Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1986, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1986, Blaðsíða 9
konar viðleitni, sem bæði var ný af nálinni og virtist lofa góðu. Sýningarsal við Vestur- götuna, sem hópur ungra listamanna stóð að, hefur líka verið lokað. Allt virðist þetta bera vott um samdrátt og hefur ekkert komið í staðinn utan nýtt sýningarhús á Seltjamarnesi, Listver, sem opnað var síðast í nóvember með sýningu Sveins Bjömssonar. Að frátöldum Kjarvalsstöðum og Norr- æna húsinu em fimm sýningarstaðir í Reykjavík og má heita, að sýningar séu þar að staðaldri frá febrúarbyijun og framá vor; einnig á haustin og aíloft þar á milli. Fegursti sýningarsalur borgarinnar er að margra dómi í Listasafni ASÍ, en listamenn hafa verið mjög óhressir með dræma aðsókn þar. Virðist erfitt að fínna skýringu á því, nema láðst hafí að auglýsa staðinn svo sem með þarf. Þegar þetta kemur á þrykk, verður sýningu Gunnars Amar að ijúka. Um miðjan febrúar opnar Jónas Guðvarðar- son skúlptúrsýningu, í marzbyijun hefst þar sýning Vilhjálms Vilhjálmssonar á málverk- um og pastelmyndum og síðar í sama mán- uði munu þeir Steinþór Steingrímsson mál- ari og Sverrir Olafsson myndhöggvari sýna saman. í apríl er ljósmyndasýning: World press photo, og síðar í apríl er fyrirhuguð málverkasýning Tolla, sem nýlega var kynntur i Lesbók. Síðast í mai er á skránni í Listasafni ASÍ yfírlitssýning á verkum Tryggva heitins Magnússonar. Viðburðalítið verður í sýningarsalnum á Vesturgötu 17, sem Guðni Þórðarson stend- ur að ásamt Listmálarafélaginu. Nafnið: „Gallerí íslenzk list“ er óþarflega hallæris- legt og þarf að finna annað betra. Þar stóð sýning Braga Asgeirssonar í desember, en um þessar mundir er gerð sú undantekning, að fjórir listamenn sýna þar saman og eru ekki félagar í Listmálarafélaginu. Þetta er ungt fólk og óþekkt, nýkomið úr fram- haldsnámi í Hollandi og ennþá eitt dæmið um samsýningar hinna ungu. I Háholti, sýningarsal Þorvaldar Guð- mundssonar í Hafnarfírði, hefur ekkert komið upp frá því Kjarvalssýningu Þorvald- ar lauk. Af öðru, sem um er vitað á skrif- andi stundu má neftia sýningu Halldórs Bjöms Runólfssonar í Nýlistasafninu seinni- partinn í marz og sýningu Gunnars Kristins- sonar á sama tíma i Asmundarsal. Halldór Bjöm er starfandi listiýnir og hefur stundum skrifað í Lesbókina, en Gunnar hefur numið og starfað í Þýzkalandi og Sviss og bæði lagt stund á myndlist og músík. Enn er ótalinn sýningarsalurinn Gallerí Borg, sem rekinn hefur verið með myndar- brag samhliða listaverkasölu og uppboðum. Eins og annars staðar hefur ríkt þar milli- bilsástand í svartasta skammdeginu. Með hækkandi sól sýndi Kristín Þorkelsdóttir vatnslitamyndir og síðan má nefna sýningu Hrings Jóhannessonar, sem hefst 20. febrú- ar. Vatnslitamálarinn Gunnlaugur Stefán Gíslason er annar í röðinni í marzbyijun og síðan er fyrirhuguð samsýning nokkurra veflistarkvenna. Af öllu þessu má sjá, að í Norrœna húsinu eru engar sýningar í vetur, sem innlendir, starfandi myndlist- armenn standa að og eru það veruleg umskipti frá þvi sem áður var. Eini stór- viðburðurinn þar verður sýning á verk- um Edvards Munch í vor. Myndin: Dans lífsins eftir Munch. árum hafa íslenzka hljómsveitin og