Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 28.02.1987, Side 10
EkkiFránoregi Það er næsta víst að í Úlfljótslögum hafa verið ákvæði um goðana, veldi þeirra, goð- orðin, hlutverk þeirra og stöðu. Þessar lagagreinar geta þó ekki hafa verið komnar frá Noregi því engin embætti þar í landi samsvöruðu embætti goðans og þeim störf- um sem hann átti að sinna. Það er því rétt að skyggnast um og athuga hvort goðamir og goðorðin séu íslensk uppfínning, eins og ákvæði refsilöggjafarinnar um fjörbaugs- garð, eða hvort þeir eigi sér samsvaranir eða fyrirmyndir í öðrum nágrannalöndum okkar.2Lítum þá fyrst á goðann og hlutverk hans. Uppruni orðsins goði er augljós, það er skylt orðinu goð, guð og gyðfja. Á nokkrum stöðum í fomritunum er minnst á hofgoða og hofgyðjur en hvert hlutverk þeirra var ekki ljóst nema náttúrulega að þau hafa á einhvem hátt verið tengd trúarathöfnum ásatrúarmanna. íslenska goðanafnbótin er því stytting á hofgoði og það er því ekki að ástæðulausu að mönnum hefur verið tíðrætt um hið trúarlega hlutverk goðans. Það er þó skemmst frá því að segja að um þennan þátt í starfí goðans fínnast engar áreiðanlegar heimildir. Rétt er þó að gera ráð fyrir því að þeir hafi gegnt trúarlegu hlutverki en því hefur verið lokið þegar kristni var lögtekin árið 1000 og því er skiljanlegt að lagaákvæði þessu tengd hafí fljótlega gleymst. Sú tilgáta hefur líka ver- ið sett fram að goðanafnbótin hafí einmitt verið valin til að tengja völd yfírstéttarinnar við trúarbrögðin og festa þau tryggilegar í sessi.8 Einnig má láta sér detta í hug að valinn hafí verið gamall og kannski úreltur norskur embættistitill til að skilja eins ræki- lega og hægt var milii goðaveldisins íslenska og norska konungsvaldsins. Stjórnmálalegt Og FÉLÁGSLEGT HLUTVERK Hlutverk goðans hefur þó alla tíð verið fyrst og fremst stjómmálalegt og félagslegt og sést það best á því að þrátt fyrir trúskipt- in halda þeir stöðu sinni í þjóðfélaginu og ekki fínnast neinar heimildir um það að til greina hafí komið að skipta um titil á þeim. Dómsvald og löggjafarvald var í höndum goðanna allt frá 930 og til 1262 og þau lagaákvæði sem um starf þeirra flalla bein- ast aðallega að opinberum störfum þeirra á þingum, en það var þó aðeins lítill hluti af því sem þeir höfðu á sinni könnu eins og síðar mun verða drepið á. Áhrif goðanna fóru eftir því hversu marga og öfluga þingmenn þeir höfðu. Öllum bændum var skylt að segja sig í þing með einhveijum goða. Þingstyrkur goðans fór eftir því hversu duglegur goðinn var við að gæta hagsmuna þingmanna sinna. Hann var og sáttasemjari í deilum þingmanna sinna og hann rak mál fyrir þá gagnvart þingmönnum annarra goða og varði sína menn fyrir rétti og kom þeim undan ef þeir urðu sekir. Einu föstu tekjur goðanna voru þingfararkaupið sem bændur greiddu, en oft á tíðum heftir það gert lítið betur en að standa undir útlögðum kostnaði við þing- för þannig að þær einar sér hafa ekki gert goðunum kleift að safna auði. Meðan heiðni var við lýði hafa þó sumir goðanna, að minnsta kosti, haft tekjur af hoftollum en UM GOÐA OG GOÐORÐ, UPPRUNA ÞEIRRA OG TILGANG EFTIR GUÐMUND J. GUÐMUNDSSON að er almennt viðurkennt að þorri þeirra manna og kvenna sem hér námu land á ára- tugnum kringum aldamótin 900 hafi komið frá Noregi. Að landnáminu loknu þegar þurfti að setja hinni nýju þjóð löggjöf var það eðli legt að þeir sem forustu höfðu í því starfí litu tii gamla landsins um fyrirmyndir enda þekktu menn best til á þeim slóðum. Það er kunnara en frá þurfí að segja að til þess vandaverks, að búa til frumvarp til hinnar nýju löggjafar, valdist náungi að nafni Úlfljótur og sótti hann fyrirmynd laga sinna til hinna norsku Gulaþingslága.1 Af skiljanlegum ástæðum fínnst nú hvorki tangur né tötur af þessum tveim lagabálk- um, þeim Gulaþingslögum sem þá voru í gildi og Úlfljótslögum, því hvorug voru rit- uð. Því vitum við harla lítið um það hvemig þessi lög voru né heldur hversu mikill skyld- leiki þeirra var. Það er þó óhætt að ganga út frá því að Úlfljótslög hafí um margt verið frábrugðin hinum norsku lögum, sér- staklega hvað varðaði stjómskipan fslenska þjóðveldisins. Eitt mikilvægasta hlutverk hinna nýju laga var að tryggja völd og áhrif jrfírstétt- ana í hinum nýju heimkynnum. Einu föstu embættismenn hinnar nýju þjóðar, goðamir og lögsögumaðurinn, komu úr hópi hinna elstu og öflugustu ætta landnámsmanna, en þær hafa mjmdað kjama jrfírstéttarinnar. Lðgðu konur grundvöll að Menzka goðaveldinu?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.