Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1987, Síða 11
RAGNHILDUR ÓFEIGSDÓTTIR
Ástarsorg
/
Nóttin
er braut mín
án þín
stjörnulaus eilíf nótt
II
Ég geng svartan mjúkan flauelisdregil
iljar mínar naktar
kyrtill minn sundurrifinn í miðju
í hendi minni liljan svarta
opin
dögg hennar vín hennar
rautt
sem blóð
III
Nótin er braut mín
stjörnur hennar löngu etnar
af hlébarðanum svarta mjúka
með rauðu augun
rándýrið mitt
sem gengur án afláts í kringum mig
óendanlega hringi
þófatak þess
minn eigin hjartsláttur
Dagarnir eru sem
svartar perlur
Dagamir
eru sem svartar perlur
ég handleik eina eftir aðra
hvítum fingrum
ég rýni í eina eftir aðra
eins og þær væru svartar kristalkúlur
með framtíðina í djúpi sínu
en þær eru óræðar ógagnsæjar
án Ijósbrots
eina eftir aðra festi ég þær upp á gullinn þráð tímans
sem aldrei slitnar
festi úr svörtum perlum
óslítanlegur
hlekkur
Höfundur hefur BA-próf f þjóðfélagsfræði og er húsmóðir í Reylqavík.
JAKOB JÓNSSON
FRÁ HRAUNI
Snerting
Þeir væntu skaparans
í skýjum himins.
Gangandi maður
þræddi göturnar við ána,
hvarf í vatnsins gröf,
reis upp úr hylnum,
og yfir höfði hans
sveif hvítur fugl.
Guð snerti grátglaða jörð.
Höfundur er dr. theol. og fyrrum prestur í
Reykjavík.
Matt 15,
32—38
„Ég kenni í btjósti um
mannfjöldann"
í Afríku.
„Þeir hafa ekkert
til matar. “
En kartöflur vaxa,
kjúklingar fitna,
lömbin stækka,
loðnan veiðist.
„Og allir neyttu
og urðu mettir“
á Islandi.
E R L E N D A R
B Æ K U R
Patricia Highsmith:
FOUND IN THE STREET
Pengxiin Books 1987.
Eins og fyrri daginn heldur Patricia High-
smith lesandanum fongnum allt frá fyrstu
síðum og til þeirrar síðustu. Hún er ótrúlega
lagin við að leika á lesandann sem ósjálf-
rátt fer að draga hinar svæsnustu ályktanir
af því sem fyrir ber á síðum bókanna en
verður að játa sig sigraðan þegar á hólminn
kemur. Það á við um flestar skáldsögur
hennar og er Found in the Street engin
undantekning.
Sagan gerist í New York. Elsie er ung
stúika sem nýkomin er til borgarinnar. Hún
kemst í kynni við sérvitringinn Ralph sem
er siðferðispredikari, næturvörður og upp-
fínningamaður. Jack er þriðja aðalpersóna
sögunnar og hann er það sem kalla má ofur
venjulegur. Hann glatar peningaveski sínu
en skilvís fínnandinn, Ralph kemur því í
hendur hans og er þá hafíð samband þess-
ara þriggja. Ralph, sem er ekki sérlegur
mannvinur, æfír predikanir á Jack sem fer
að trúa öllu illu um einfarann.
Þessa bók má enginn aðdáandi High-
smith láta fram hjá sér fara og aðrir sem
vilja lesa nútímalega skáldsögu ættu að líta
vel í hana.
0
Pl N«;»:i.N 1.1 I I HAHY lÍKX.HAI'llll S
HEMÍNGWAY
A UFKSTUliY
CAHLOS BAKKH
Carlos Baker:
ERNEST HEMINGWAY
A Life Story.
