Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1987, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1987, Qupperneq 6
/kirkjugarðinum er aðeins legsteinn Árna Gíslasonar sýslumanns, semjarð- settur var 1898. þverhnípt bjargið (Kiýsuvíkurberg) og er það talið þrítugt eða fertugt að faðmatali. Ekki er ólíklegt, að þessi áætlun um hæð bjargsins sé nokkuð rífleg, því að á korti Herforingjaráðsins eru sýndar tvær hæðar- mælingar á bjargbrúninni og er önnur 33 metrar en hin 36. E.t.v. gæti það átt við hér, það sem Páll Ólafsson kvað forðum: „Þeir ljúga báðir — held ég megi segja." Fyrir austan Eystri-Bergsenda tekur við Krýsuvíkurhraunið, allt austur á Seljabót, og þar fyrir austan Herdísarvíkurhraun, en þá er komið austur fyrir sýslumörk og skal því staðar numið í þá átt. Þar sem hraun þessi, Ögmundarhraun og Krýsuvíkurhraun, ganga fram á sævar- ströndina og verða víðast hvar hamrar nokkrir, en þó ekki nægilega háir til þess, að bjargfugl geti haldist þar við um varptím- ann. Þrátt fyrir þessa miklu strandlengju eru þó fúrðulega fáir staðir á henni, þar sem reka getur fest og munu rekasvæðin öll til samans vart nema meiru en einum km að lengd. Af þessum stuttu fjörustúfum eru helztin Selatangar, Húshólmi og Skriða, sem áður er nefnd, en þar er bjargsig all- mikið og verður að hala upp í festum hvem þann hlut, sem þar rekur á flöru og að nokkrum notum skal koma. Sama máli gegnir og um Bergsendana báða, þá sjaldan nokkuð slæðist þar á fjörumar. A Keflavík eða Kirkjufjöru í Kiýsuvíkurhrauni og eins á Miðrekunum, milli Selatanga og Hús- hólma, er og lítilsháttar reki, en um illan veg er að sækja, ef afla skal fanga af öðrum hvorum þessara tveggja staða. Austarlega í Ögmundarhrauni verða tveir básar upp í hraunbrúnina, fram við sjóinn, Rauðbás og Bolabás, en ekki er ijaran í hvorum þeirra nema fáeinir metrar. Eitt er það um Krýsuvík, sem fástaðar mun vera til á Islandi, en það er, að heiman frá höfuðbólinu og reyndar frá flestum öðr- um bæjum í hverfmu, sést engin skák af landi, né íjall, svo að ekki sé það innan land- areignarinnar, nema ef telja skyldi, að „þegar hann er óvenju austanhreinn", þá sjást Vestmannaeyjar hilia uppi. Er svo ta- lið, að jafnan viti „Eyjahillingar" á mjög mikla úrkomu. Dr. Bjami Sæmundsson get- ur þess einnig í ritum sínum, að í Grindavík sé það trúa manna, að „Eyjahillingar" boði hálfsmánaðar rigningu. Frá Kiýsuvík eru rösklega tíu tigir km sjóhending til Vest- mannaaeyja, en nálega stórthundrað km úr Grindavík. Eyjamar eru að sjá frá Krýsuvík, sem sex misstórar þúfur, yzt við hafsbrún. *Ét Höfundurinn er Suðurnesjamaður að uppruna, en er nú kaupsýslumaður í Reykjavik. Gunnreif bardagakona Af brautryðjandanum Bríeti Bjarnhéðinsdóttur í tilefni áttatíu ára afmælis Kvenréttindafélags íslands EFTIR BJÖRGU EINARSDÓTTUR Hinn 5. júní á komandi sumri eru eitt hundrað og tvö ár liðin frá því að grein birtist í einu Reykjavíkurblaðanna með yfirskriftinni „Nokkur orð um menntun og réttindi kvenna“ en undirfyrirsögn „Eftir unga stúlku í Reykjavík". Og þann 28. desember á þessu ári er öld frá því að ung stúlka stóð ein á sviði í