Lesbók Morgunblaðsins - 20.09.1986, Blaðsíða 8
Úr listasafni
Landsbanka
fslands
nokkrar freskur um sjósókn og fiskverkun,
— sennilega til jafnvægis við sveitalífsmynd-
ir Jóns.
Það var hinsvegar hrapallega slæmur
staður, sem Kjarval var valinn, og hafa
myndir hans, svo frábærar sem þær eru þó,
, mestan part farið fyrir ofan garð og neðan
hjá þeim, sem erindi eiga í bankann. Um
þessi myndverk verður fjallað síðar, þar sem
ekki eru möguleikar á litprentun í bili til
■ viðbótar við það sem rúmast hér.
Nokkuð hefðbundið er í stofnunum og
I stórfyrirtækjum, að röð mannamynda sé í
; fundarsal; venjulega af stjómarformönnum,
forstjórum og í bönkunum af bankastjómm.
r Landsbankinn á að sjálfsögðu mörg slík
verk, flest mjög hefðbundin í þá vem, að
[ maðurinn situr í stól og það er máluð af
honum bijóstmynd, þar sem hendumar sjást
í einnig. Myndin af Bimi Kristjánssyni, sem
f áður er á minnzt, er kannski merkust í
þessari röð, en fleiri ágæt portret er þar
að sjá, — til dæmis myndina, sem hér er
prentuð eftir Gunnlaug Blöndal og er af
LudvigE. Kaaber bankastjóra, 1878—1941.
Þessi Blöndalsmynd er framúrskarandi og
r einnig mynd Sigurðar Sigurðssonar af Emil
Jónssyni ráðherra og bankastjóra.
Af stórverkum, sem ber fyrir augu í af-
' greiðslusölum bankans, em sérstaklega
' minnisstæðar abstraktmyndir Jóns Engil-
berts í Múlaútibúi og í útibúinu á Laugavegi
77. Báðar sýna vel hvílíkur afburða málari
Jón Engilberts var; jafnvígur á fígúratífa
list og abstrakt.
Streitan og hraðinn í nútíma lífi lands-
manna er vel túlkuð í stórri mynd Einars
Hákonarsonar í Vegamótaútibúinu og ró-
semin í skauti náttúmnnar á sama hátt vel
Eiríkur Smith: Frá Hellnum, 1981.
Finnur Jónsson: Heim úr róðri, 1981.
Jón Engilberts: Sól yfir íslandi, 1967. Myndin er í afgreiðslusal á Laugavegi 77.
fram reidd í stórri mynd Eiríks Smith í
Breiðholtsútibúi. Sú bygging er annars tal-
andi tákn um það, hvernig arkitektum tekst
nánast að koma í veg fyrir að hægt sé að
prýða hús með listaverkum.
Þeir Jóhann Ágústsson og Sigurður K.
Árnason lögðu á það áherzlu í samtali við
Lesbók, að listaverkakaup bankans væm
ekki með það fyrir augum, að verkunum
væri síðan staflað í geymslur, heldur væri
lagt kapp á, að þau væm höfð uppi, þar
sem þau geti orðið bæði starfsfólki bankans
og viðskiptavinum hans til yndisauka.
GS
Emil Jónsson, ráðherra og bankastjóri í
Landsbankanum '57—'61. Portret eftir
Sigurð Sigurðsson.
8