Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1987, Side 16
Meðauga
fyrir íslandi
inn rétti honum 20 litfílmur og sagði „við
skulum sjá hvað þú getur."
„Þessi fyrsta ferð ti! Islands var gjörsam-
lega misheppnuð. Ég vissi ekkert hvað ég
var að gera,“ segir Randy léttur í bragði,
„en samt hlýtur að hafa verið einhver neisti
í þessu, því að næsta sumar var ég aftur
gerður út til íslands og tók í það skiptið
myndir sem birtust í náttúrulífsbók sem
National Geographic félagið gaf út. Félagið
á og rekur meðal annars áðurnefnt tímarit."
Randy Hyman hefur síðan farið nokkra
leiðangra til íslands og tekið myndir og
hann bjó líka á íslandi í eitt ár. Þangað kom
hann í september 1978, stundaði íslenskun-
ám við háskólann í þtjá mánuði og vann
jafnframt hjá ljósmyndastofu Þóris. Síðan
fékk hann vinnu á skóladagheimili í Lang-
holtinu. „íslenskuna lærði ég af krökkunum
þar, krakkar eru bestu kennaramir."
Síðari ferðir Randy til íslands hafa verið
á vegum ýmissa aðila, svo sem tímaritsins
Intemational Wildlife, tímarits Smithsonian
stofnunarinnar og Science ’81. Árið 1980
kostaði vísinda- og náttúrufræðisafnið í St.
Louis Randy tii að útbúa sýningu á 67 ljós-
myndum frá íslandi.
Hann sýndi þær síðan á Kjarvalsstöðum
í janúar 1982, en Smithsonian stofnunin
annaðist uppsetningu sýningarinnar vítt og
breitt um Norður-Ameríku næstu þijú árin
þar á eftir. I fyrra gaf Randy Hyman
íslensku þjóðinni þessar myndir, fulltrúi
Smithsonian afhenti þær í sendiráði íslands
í Washington.
Randy hefur oftsinnis ferðast til ýmissa
landa Suður- Ameríku til að taka myndir
og ennfremur til ýmissa annarra landa
heims. Stundum skrifar hann greinamar
með myndunum: „Ég undirbý mig vel fyrir
svona ferðalög og iðulega skrifa ég textann
sjálfur. Sem dæmi má nefna grein um
krókódíladráp á fenjasvæðum Brasilíu. Ég
dvaldi tvo mánuði í fenjunum og ræddi við
lögreglu og veiðiþjófa. Þetta er blóðugur
leikur, lögreglan ræðst gegn veiðiþjófunum
með vélbyssum og þeir skjóta á móti. Enn-
fremur tengist þetta eiturefnasmygli,
krókódílaskinnum er smyglað úr landi í litl-
um flugvélum til Bólivíu, og þær eru hlaðnar
kókaíni á bakaleiðinni."
Randy hefur auk þess ofan af fyrir sér
sem iðnaðarljósmyndari í Bandaríkjunum.
„En mér finnst skemmtilegast að taka nátt-
úrulífsmyndir fyrir tímarit, eins og ég hef
gert á Islandi og í Suður-Ameríku. Mig lang-
ar til að halda því áfram svo lengi sem
kostur er.“
Höfundurinn er fréttaritari
Morgunblaðsins i Bandarikjunum.
A bæ nálægt Heklu. Allar myndir tók Randall Hyman.
Höfnin á Húsavík.
A Arnarstapa á Snæfellsnesi.
Vetur á ísafirði.