Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1987, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1987, Side 11
saman úti á Skólavörðuholti og biðu eftir vinnu sem fékkst svo kannske ekki nema þriðja hvem dag. Þama urðu menn oft innkulsa. Matarskortur var því sjálfsagt víða og húsnæði þröngt og kalt. Ég man eftir því að hafa komið inn á heimili þar sem vom þrír prímusar í gangi í sameiginlega eldhúsinu fyrir þijár ijölskyldur. Og þeir sem áttu heima í „Pólunum" og í lélegum húsum við Fálkagötu t.d. þurftu að sækja allt vatn í branna árið um kring. Hér var líka mikið um einstaklinga sem bjuggu við kröpp kjör — efnalitla pilta utan af landi sem bjuggu 2 og 3 í sama litla herberginu. Þeir gátu orðið veikir eins og aðrir. Þegar upp komu farsóttir var fólki komið fyrir í Franska spítalanum, en þessar farsóttir komu oft verr niður hér en t.d. í Danmörku. Fólk varð miklu veikara og nægir þar að nefna spönsku veikina." ÞAÐ VORU OFT ERFIÐ SPOR „Eins vora berklamir taldir hræðilegur sjúkdómur og fólk oft tregt til að koma til skoðunar. Ég þekkti orðið ákaflega margar Qölskyldur í Reykjavík af fyrri störfum við bæjarhjúkran og ungbamavemdina og átti hægar með að tala um fyrir fólki og fá það til að koma. En hræðslan var svo mikil við að verða sent á Vífílsstaði. Mest var berklaveikin um 1920 en síðan komu ljrfín. Fólk kom á stöðina og fékk sprautu en ef það reyndist vera með smit var það sent á Vífílsstaði. Það vora oft erfíð spor að þurfa að fara aftur á sjúkrahús. Oft þurftum við að fara heim til fólks, og sækja það í skoðun. En Sigurður Magnússon yfírlæknir á Vífilsstöðum skoðaði það endurgjaldslaust. Það var líka erfíður fylgifiskur fyrir það fólk sem reyndist vera með berkla þótt ekki væri með smit, að það var nær útilokað fyrir það að fá leigt þótt það væri undir ströngu eftirliti og engin hætta væri á ferðum. Þá var holdsveikin ekki síður ógnvaldur á sínum tíma þótt aldrei væri eins algeng og berklamir urðu, en holdsveikisjúklingar vora sendir á Laugamesspítalann. Nú er hvorttveggja úr sögunni sem betur fer. Reyndar breyttust allar aðstæður til betri vegar þegar elliheimili komu til sögunnar og starfsemi hófst á Landspítalanum árið 1930. En mestu umskiptin urðu í þessum málum eins og svo mörgum öðram á stríðsáranum. Þá var ekki lengur þrúgandi atvinnuleysi og fólk hafði meiri peninga handa á milli. Aður vora ekki önnur ráð við lungnabólgunni t.d. en digitalis-dropar og heitir bakstrar sem vora strengdir yfír bijóstið. Fólki fannst því Iétta við það.“ AlltafáHjóli Þess má geta til gamans að öll þau ár sem Bjamey starfaði að heimahjúkran fór hún á milli húsa á reiðhjóli sínu — og reyndar alltaf síðan þar til fyrir nokkram áram. „Þetta hjól var mesti kostagripur", segir hún, „sem ég keypti hjá Imbu Brands", og Bjamey kímir við, „og gaman að hjóla í góðu veðri." Hún er spurð hvort ekki hafí stundfum verið erfitt að fara hjólandi í fannfergi og hálku og hún svarar með sínu æðraleysi: „Það var nú mokað." Alla sína ævi naut Bjamey trausts samstarfsmanna sinna ekki síður en sjúklinga. Hún var gjaldkeri Hjúkranarfélags íslands 1920—43. Árið 1969 var hún kjörin heiðursfélagi