íslenzka óperan bætzt við það sem fyrir var; hvort tveggja baráttuglöð bjartsýnisfyrirtæki, sem rekja má til manna, sem ekki láta sér nægja að tala um hlutina: Guðmundar Emilssonar hljómsveitarstjóra og Garðars Cortes söngv- ara. Það er sorglegt ef ekki reynist grund- völlur fyrir þessi nýju menningarblóm, en jafnframt næstum því ótrúlegt, að markað- urinn hér sé nægur fyrir svo ríkulegt fram- boð á listviðburðum. Að minnsta kosti virð- ist reyndin sú, að þrautalendingin verði að leita á náðir ríkisforsjárinnar Islenzka óperan hefur farið glæsilega af stað miðað við allar aðstæður og aðstand- endur hennar — og áheyrendur — hafa átt sínar eftirminnilegu stundir í Gamla bíó. Síðast hefur íslenzka óperan fært upp Leðurblökuna og var reynt að blása lífí í hana eftir jólin með gestasöng og kampavíni í hléi. En það dugði aðeins í fáeinar sýningar og síðan er og verður hlé í langan tíma, eða þar til Trúbadúrinn, E1 Trovatore, kemur þar á fjalir undir vor. Hitt leikhúsið nýtur góðs af þessari lægð hjá íslenzku óperunni og hafði eftirminnilegar sýningar á Litlu hiyllingsbúðinni í fyrra og á Rauðhóla- Ransí núna. Einn af frammámönnum íslenzku óper- unnar, sem undirritaður átti orðastað við, fór ekki dult með þá skoðun sína, að þennan samdrátt í starfsemi íslenzku óperunnar mætti rekja beina leið til nágrannans við Hverfísgötu: Þjóðleikhússins og að þar hafí beinlínis verið gert átak til að klekkja á hópnum í Gamla bíói með sýningunni á Grímudansleiknum, þar sem alheimssöngv- arinn okkar var fenginn til liðs — með góðum árangri að því er virðist. Að vísu er hægt að benda á lagabókstaf þessu til réttlæting- ar: lögin um Þjóðleikhús kveða á um óperu- MeðjöfnuSkriði Stóru leikhúsin sigla með jöfnu skriði og lítill munur er þar á framboði frá ári til árs. Þar er alltaf eitthvað á boðstólum; aðeins er misjafnt, hvað ráðist er í stórt. í fyrra var metár í aðsókn hjá Þjóðleikhúsinu og hefur verið góð í vetur einnig. Hjá Leik- félaginu er yfirleitt selt á margar sýningar fram í tímann á Land míns föður — nægi- lega margir muna stríðsárin svo vel, að þau verða forvitnilegt yrkisefni og Kjartan Ragnarsson er búinn að skapa sér sess sem höfundur. Hjá Leikfélaginu er einnig að koma á fjalimar leikgerð Bríetar Héðins- dóttur af Svartfugli Gunnars Gunnarssonar og gæti það fengið góða aðsókn einnig í ljósi þess, að íslenzk verk virðast vinsælust í leikhúsum. Eitt slíkt er nú komið upp í Þjóðleikhúsi: Upphitun eftir Birgi Engil- berts. Annar nýgræðingur er ekki þar og kannski er það meira að segja hörkugott, ef hægt er að frumflytja eitt gott innlent verk í Þjóðleikhúsinu og annað í Iðnó á ári hveiju. Að öðru leyti fer Þjóðleikhúsið gengnar slóðir með uppfærslu á Villihunangi Tsékovs, Deiglu Arthurs Miller og Ríkarði III eftir Shakespeare. Um þetta er annars ekki ástæða til að fjölyrða hér; enginn samdráttur' virðist eiga sér stað hjá hinum gamalgrónu leikhúsum okkar og það er vei. Hjá litlu leikhópunum er síður á vísan að róa; yfírleitt er reksturinn eintómt basl, sem borið er uppi af áhugafólki í hugsjóna- vinnu. Hitt leikhúsið, sem kýs að neftia sig svo, hefur verið heppið með samastað og verkefnaval það sem af er. Alþýðuleikhúsið hefur aftur á móti verið í húsnæðishraki, en verið bjargað