Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Page 4
Þ J w 0 M 1 N J A R
Ljósmynd/H.G.
Þessi ílát eru kölluð engjafötur eða engjaspennur og voru
notuð til að færa verkafólki mat á engjar á fyrri hluta ald-
ar, eða á vinnustaði í þéttbýli. Með var gjarnan kaffiflaska
í sokk. Eins og sést á myndunum er um að ræða þijár skál-
ar sem eru spenntar niður á tvo arma þannig að botn efri
skálar er spenntur ofaní þá næstu fyrir neðan og myndar
þétt lok. í einni skálinni voru kannske kjöt og kartöflur,
súpa í annarri og brauð í þeirri þriðju. Og efsta lokið er
svo diskur sem gat á ýmsan hátt nýst við máltíðina. Einnig
var algengt að nesdsíiáí áf þQSSar' væru tvíhólfa.
Sykurtangir á vegg í Reykjasafni, Hrútafirði.
Ljósm./H.G.
EFTIR HALLGERÐI
GÍSLADÓTTUR
iiiiif'i ■
Sykurskeri frá Síðu í Refasveit á Reykjasafni.
Liósm./H.G.
Gömul kaffikvörn norðan
úr Húnavatnssýslum, hol-
lensk að uppruna. Þessar
kvarnir munu enn vera í
framleiðslu þar úti.
megi með fullum rétti segja að ýmsar nýj-
ungar í eldhússtörfum hafí haft meiri áhrif
á líf kvenna en aðrar sem hærra hefur ver-
ið gert undir höfði í mannkynssögunni.
I vor er fýrirhugað að opna sýningu á
Þjóðminjasafni um eldhús og mat í gamla
daga. Þjóðminjasafn er tilfinnanlega fátækt
af hlutum sem tengjast þessari atvinnu-
grein, sérstaklega þó minjum um þá hröðu
þróun sem átt hefiir sér stað í eldhúsum
tuttugustu aldarinnar. Enn eru konur á lífí
sem hafa matbúið í hlóðaeldhúsum. Og þær
sömu nota kannske núna mínútugrill og
örbylgjuofn í eldhúsinu sínu. Undirrituð sem
hefur tekið að sér að draga föng til þessar-
ar sýningar lýsir hér með eftir eldhúsáhöld-
um eða öðrum áhöldum sem tengjast
matartilbúningi, og upplýsingum um slíka
LJósm./H.G.
Lítill kútur (rúml. 12 smá hæð), svokall-
aður „legillHann er girtur fjórum
trégjörðum og í öðrum botninum á
honum er gat til að tappa af honum.
Tvibytnur af þessu tagi voru oft notað-
ar undir sýru á engjar og drykkurinn
svo blandaður á staðnum líkt og þegar
menn nú hafa með sér óblandaðan djús
í ferðir og blanda í lækjum þar sem
áð er. Sýrublandan var helsti svala-
drykkur íslendinga um aldir. Notuð var
staðin skyrmysa sem var oftast blönduð
í hlutföllunum einn á móti ellefu; tólft-
arblanda var slíkur drykkur kallaður.
Langflestar konur hafa
starfað meira og minna
að matseld á öllum tíma-
bilum íslandssögunnar.
Það vinnuframlag hefur
lítt verið skráð og mun
seint fullmælt. Enn þann
dag í dag tel ég fátítt að
stúlkur fari úr foreldrahúsum án þess að
hafa fengist eitthvað við matreiðslu. Þó má
vera að sú skólun hafí víða orðið nokkuð
einhæf á allra síðustu árum sökum vinnu-
álags á bamafólki og mikils úrvals hraðsoð-
inna skyndirétta sem markaðurinn hefur
galdrað fram handa fjölskyldum þar sem
báðir foreldrar vinna langan vinnudag utan
heimilis. Hvað sem öðru líður held ég að
Eldhúsáhöld
og matarílát
frá liðnum
dögum
Brauðhnífur úr safni Andr-
ésar Johnson í Ásbúð.
Ljósm./H.G.