Lesbók Morgunblaðsins - 15.02.1986, Page 14
MENNINGARVERÐLAUN
KVÖLDBLAÐSINS
Smásaga eftir Elísabet Brekkan
enningarverðlaun kvöldblaðsins
voru veitt í gær. Skál, Abraham!
Blaðamenn ryðjast að skáldinu.
Hvemig gaztu skrifað svona
bók?
Hljóðnemar á lofti. Krish
krash flash, ljósmyndavélar í
höndum myndasmiða glóa.
Ja, hm, jam, við listamenn getum nú ekki svarað öllum
spumingum; lítið á verkin.
ísak hlaut myndlistarverðlaunin.
Tárin renna í stríðum straumum niður ijóðar kinnar.
Verkið, anddyrisskreyting nýja Seðlabankans; „Bömin
og bærinn", talar sínu eigin máli.
Tónlistarverðlaunin, G-lykill í gulli kremst í lófa Re-
bekku Rakel.
Hóteleigandinn, Sívert, gleðst, býður Saki. Skáldin
skála með skáldinu, síðan verða þau að hverfa heim eða
út í bæ, því að dinnerinn er aðeins ætlaður vinningshöfum
og fjármögnumm. Myndataka undir borðhaldi er einka-
eign kvöidblaðsins. Þó það nú væri, þetta er þó þeirra
uppákoma. Litla konan, sem gengur um beina, framleiðir
gijótmulningsmyndir í frístundum. Hún horfír á hafíð
þreyttum augum. Þetta haf, sem hrifsar til sín fullt af
sonum. Hún þeytist um með þunga bakka af veigum.
Rut, Jóhannes og Ezra svolgra í sig Saki. Þau spjalla
um síðustu hátíð hinná eðlu lista. Frumasóki er betri en
Mirel, ísak púar reyk yfír þjóninn. Þar sprakk loftbólan!
Rebekka Rakel hallar sér að eiginmanni sínum, Stavros.
Mirel var bekkjarbróðir hans í kúnstakademíunni í Prag.
Léttur bömmer. Leikkonan Lea brosir breytt. Lyftir þaliu,
fjörugrjótsstyttunni, upp að andliti sínu. Abraham rekur
hnefann út í loftið. Ljósmyndarar eru nú að verða jafn
fullir og vinningshafar.
Hvar eru allir arkitektamir?
Stavros er seztur. Hann er fótaveikur.
Sívert hóteleigandi heldur smátölu um erfíðleika föður
síns við að fá fávísan pupulinn til þess að éta svínakjöt.
Myndhöggvarinn Adam, 43 ára grænmetisæta, er annars
hugar. Rebekka Rakel strýkur austurþýsk læri eigin-
manns síns. Flestir setjast. Þjónar bera fram svínamúffur
og austurrískar hvítlaukspylsur. Skáldinu verður óglatt.
Maginn er ekki sem skyldi. Hátíð er gengin í garð. í
holinu er hægt að horfa á sjónvarpið.
Enginn verður óbarinn biskup. Konan er eyland, ekkert
jafnast á við sultu. A hjólaskautum bruna auglýsingaleik-
arar um Stúdíó. Vinningshafar hlussast oní leðursófa.
Andlit breið sogast að skjánum.
Skáldið þarf að pissa. Gengur úr sal og gegnum lobbí-
ið. Minniháttar nýgræðingar stökkva upp tii og frá úr
sætum sínum í leiknum. Við vorum ekki að horfa á sjón-
varpið".
Abraham hlaut menningarverðlaun skálda. Einn úr hópi
allra skálda var hann valinn til þess að ganga með geir-
fuglshöfuð í leðurbandi um hálsinn fram að næstu hátíð.
Geirfuglinn tifar á þvölu bijóstinu. Skáldið þarf að gubba.
Geirfuglinn, geirfuglinn, hvað verður um geirfuglinn?
Eftirrétturinn, desertinn, tími er kominn fyrir hið sæta.
Matreiðslukonur hópast inn með logandi ístertur,osta-
bakka og kotasælu í litlum dollum. Ljósin slökkt, iúsíuhá-
tíð listanna lekur yfír borðið. Vinningshafar karlkyns
girða niðrum sig í skjóli dúka, ropa oní hálsmál sín og
fínna, hvemig magasýrur þyrlast upp í hálsinn.
Líkjörinn flæðir yfír borðin. Unaðsleg „fellesspisning".
Hver kvakar inn í annars eyra. Jóna fer úr skónum
frammi í eldhúsi. Ökklamir eru bólgnir. Hvar eru bömin?
Hún hringir heim til bamanna, unglinganna, enginn
svarar. Skáldið blæs í lúður. Stjarfír bíða nýgræðingar
eftir sannleikskomi.
Kokkurinn í eldhúsinu er eitthvað fumkenndur. Stífnar
upp í annarri hendinni. Reynir með hinni að sæta hjartað
úr bijóstinu. Hnígur niður í fítugt gólfíð. í fatahenginu
situr Salvör með mítrimmaða kollu.
