niður í móti, um grund eða mó, og það þó hann beri þungt hlass. Hann getur jafnvel þolað enn meira álag, ef þörf krefur. Hann er fús í samleið, en ekki alltaf að sama skapi viljugur einn og er það næg ástæða til þess að leggjast gegn því að flytja slíka hesta til Bretlands til reiðar fyrir börn. Og þó að íslenskir hestar séu litskrúðugir, þá eru þeir alltof alvarlega þenkjandi til þess að geta lært einhverjar kúnstir og eru þar af leiðandi með öllu óbrúklegir í sirkus. Ekkert okkar notaði spora, enda reyndist þeirra ekki þörf. Haldið Af Stað Austur Um SVEITIR Við lögðum af stað frá Tollstöðinni á nákvæmlega tilsettum tíma á brottfarar- daginn. Allir voru í góðu skapi og vildu óðir og uppvægir sýna reiðmennskuhæfi- leika sína með því að geysast af stað á harðastökki. Fyrsta skeiðið datt eitt og annað lauslegt af hestunum og nokkrir söðlar losnuðu, án þess að knapar yltu úr sessi. Öllu var þó bjargað um síðir og ferðahraðinn varð stöðugri og jafnari. Vegurinn var alls ekki slæmur og mætti vel aka um hann í lystikerru, ef slíkur farkostur væri til á íslandi. Það var þoka í lofti. Vegurinn hlykkjaðist yfir mosavaxna hraunbreiðuna og gegnum þokuloftið mátti heyra spóann vella án afláts og öðru hverju grillti í langnefjað kvikindið sitj- andi á steini við vegarbrúnina. Allt þetta skapaði heldur drungalega stemmningu. Brátt létti þokunni og sólin fór að skína. Við námum staðar við á í grösugum dal, sem bar nafnið Seljadalur. Sprett var af hestunum svo að þeir gætu gripið niður á meðan reiðfólkið hvíldist. Sumir sofnuðu, aðrir lituðust um eða snæddu. samlokur, sem höfðu verið útbúnar handa leiðang- ursfólkinu. Einhver hafði haft með sér ferðaprímus og var því lagað te og drukkið með mikilli velþóknun. Sumum fannst sól- in of heit og drógu sig inn í skugga regn- hlífa sinna. Ég tók eftir því að þeir hestar, sem höfðu verið látnir vera með beisli, gættu þess vandlega að stíga ekki í taum- inn, heldur sveigðu höfuðið til hliðar og köstuðu honum frá. Með því að hestarnir fá aldrei korn, og að oft er óhægt að hafa fæðu handa þeim meðferðis, er áningar- staður ætíð valinn þannig að hestarnir fái nóg að bíta og drekka. Áfram lá leiðin yfir grýtta og eyðilega hásléttu, sem virtist aldrei ætla að taka enda, þar til við komum allt í einu að stórri svartri gjá, Almannagjá, sem Duff- erin lávarður hefur lýst svo vel. Aðkomu- leiðin að Þingvöllum liggur niður um lítið Ferðin til Geysis, sem er í 70 mílna fjarlægð frá Reykjavík, hófst klukkan fimm, mánu- dagsmorguninn 1. júlí. Farangur okkar hafði verið sendur kvöldið áður til Þingvalla, sem Englendingar kalla „Thingvalla“, en þar var áætlað að fyrstu dagleiðinni lyki. í farteskinu voru um 50 kíló af soðnu kjöti, ásamt öðrum matar- og drykkjarföngum, sem nauðsynleg töldust. Þar var ennfrem- ur leirtau og eldunaráhöld, tjöld, ábreiður, dýnur fyrir dömurnar og ferðatöskur. Leirtauinu var pakkað niður í kassa, sem hengdir voru sitt hvoru megin á klakk. Fáeinir tebollar brotnuðu þegar einn hest- anna lagði af stað áður en klyfjarnar höfðu verið festar nægilega vel. Ég hafði allan nauðsynlegan farangur, nema kápu og hjaltlenskt sjal, sem ég sendi með vist- unum, í hnakktöskum úr grófu ullarklæði. Töskur þessar hafði ég keypt tveimur ár- um áður í Barcelona. í annarri þeirra hafði ég föt til skiptanna, en góð stígvél og teikniáhöld í hinni. Ekki hallaðist á, enda allt þetta vandlega fest við söðulinn. Ég tók einnig með mér létta regnkápu, en þurfti aldrei að grípa til hennar. Ferðaföt- in voru reiðföt úr sterkum ullardúk og klemmur til að halda uppi pilsinu