Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1986, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1986, Blaðsíða 3
N lesbúk Im1[öI11@@[m!115]1a][ö]1I](I10[8] Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvstj.: Haraldur Sveinsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoð- arritstjóri: Björn Bjarnason. Ritstjórnarfulltr.: Gísli Sigurðsson. Auglýsingar: Baldvin Jóns-' son. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 10100. SERGEJ JESÉNIN Forsíðan er af málverki eftir Sigurð Þóri myndlistarmann og var á sýningu sem hann hélt í Listmunahúsinu í fyrra. Listmunahúsið er einn þeirra sýningar- staða, sem nú hafa lagt upp laupana. Sigurður Þórir er einn hinna ungu og framsæknu í listinni, en myndefnið er gamalt og sígilt: Mannslíkaminn. Það er hluti myndarinnar, sem hér sést. Vetrarnótt Sajór ogsléttur breði, bleikurmáni skín, breitt eryfir landið napurt grafarlín. Drúpir björk af harmi, hvít við fenntan veg. Hver er týndur? Dáinn ? Er það kannski ég? (1925) Samdráttur virðist hafa átt sér stað í listviðburðum frá því sem verið hefur; sýningarstaðir myndlistar hafa lagt upp laupana, sýnt er aðeins í öðrum salnum á Kjarvalsstöðum, enginn starfandi, íslenzkur mynd- listarmaður sýnir í Norræna húsinu og samdráttur hefur orðið í starfsemi íslenzku óperunnar. Gísli Sigurðsson virðir fyrir sér ástandið. Kvislingar hafa þeir verið nefndir eftir Kvisling hinum norska, sem tóku sér stöðu með óvininum gegn föðurlandi sínu í síðustu heimsstyijöld. Einn þeirra var Bret- inn William Joyce, venjulega kallaður Lord Haw- Haw. Frá lífi hans og örlögum segir Illugi Jökuls- son. Sértrúar- flokkar hafa verið vanræktir í menningarsögu okkar, enda hefur þeim orðið minna ágengt en í nágrannalönd- um okkar, segir Pétur Pétursson, doktor í trúarlífs- félagsfræði í Lundi í Svíþjóð. Hann skrifar samtöl við tvo íslendinga úr Hvítasunnusöfnuðinum sem flentust í Svíþjóð. Haust Annir búnar, berir runnar, berstfrá vötnum þoka, raki. Einsog hjól á hægum gangi h verfur sól að fjallabaki. Mókir vegur, vaðinn, grafinn — veithann samt, að stundir líða ogað nú er örskammt orðið eftírgráum vetri að bíða. Ég hef sjálfur séð hér útí seint um kvöld, ogskrýtið nokkuð: rauðan mána, sperrtan, sprækan, spenntan fyrirsleðann okkar. (1917) Geir Kristjánsson þýddi úr rússnesku Sergej Jesénín (1895-1925) er eitt af þekktari Ijóðskáldum Rússa á þessari öld. Hann var af bændafólki kominn, og lýs- ingar á rússneskri náttúru og sveitalifi eru veigamikill þáttur í Ijóöagerð hans. Um tíma var hann giftur danskonunni frægu, isadóru Duncan, og ferðaðist með henni, m.a. til Ameriku. Hann batt sjálfur enda á líf sitt í Léningrad 1925. Þýðandi. B Almenningsálit er merki- legt fyrirbrigði. í ís- lenskri orðabók segir að það merki skoðun almennings. Þá veltir maður því fyrir sér hvemig til geti verið einhver sameiginleg skoðun alls þorra manna á hverjum tíma. Hvar og hvemig myndast sú skoðun? Með hæfilegri einföldun má segja að það sé tvennt sem myndar það sem kallað er almenningsálit. Annarsvegar aðstæður og umhverfí og hinsvegar skoðanamyndandi einstaklingar og hópar, nú orðið gjaman með tilstilli fjölmiðla. I því sambandi er athyglisvert hversu umhugsunar- og gagn- rýnislaust við látum teyma skoðanir okkar í hinar og þessar áttir, eftir geðþótta og hagsmunum einhverra annarra en okkar sjálfra. Líkast til er sú tilhneiging ræktuð á heimili og í skóla að maður eigi að fylgja hópnum. Þeir sem skera sig úr eru öðruvísi og það fylgja því alltaf óþægindi að vera öðruvísi. Og