á þurrt land í vetur í austursal Kjarvalsstaða, sem er umdeilanleg ráðstöfun og mjög hvimleið í augum margra myndlistarmanna, því húsið er byggt fyrir myndlist og alls ekki fyrir leiklist. I leiklistinni er ekki neinn samdrátt að sjá. Stúdentaleikhúsið virðist að vísu í ein- Of margar samsýningar ungs fólks og of margar smásýningar virðast hafa dregið úr áhuga sýningargesta, sem gengur erfíðlega að muna nöfnin á ttllum þeim skara ungra myndlist- armanna, sem komið hafa fram uppá síðkastið. Nú er að sópa gólfíð, Megas. Þessum sýningarsal við Vestur- gtttu, sem hópur af ungu fólki stóð að, hefur nú verið lokað. Þegar Hólmfríður Karlsdóttir Iék á steðja á Vínartónleikum Sinfóníunnar í janúar, var húsfyllir í Háskólabíói, en því miður hefur aðsókn heldur farið dvínandi á tónleikum í vetur, hvað sem veldur. talsvert framboð er á myndlistarsviðinu þrátt fyrir samdrátt og fækkandi sýningar- staði og ugglaust munu myndlistarunnendur eiga fullt í fangi með að fylgjast með því öllu. Lægð Hjá íslenzku ÓPERUNNI Ekki hefur framboðið á tónlistarýriðinu verið minna en í myndlistinni. Á áfðustu flutning — trúlega vegna þess að löggjafínn hefur viljað tryggja með því, að landsmenn færu ekki með öllu á mis við óperuflutning. Það er líka ljóst, að einungis á stóra sviði Þjóðleikhússins er hægt að færa upp óperu svo vel sé. Nú mun ákveðið í Þjóðleikhúsinu að ráðast í Toscu að hausti, sem er út af fyrir sig gott og blessað, en verður varla til að auka þeim bjartsýni, sem vilja að Is- lenzka Operan lifí. Vonandi gerir hún það. En það er afskaplega vafasamt og raunar ótrúlegt, að tvær stórar og dýrar óperusýn- ingar geti blómstrað samtímis þegar tekið er mið af öllu öðru, sem jafnframt er boðið uppá í leikhúsum. hverskonar hvfldarástandi, en Reykjavíkur- sögur Ástu hafa verið fluttar á Vesturgöt- unni í staðinn og Revíuleikhúsið flytur Skottuleik Brynju Benediktsdóttur. Meira að segja Hafnfírðingar eru komnir á kreik með Fúsa froskagleypi, „og aldrei var því um Alftanes spáð, að ættjörðin frelsaðist þar“. Minnkandi Aðsókn A tónlistarsviðinu standa Sinfónfan og Tónlistarfélagið að stöðugu framboði á list- viðburðum og er víst óhætt að segja, að enginn samdráttur sé á framboðinu. Sin- fónían hefur meira að segja boðið uppá röð helgartónleika, sem fram fara á laugardög- um, svo og sérstaka stjömutónleika. Aður en það kom til, fyrir einu eða tveimur árum, var æði oft húsfyllir í Háskólabíói á tónleik- um Sinfóníunnar, en mér virðist nú, að aðsóknin hafí verið minni í vetur. Það bendir til þess, að helgartónleikum og öðmm auka- tónleikum sé einfaldlega ofaukið og að tón- listarunnendur hafí annaðhvort ekki efni á svo þéttri aðsókn, eða þá að offramboð valdi þreytu og áhugaleysi. Forráðamenn Sin- fóníunnar verða að minnast þess, að ýmis- legt annað er í boði eins og framanskráð upptalning ætti að gefa hugmynd um og kannski vill fólk fara stöku sinnum í bíó, í leikhús, á sýningar og aðra konserta, sem nóg er af. Betra er að halda færri sinfóníu- tónleika fyrir fullu húsi en sperra sig út fyrir markaðinn. Fari aðsókn dvfnandi af einhveijum ástæðum, er svarið áreiðanlega ekki fólgið í því að fjölga tónleikum — heídur að bæta efnisskrána.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.