Aron umhverfísverðlaunahafí rís úr sæti. Skolar smjatt-
andi niður sætum veigum.
„Við emm hér saman komin í kvöld, til þess að fagna
velgengni kúnstarinnar. Þrátt fyrir geldingahnappa
heimsmenningarinnar tekst okkur að stimulera okkar fólk
til fantasíu. Arrabal reit um riffílbera beggja vegna
skotgrafanna, en við fáum þá til þess að syngja saman
„soft songs" á máli negranna."
Rebekka Rakel veinar háa C-ið. Fagnaðarlæti gesta
ætla enga endi að taka. Stavros skilur ekki allt, þrátt
fyrir íjögurra ára dvöl í landinu, en ber þó saman lófum
af áfergju. Ljósin tendrast eitt af öðm.
Sívert eigandi er horfínn. Gamanið er búið. Hin venju-
lega partýleit hefst. Guði sé lof fyrir skáldin, sem bíða
í næsta húsi, húsi kvikmyndaframleiðandans, sem dó
nakinn á Slysó og fékk nafnspjald á stómtá vinstri fótar.
Fyrrverandi fegurðardís alheims læðist inn á kvenna-
klósett. „Mér fínnst svo gasalega eðlilegt, þegar fólk
rembist." Rebekka Rakel frussar. Svívirðing hennar nær
hæðum í dórískum tóntegundum. Fegurðardísin læsir sig
inn í bás sínum og bíður eftir piltung þeim, er hún hefur
ætlað sér fyrir kvöldið. Rebekka Rakel tryllist í fataheng-
inu. Gefur út vel valda yfírlýsingu um það hneyksli, að
plebeiisminn geri innrás á aritolum. Stavros bíður í leigu-
bíl fyrir utan. Hann er þreyttur, fótaveikur og þráir að
komast í bólið, þrátt fyrir uppákomur heimamanna. Hann
er stundum hissa á því, að það skuli vera sama fólkið,
í nákvæmlega eins partýum. Um síðustu helgi ræddi
hann við fíðluleikarann og eiginkonu hans. Eiginkonunni
varð fótaskortur og lenti með höfuðið inni í cellói. Tvöfald-
ur skaði.
Rebekka Rakel sendir skilaboð í leigubílinn. Stavros
fer einn heim til tengdaforeldranna. Þau drekka saman
ákavíti og spila manna.
Fegurðardísin læðist út í holið og verður hluti af hópn-
um, sem er að koma sér saman um partý. Jeremías vill
ekki, að Adam komi til kvikmyndaframleiðandans. Sólin
getur skyggt á tunglið.
Elisabet Brekkan býr í Svíþjóð ásamt eiginmanni sínum, Þor-
valdi Friörikssyni, fornleifafræðingi, sem oft hefur skrifaö í
Lesbók. Elísabet er leiklistarfræðingur og starfar sem leikstjóri
í Gautaborg. Hún hefur auk þess samið leikrit og Ijóð og tvö
leikrit hennar hafa verið flutt í Gautaborg. Smásaga eftir hana
var valin til birtingar I árbók ungra skálda I Sviþjóð, sem út
vargefin 1981.
IngólfurJónsson
frá Prestsbakka
Skóla-
mynd
Tileinkað Leifi Breiðfjörð
Löngu liðnir dagar
í Laugamesskólanum
rifi'ast upp fyrirmér
öðru hvoru
erég, kennarinn,
sé andlit bamanna
á örhraðri mynd
af skólastofu.
Eitt bamanna
erdrengur
meðóvenju þykkarhendur
og úfinn hárlubba
og ekki fylgist hann
alltaf vel með,
því hendurhans
hafa ávallt fólginn
blýant íannarri
hvorri greipinni.
En árin liðu
í Laugamesskólanum
sem og annarstaðar
ognú grefurþessi drengur
ginnhelg myndverk
í eitilhart gler
fyrir íslenskar kirkjur
ogerlendar.
Ingólfur Jónsson hefur fengizt við
ritstörf og yrkingar. Hann býr í
Reykjavík.
Jakob S. Jónsson
ítakt
við
Þegar vfxlamir í taugakerfinu
eru komnir í eindaga
rifjaégupp
dægurlagatextann áhyggjulausa
Eg vildi aðég væri einsog þú
og vakaðgæti bæði daga ognætur
Ogéghleyp til góða læknisins
sem skrifar út lyfseðil
Eftir það er ég á áhyggjulausu
amfetamínflippi
og vaki einsogþú bæðidaga ognætur
búinn að framlengja í taugakerfinu
og bíð næsta eindaga
Viltu með mér vaka
ínótt og
ínótt og
ínótt og
. . . ?
Einka-
mál
Karlmaður
fæddur og uppalinn
óskar eftir kunningsskap
við konu
með samskonar uppruna
og hjónaband fyrir augum
Algjörri þagmælsku heitið
á kvöldin horfum við bara
á sjónvarpið
Höfundurinn er búsettur í Stokk-
hólmi.