Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1987, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1987, Page 6
um litbrigðum upp á yfirborðið. Þótt múrristan sé nýstárleg aðferð til myndgerðar fyrir okkur íslendinga er þetta ævagömul tækni. Fyrstu minjar af múrrist- um eru frá 13. öld og líklegt er að handiðn- aðarmenn hafi þekkt þessa aðferð enn fyrr. A Endurreisnartímanum var múrristan not- uð til jafns við freskóaðferðina, líkt og mörg fögur dæmi á Ítalíu vitna um. Þessi myndgerð féll síðan nánast í gleymsku í nokkrar aldir eða allt fram á seinni hluta 19. aldar, þegar hún var endurvakin og á þessari öld hefur það mjög færst í vöxt að myndlistarmenn nýti sér þessa varanlegu sköpunaraðferð. Gunnsteinn Gíslason fæddist árið 1946. Á árunum 1963—67 stundaði hann nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands í kenn- aradeild og fijálsri myndlist. Hann dvaldi um tveggja ára skeið í Edinburgh College of art og lagði sérstaka stund á glerhönnun og veggmyndagerð. Til Svíþjóðar fór Gunn- steinn árið 1972 og nam kennslufræði við Konstfackskolan. Þaðan lauk hann prófí árið 1975. Auk þess að stunda listsköpun hefur Gunnsteinn kennt við Pjölbrautaskól- ann í Breiðholti og Myndlista- og handíðaskólann. Gunnsteinn Gíslason er því einn þeirra listamanna sem stunduðu nám í 7. áratugn- um, þegar framsæknir listamenn settu afgerandi spumingarmerki við listhugtakið og leiddu inn ný efni og aðferðir til listsköp- unar. Á þessum tíma stóðu því ungir lista- menn, kannski fremur en nokkra sinni fyrr, andspænis vali á milli hefðbundinna aðferða eða þess að leita inn á óþekkt mið og í raun fínna upp sinn eigin tjáningarmiðil. Gunn- steinn Gíslason hélt sér við hefðina og leitaði fanga langt aftur í söguna. Gunnsteinn er eini íslendingurinn sem unnið hefur mark- visst með múrristur. Síðastliðinn áratug hefur hann gert hefur hann gert tilraunir með ólíkar formgerðir og kannað möguleika miðilsins. Þegar litið er yfír þennan tíma má vel greina einar þijár formgerðir, sem hafa verið hvað mest áberandi í listsköpun Gunnsteins. Fyrst er að nefna myndgerð, sem stendur einna næst hefðbundnu mál- verki. Listamaðurinn heldur hinum hefð- bundna myndramma og samfelldri frásögn. Eru þetta yfírleitt kyrrlátar og ljóðrænar náttúrastemmningar, líkt og við höfum kynnst í verkinu í Gegnum loftmúrinn frá árinu 1984. Fuglinn klýfur loftstrauminn og formin, sem endurtekin era yfír mynd- flötinn, ríma við form fuglsins. í annari formgerð deilir listamaðurinn myndfletinum upp í geometrískar einingar, sem heldur myndbyggingunni í fullkomnu jafnvægi samtímis sem hin geometríska grind virðist hafa það hlutverk að riðla staðar- og tíma- einingu myndefnisins. Þessi formgerð getur oft leitt af sér nánast óhlutlægar myndir, líkt og við sjáum í verkinu Femingsleikur frá árinu 1981. Þriðja myndgerðin er vafa- lítið sú framsæknasta og framlegasta hjá listamanninum. Þar riftir listamaðurinn hin- um ferhymta myndramma, leysir upp form og hluti og framkallar ærslafulla hreyfíngu, sem minnir um margt á sundurgreiningu og formskrift fútúrismans. í þessum mynd- um afmarkast myndramminn af innri formum myndverksins, formum, sem lista- maðurinn hefur frelsað frá myndfletinum, umbreytt og sundurgreint í sína fram- krafta. Það er því ekki ímyndin af ein- hveijum hlut eða fyrirbæri sem listamaður- inn viil miðla heidur fyrst og fremst sú orka sem í hlutnum býr. Þessi vilji listamannsins til að framkalla þróttmikla spennu og hreyf- ingu á myndfletinum hefur beint augum hans að fljúgandi fyrirbæram, einkum fugl- um og fígúram, sem hafa verið losaðar undan jarðneskum veruleika og athafna sig EFTIR GUNNAR B. KVARAN Femingsleikur, 1981. Guansteinn Gíslason við múrristu á vinnustofu sinni. LÍFSORKA Gunnsteinn Gíslason hefur lagt stund á þá tækni í myndlist, sem nefnd er múrrista. Hér segir frá list Gunnsteins í tilefni sýningar hans, sem verður opnuð á Kjarvalsstöðum í dag Gunnsteinn Gíslason vakti athygli er hann kom fram með sýningu á múrristum á Kjarvalsstöð- um árið 1982. Þetta var fyrsta einkasýning listamannsins, en hann hafði þá unnið í nokk- ur ár að þessari myndgerð, sem á ítölsku nefnist sgraffíato og saman stendur af lituð- og gróft undirlag. Listamaðurinn ristir síðan um múrlögum, sem lögð era á vírbindingu I teikninguna misdjúpt í múrinn til að ná ólík- ISTEINSTEYPU

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.