í Norsk sykeplejerskeforbund og sömuleiðis í Hjúkranarfélagi íslands 1969 á 50 ára afmæli félagsins. Bjamey var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1976 og orðu Florence Nightingale 1977 sem er eitt æðsta heiðurstákn í röðum breskra hjúkranarstétta. Um ævina hefur Bjamey sótt mörg þing erlendis á vegum íslenskra hjúkranarsamtaka og sat m.a. alheimsþing hjúkranarkvenna í London árið 1937. Bjamey hefur staðið einna fremst í flokki þeirra mörgu ágætu og dugmiklu íslensku kvenna sem lögðu fyrir sig hjúkrunarstörf á þeim áram þegar slík störf voru að færast yfír á íslenskar hendur. Bjamey var fjórða íslenska konan sem varð fullnuma í hjúkranarfræðum. Þær sem á undan henni komu til starfa voru Þóra J. Einarsson (1903), Oddný Guðmundsdóttir (1914), Kristín Thoroddsen (1918) og 1919 kemur Bjamey frá námi. Þessum konum og mörgum fleirum ber að þakka fyrir brautryðjendastarf á sviði hjúkrunar hérlendis. Þær lögðu grunninn að því trausti sem hjúkranarstéttin nýtur í dag með hugsjón mannúðar og líknar að leiðarljósi. HRYÐJ UVERKAMENN Rætur hryðjuverka raktar til glataðrar æsku Nýjar rannsóknir hafá leitt margt athyglisvert í ljós á leið hryðjuverka- manns frá bemsku til þess tíma, er hann frem- ur sérstakt ofbeldisverk. Þeir, sem að þessum rannsóknum stóðu, hafa komizt að raun um, að hryðjuverkamaðurinn mótist af sérstæðum víxláhrifum milli sann- færingar og atorku hóps hryðjuverkamann- anna og hinum sálfræðilegu eiginleikum félaganna. Hinar nýju upplýsingar, sem mestu máli skipta, hafa fengizt með ítarlegum viðtölum við og sálfræðilegum prófunum á yfír 500 félögum í hryðjuverkasamtökum, sem enn era við lýði, og yfír 100, sem hafa verið handteknir fyrir hiyðjuverk í ýmsum löndum. Við marga þeirra, sem könnunin náði til, hafði verið rætt áður í könnun, sem gerð var á bömum, sem ólust upp í andrúmslofti of- beldis, svo sem á Norður-írlandi. Hér var um að ræða menn úr hópum hiyðjuverkamanna í írska lýðveldishemum til dæmis sem og úr Frelsissamtökum Pal- estínumanna (PLO) og allt til hins eina, sem lifði af árásina á Lod-flugvöllinn í fsrael. Og alveg nýlega hafa kannanir einnig verið gerð- ar á „Félögunum", hinum blökku unglingum í Suður-Afríku, sem ráðast á og drepa aðra blökkumenn, sem þeir saka um samstarf við stjómina í Pretóríu. Þessar rannsóknir voru helzta umræðuefn- ið á fundi í Bandaríska sálfræðifélaginu í Washington fyrir skömmu. Enda þótt það séu margir þættir, sem leiða til hiyðjuverka- starfsemi, var ekki nema eðlilegt, að athygli sálfræðinganna beindist mest að hinum geð- rænu og tilfinningalegu þáttum, sem leiða til þess, að einn frekar en annar verði hryðju- verkamaður. Þjást Ekki Af Geðveiki Að sjálfsögðu á engin alhæfíng við um hvem hryðjuverkamann. Það, sem einum kann að fínnast meginatriði hryðjuverka- starfsemi, kann öðram að virðast föður- landsástin holdi klædd. En yfirleitt telja sérfræðingar hiyðjuverkamenn vera fólk, sem í nafni þess, sem það telur göfugan málstað, tekur þátt í miskunnarlausum of- beldisverkum, sem bitna á saklausu fólki. Það er þessi grimmd hryðjuverkamanna og tilfínningaleysi fyrir þeim sársauka, sem þeir valda fómarlömbum