Penguin Books 1987
Á titilsíðu þessarar miklu bókar er vitnað
í James Joyce. „að lifa, að skjátlast, að
falla, að sigra, að endurskapa líf af lífí ...“
Svo stendur í A Portrait of the Artist as a
Young Man. Þessi orð eiga við, ekki einasta
um ritið heldur og um ævi Hemingways sem
til umræðu er í því. Carlos Baker helgaði
sig ritun þessarar bókar i ein sjö ár. Hafi
þau verið mögur þá ættu næstu sjö að vera
feit því aðra eins ævisögu hefur undirritað-
ur ekki lesið lengi. Það er kafað djúpt og
lesandanum er skemmt með atriðum úr lífí
Hemingways, hnefaleikatilburðum og sam-
skiptum við aðra menn, fræga rithöfunda,
nautabana, konur. Hemingway var goðsögn
í lifanda lífí, hann var hatursmaður harð-
stjóra, elskandi náttúrunnar og svo þunga-
vigtarmaður á sviði bókmennta. Hann ætti
að vera óþarfi að kynna hér. Bækur hans
nokkrar eru til á íslensku og njóta þeirra
væntanlega allir sem lesa. Fyrir ævisagna-
þyrsta áhuga- eða atvinnumenn á bók-
menntasviðinu er þessi mikla bók um þann
mikla Hemingway hvalreki.
I’l N..I'!N'Í|l I ASSI...
Cassius 1)10
THI RöMAN HlSTORY:
llll Hl K.NOI \l (.USIUS
Cassius Dio:
THE ROMAN HISTORY:
The Reign of Augustus.
Þýðandi Ian Scott-Kilvert.
Inngangsorð eftir John Carter.
Penguin Books 1986.
Tacitus var mestur rómverskra sagnfræð-
inga, hann reit glæsilega um það tímabil
sem leið milli dauða Ágústusar og lát Domit-
ians. Um Ágústus, þann mikla, reit aftur
Cassius Dio. Dio var fæddur árið 163 eftir
Krist og var stjómmálamaður. Rómveija-
sögu skrifaði hann og er nú margt glatað
af henni en varðveist hafa kaflar hennar
sem fjalla um tímabilið frá 69 f. Krist og
fram að keisaratíð Kládíusar, þess sem hafði
klumbufót. í sjö köflum eða bókum er við-
fangsefnið Ágústus og enda þótt sagnfræðin
sé kannski ekki eftir kröfum hvorki nútím-
ans né annarra tíma þá er ritið um margt
upplýsandi. Dio byijar á því að segja frá
atinu milli Antoníusar og Oktavíans og end-
ar á dauða þess síðamefnda sem þá hét
reyndar Ágústus.
PKTRONIUS
Thk Satyricon
SlNI.CA
Tm Ai’ocoi.ocyn rosis
PETRONIUS:
SATYRICON
og
STMPT A •
APOCOLOCYNTOSIS.
Þýðandi og höfundur inngangsorða
J.P. Sullivan.
Endurskoðuð útgáfa.
Penguin Bopoks 1986.
Ævintýrum Encolpiusar hefur Fellini gert
góð skil í kvikmynd sem hann gerði eftir
ritverki Petroniusar; Satyricon. Encolpius
var náttúmlaus, hann leitaði kynferðislegrar
fullnægingar dymm og dyngjum, ferðaðist
um Ítalíu, hitti margan skemmtilegan mann-
inn og reyndi allt til þess að njóta þess sem
hann var ófær um að njóta. Hann reyndi
til við kvenfólk og unga drengi, tvltólu og
fleira en án árangurs.
Petronius var samtímamaður Nerós. Það
fór vel á með þeim. En þar kom loks að
Neró varð honum óvinveittur og framdi
Petronius sjálfsmorð. Hann gerði sér þó lítið
fyrir skömmu áður en hann gerði það og
skrifaði ádeilu á keisarann og upplýsti al-
þjóð um lesti hans. Satyricon er ekki til í
upphaflegri lengd og er það sem í þessu
bindi er prentað það sem varðveist hefur í
gegnum aldimar.
Apocolocyntosis er stutt úttekt á þeim
miður þokkaða keistara Kládíusi sem var
forveri Nerós í keisarastarfinu. Seneca, sem
skrifaði margt, var heimspekingur. Hann
var ekki í náðinni hjá Kládíusi sem dæmdi
hann til útlegðar á Korsíku. Að Kládíusi
gengnum hlaut Seneca uppreisn æru og
varð ráðgjafi Nerós. Það er erfitt að lesa
þessa úttekt hans á því þegar Kládíus vildi
í guða tölu hafi maður ekki fyrir kynnt sér
tísku þeirra daga sem Neró lifði.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7. NÓVEMBER 1987 1 1