hver vill ekki vera laus við óþægindi? Oft er líka skemmtilegast og farsælast að fylgja hópnum í skólastarfi og það er meinlaust að fylgja skoðanamyndandi þátt- um eins og tísku og þess háttar. En kannski temur maður sér samtímis andvaraleysi á Almenningsálit öðrum sviðum og kjarkleysi við að standa gegn ríkjandi skoðun. Lítið atvik eða stutt samtal opnar oft augu manns alveg óvænt fyrir hlutum, sem eru kannski alveg óskyldir umtalsefninu. Þegar ég var unglingur komst ég á snoðir um að einn vina minna hafði hálfgerða skömm á að dansa, þótt hann hefði þá skoðun sína ekkert í hávegum. Hann sótti dansstaði eins og hver annar, dansaði ef svo bar undir, var félagslyndur, sjálfsörugg- ur og ófeiminn. Ég spurði hvað hann hefði á móti dansi. „Ekki neitt, — fyrir aðra,“ sagði hann. „En þegar ég sé fólk gera sömu hreyfmgar aftur og aftur eftir hljómfallinu, stansa þegar lagið er búið, bytja upp á nýtt þegar hljómsveitin gefur tóninn, þykir mér eins og ég sé að horfa á hóp sem er ekki sjálfrátt meðan hann er á dansgólfinu. Þetta er einhvern veginn eins og að vera fjarstýrt. Og þótt ég dansi stundum, fyrirverð ég mig alltaf hálfvegis fyrir að vera í þessari kös sem öll hreyfir sig í sama takti eins og maður sé ekki einstaklingur lengur.“ Þetta samtal breytti engu um mína skoð- un á dansiðkun, en það vakti mig til vitund- ar um að skoða daglegt atferli og ósjálfráð viðbrögð við ýmsu sem fyrir ber, eins og ég væri að sjá það eða heyra í fyrsta sinn. Maður staldrar alltof sjaldan við og spyr sig, hvort viðbrögð manns séu sprottin úr eigin barmi, eða hvort maður lætur bylgjuna sem yfir flæðir hveiju sinni bera sig áfram og skola sér á land einhvers almenningsálits eða almenningshegðunar. í vinsælli þáttaröð sem sjónvarpið er að sýna, Blikur á lofti, kemur almenningsálitið til tals milli söguhetjunnar og háttsettra nasista. Einn hinna síðamefndu segir eitt- hvað á þá leið, að almenningsálit sé ekki eitthvað sem gerist af sjálfu sér, og það sé hreint ekki myndað af almenningi. Þetta er líklega hárrétt. Fjölmiðlar almennt, auglýsendur og stjórnmálamenn eru meðal þess sem helst er talið skoðanamyndandi. Nokkuð er farið að bera á „stjömu“stjómmálamönnum og „stjömu“blaðamönnum hérlendis. Þetta em einstaklingar sem sækjast lejmt og ljóst eftir að vera sjálfír í sviðsljósinu, annað hvort í eigin persónu eða í tengslum við mál sem þeir hafa gert að sínum. Þessir einstaklingar nota aðstöðu sína og fjölmiðla til hins ýtrasta og það gerist merkilega oft, að þeir fá almenningsálitið til liðs við sig í málum sem varða almenning minna en flest annað sem er til umfjöllunar og unnið er að á opinbemm vettvangi. I nútíma fjölmiðlaþjóðfélagi fara völd og áhrif blaðamanna vaxandi. Þessi völd em vandmeðfarin og ekki allir sem kunna með þau að fara. Greina má vaxandi tilhneigingu í þá átt að gera skoðunum blaðamanna sjálfra hærra undir höfði en ýmissa annarra. Einnig þykir manni stundum brydda á því, að sumir einstaklingar innan þessarar mikil- vægu stéttar líti á sig sem siðgæðisverði (og þá út frá eigin skilgreiningu á siðgasði) fremur en hlutlausa fréttaskýrendur. Við það er út af fyrir sig ekkert að athuga í ftjálsu landi með ftjálsa „pressu", en al- menningur þarf að gera sér ljóst hvenær verið er að nota hann og í hvaða tilgangi, þegar hann tekur þátt í að mynda það sem kallað er almenningsálit. Það er nefnilega enginn „stikkfrí". JÓNÍNA MICHAELSDÓTTIR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15. FEBROAR 1986 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.