sínum, sem gerir. það að verkum, að þeir virðast vera önnur manntegund en venjulegt fólk. En rann- sóknimar sýna, að flestir hryðjuverkamenn þjást ekki af neinni sérstakri geðveiki. Sér- fræðingamir segja, að það verði ekki aðeins að skilja hryðjuverkamenn með hliðsjón af sálarástandi þeirra sem einstaklinga, heldur Það er þessi grimmd hryðjuverkamanna og tilfinningaleysi fyrir þeim sársauka, sem þeir valda fómarlömbun sínum, sem gerir það að verkum, að þeir virðast vera önnur manntegund en venjulegt fólk. En rannsóknir sýna, að flestir hryðjuverkamenn þjást ekki af neinni ^ sérstakri geðveiki. Á bak við hegðun þeirra er hinsvegar vonleysi, sem hefur orðið að logandi heift. einnig með tilliti til hinna ytri afla, sem hafa áhrif á líf þeirra. „Það era í senn persónuleg og söguleg öfl að verki, sem skapa það ofstæki, sem leiðir til hiyðjuverka," segir Robert Lifton, geðlæknir, sem hefur rannsakað margs kon- ar öfgamenn. „Umrót í þjóðfélaginu, svo sem breytingar á hefðbundnum háttum eða röskun af völdum stríðs, elur af sér of- stæki. Fólki fínnst sem kippt sé undan því fótunum og að heimur þess sé að hrynja." „Þegar hefðir glatast, sem gefa lífínu gildi, hneigist fólk að öfgastefnum," segir hann ennfremur. „Að gefa sig á vald ein- hveijum algildum sannleika færir mönnum festu og létti." „Aðal hugmyndafræði öfgamannsins er spámannsleg sýn, sem skiptir heiminum í hinn góða og hinn illa," segir Mortimer Ostow, sálgreinir. Að hans áliti og fleiri er þetta lífsviðhorf að baki kenningum allra hópa hryðjuverkamanna í raun og vera og þar á meðal jafn ólíkra og Baader-Meinhofs í Vestur-Þýzkalandi, hinna Rauðu khmera Pol Pots í Kambódíu og flokks Khomeinis í íran. VONLEYSISEM VERÐUR Að Logandi Heift Þessu viðhorfi gagnvart veröldinni, sem er annað hvort góð eða ill, fylgir djúp von- leysiskennd þeirra, sem verða hryðjuverka- menn, að því er rannsóknin sýnir. Hjá mörgum bömum, sem síðar ganga í flokk hryðjuverkamanna, verður þessi vonleysis- kennd að logandi heift samkvæmt þeim upplýsingum, sem Rona Field, geðlæknir í Alexandría, hefur aflað, en hún hefur gert kannanir á meira en 200 bömum, aðallega í Norður-írlandi, í palestínskum flótta- mannabúðum og á hemámssvæðum ísraela á vesturbakka Jórdanár. Dr. Rona Field hefur eytt 20 áram í að ræða við hryðjuverkamenn og böm víða um heim og annast sálfræðilegar prófanir á þeim. Hún hefur sagt, að hún hafí síðar hitt mörg þeirra bama, sem hún hafði próf- að, eftir að þau höfðu gengið til liðs við hópa hryðjuverkamanna. I einni tilraun, þar sem bömum era sýnd- ar myndir og þau eiga að búa til sögur í sambandi við þær, var þeim ómögulegt að tengja þær við neinar vonir í huga sér. í sögunum, sem þau spunnu upp úr sér, henti bömin margt hræðilegt, og það vora engir, ekki einu sinni foreldrar þeirra, sem gátu hjálpað þeim. Dr. Rona Field segir: „í sögum flestra heilbrigðra bama enda flest vand- ræði af svipuðum toga með giftusamlegri björgun." „Þessi böm fyllast bamalegri, vánmátt- ugri reiði, sem síðan fylgir þeim fram á LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. MAÍ 1987 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.