troðfullu samkomuhúsi í höfuðstaðn- um og flutti af fullri einurð fyrirlestur sinn „Um hagi og réttindi kvenna". Með þessum hætti steig Bríet Bjamhéðinsdóttir fram og kvaddi sér hljóðs. Með brandi orðsins og pennann að vopni sló hún þann tón sem enn ómar konum til sóknar á öllum sviðum þjóðlífsins. Fyrir henni gilti ekkert minna en full þjóðfélags- leg þátttaka með þeim réttindum og skyld- um sem það útheimti. Vert er að spyija um hvað málflutningur hennar hafi snúist. Og því er fljótsvarað: Um þann eldinn sem heit- ast brann á henni sjálfri — þá mismunun sem viðgekkst á milli kynja, þann órétt sem konur bjuggu við eða öllu heldur réttleysið sem þær voru undirorpnar. Forsendur Misréttis Bríet var elst fjögurra bama hjónanna Kolfínnu Snæbjamardóttur og Bjamhéðins Sæmundssonar búenda að Böðvarshólum í Vesturhópi, fædd 27. september 1856. Þeg- ar hún á uppvaxtarárunum hafði daglangt ásamt bróður sínum staðið við útiverkin varð hún þegar inn kom að sinna þjónustu- brögðum og öðrum inniverkum en hann réð tíma sínum sjálfur og gat sest við lestur. Það var af því að hún var telpa en hann drengur. „Ég beinlínis kvaldist," segir hún sjálf síðar „því að ég var strax svo mikið fyrir bækumar . . .“ Bríet Bjarnhéðinsdóttir um það leyti sem hún hóf fyrir alvöru afskipti af félagsmálum og gerðist hvatamaður að stofnun Kvenréttindafélags Islands, 27. janúar, 1907. Móðir Bríetar veiktist og var lengi rúm- föst og kom í hlut hennar sem eldri dóttur að taka við búsforráðum innan stokks, þá um fermingaraldur. Árið 1877 lést faðir hennar og ári síðar brá móðirin búi. Réðst Bríet þá að Bægisá til séra Amljóts Ólafs- sonar sem var náfrændi hennar. Bókasafn hans var mikið að vöxtum og gæðum, talið eitt hið mesta í einkaeign hér á landi á þeim tíma. Þau tvö ár sem Bríet var vistráð- in á Bægisá hafði hún frjálsan aðgang að bókasafni frænda síns og hagnýtti hún sér það af fremsta megni í stopulum frístundum. Veturinn 1880—1881 nam Bríet við Kvennaskólann að Laugalandi í Eyjafirði og lauk þaðan burtfararprófí um vorið með hæstu einkunn. Hún þráði af hjartans innsta grunni frekara nám en af því að hún var stúlka en ekki piltur voru skólar landsins henni lokaðir: Latínuskólinn í Reykjavík, prestaskólinn, læknaskólinn og nýstofnaður gagnfræðaskóli á Möðmvöllum. Hvemig sú staðreynd kom við hana lýsa eftirfarandi orð hennar: „Þetta atriði kvenréttindamáls- ins — að enginn möguleiki var fyrir íslenskar konur til nokkurs framhaldsnáms hér á landi, bóklegs né verklegs, kom mér til að fara að hugsa alvarlega um mismuninn á aðstöðu kvenna og karla í lífsbaráttunni." Bríet dvaldist næstu árin einkum í Þing- eyjarsýslu og var þar meðal annars heim- iliskennari hjá kaupmanni á Húsavík. Hún bar kjör sín saman við kjör karlmanns í samskonar stöðu og hafði hún meiri vinnu- skyldu en hann en fékk að launum 50 krónur þegar hann hlaut 100 fyrir jafnlangt kennslutímabil. Það var vegna þess að hún var kona. Samhljómur Henni var líkt farið og fuglinum sem þráir að þreyta flugið en flýgur sífellt á vegg. Það var því ekki að furða þótt hjarta

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.