á göngu; á höfðinu hattur með börðum sem voru nógu stór til að skýla augunum fyrir sól- inni án þess að taka á sig vind. Leiðsögumaður okkar, hinn kunni herra Zoega, hafði útvegað okkur sextíu og fimm hesta til fararinnar. Það er íslensk venja að reikna hverju hlassi tvo hesta, því að íslendingar fara vel með hesta sína og skipta óspart um þegar þeir fara að lýjast. Ég vil taka það fram í þessu sambandi að eftir því sem ég best fékk séð var enginn hestanna meiddur. Enginn þeirra sýndi hin minnstu merki um slæma meðferð. Þeir hrukku ekki undan þegar kyfberinn var girtur og sýndu engin undanbrögð þeg- ar tigið var á bak þeim, eða önnur merki um misbrúkun, sem einkenna reiðskóla- bikkjurnar og móhestana heima. Allir voru þeir vel járnaðir Einn úr okkar hópi, meðlimur í dýraverndunarfélagi, skoðaði hestana vandlega að ferðinni lokinni. Að- eins einn þeirra reyndist vera sár; eftir söðul, sem við áttum. Ég hef aldrei áður ferðast um erlent land án þess að verða vitni að misþyrmingu á dýrum á einn eða annan hátt. Jafnvel heima efast ég um að ekki sæist á hesti eftir 140 mílna ferðalag. Aðeins einn af lausu hestunum heltist og var skilinn eftir á næsta bæ. Hestarnir voru um 12 til 13 þverhand- arbreiddir á hæð, með sterklega, beina framfætur og ávalar lendar; þykkhálsa; höfuð meðalstórt og nokkuð kantað; yfir- bragðið góðlegt. Sterturinn var vaxinn löngum hárum. Faxið var mjög þykkt og klippt eins og flöskubursti; ennistoppurinn klipptur þvert yfir ennið, rétt ofan við augun, ekki ósvipað ríkjandi tísku i hár- skurði ungra kvenna. Flestir voru jarpir eða leirljósir; margir voru skjóttir eða grá- ir, en fáir brúnir eða svartir. Enginn þeirra, sem við fengum til reiðar, hafði dökka mön eftir hryggnum og yfir bóginn, eins og algengt er á hestum í Noregi og í vestanverðum Hálöndum. Allir voru þeir farnir úr vetrarhárum. Ég spurði leiðsögu- manninn hvort þeir yrðu oft veikir eða ættu vanda til að ofkælast. Hann svaraði til að þeim væri aldrei ofgert á reið og væru ávallt sveltir í tvær klukkustundir fyrir notkun og jafnvel lengur ef hraðferð- ir væru í vændum. Og þeir væru ekki brúk- aðir á veturna. Allir hestarnir voru í góðu ásigkomulagi, nema einn, sem virtist út- haldslítill, sérstaklega þegar þess er gætt að á sumrin nærast þeir eingöngu á grasi og á veturna kroppa þeir stöku strá, sem þeir finna á stangli upp úr snjónum. Gott hey er sjaldgæft og gerir ekki betur en að duga kúm og kindum yfir vetrartlmann. íslenska hestinum má ríða á vökrum spretti svo mílum skiptir þannig að hvorki þreytist knapi né fákur. Hann heldur skarð og í gegnum afar þröngt, en grösugt dalverpi, sem er umgirt þverhníptum hömrum, um 100 feta háum öðrum megin og meira en helmingi lægri hinum megin. Þó að leiðin niður skarðið væri hvorki erf- ið yfirferðar né hættuleg vönum hestum, var hún engu að síður brött og grýtt og því eðlileg gætni að stíga af baki á niðurleið, einkum fyrir riddara í þyngra lagi. Og það er sjálfsögð mannúð að teyma hestana þegar farið er upp. Frá brúninni gafst gott útsýni yfir gróna hraunbreiðuna, sund- urskorna af gjótum og umlukta snævi þöktum hæðum. Fyrir neðan okkur beljaði Öxará óg nokkru neðar sást í kirkjuna og prestsetrið. Við hliðina á kirkjunni hafði tjöldum okkar verið slegið upp. Nokkru fyrir aftan kirkjuna er Lögberg; hraun- brekka, sem er nánast aðskilin frá undir- lendinu af djúpri gjá, sem umlykur stað- inn eins og virkisgröf. Gjá þessi er nálega full af tæru vatni; sennilega eru um 20—30 LESBOK MORGUNBLAÐSINS 6. JÚLÍ 1985 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.