Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Síða 2
Nýjasta mynd Kubricks Miskunnarlaust hamast stórtækar klippumar við að krúnuraka höf- uðið ... Þetta er upphafsatriðið í nýrri mynd Stanleys Kubrick, Ful! Metal Jacket, en hennar hefur verið beðið með óþreyju í heil 7 ár. Kvikmyndin er gerð eftir skáldsögunni The Short-Timers. Rafinagnsklippumar láta ekki eitt einasta hár óskert á höfði ungu sjóliðanna, sem em í sérþjálfun í herbúðum úti á Parriseyju í Suður-Karólínu. ÖÐRUVÍSISTRÍÐSMYND Það verður strax augljóst af áhrifamiklu upphafsatriðinu, að þessi kvikmynd líkist engri af þeim myndum, sem hingað til hafa verið gerðar um Víetnam-stríðið. Eins og nærri má geta kemur Kubrick öllum á óvart í þessari nýjustu mynd sinni. Leikstjóramir Cimino, Coppola og Oliver Stone höfðu áður lýst því ægilega víti, sem stríðið var, en í kvikmyndum sínum notuðu þeir stór- kostlegar sviðsetningar. Víetnam-styijöld Kubricks vekur beinlínis líkamlega ógleði hjá áhorfendum. Sviðsetningin er afar ein- föld í sniðum og virðist sálarvana og hjartalaus. Kvikmyndavélin lætur engan veginn gamminn geysa eins og oft hefur átt sér stað undir stjóm Kubricks. Lýsingar hans á stríðinu takmarkast við hið allra nauðsynlegasta: Nokkra hermenn, sem áhorfendur fá ósköp lítið að vita um — hvorki um fortíð þeirra né framtíðar- drauma; við óvinina, oftast ósýnilega, sem ioks taka á sig mynd ungrar, saklausrar stúlku í dauðateygjunum; húsarústir, þijá skriðdreka. Þá er næstum því allt upp talið. Þó hef- ur eitt atriði gleymst í þessari upptalningu: Málmklædda skothylkið (Full Metal Jacket). I þessari kvikmynd er ekki reynt að höfða til vorkunnsamra tilfinninga með því að sýna fjöldamorð í víetnömsku þorpi, þar sem mýmargar þyrlur em að verki — ekki held- ur sýnt bam, sem grætur í örvæntingu yfir líkum foreldra sinna, með litskrúðuga sprengingu í bakgrunni. Frá nýju sjónarhorni: Kvikmyndaleik- stjórinn Stanley Kubrick við töku myndarinnar Full Metal Jacket. Með alvæpni í hita og þunga dagsins. Vincent d 'Onofrio í hlutverki „Pyle“. Fómarlamb hagsmunaárekstra stórveidanna er víetnamska þjóðin: Dagar ungu stúlkunnar em taldir. Forsmekkinn fá menn í þjálfunarbúð- unum: Matthew Modine í hiutverki unga Bandaríkjamannsins, sem á að verja hagsmuni Bandaríkjanna í Víet- nam. Niðurlægingin Það er liðþjálfínn Hartman sem skólar til hina ungu, grænklæddu hermenn Kubricks í óvistlegum æfíngabúðum banda- ríska hersins. Og það eru hörmungar einar, sem ungu mennimir eiga í vændum. Harð- stjórinn Hartman lætur höggin dynja á þeim, og af óviðjafnanlegri hugvitssemi og orðgnótt hellir liðþjálfínn yfír þá heilu flóði af móðursýkislegum klúryrðum og svívirð- ingum á tæpitungulausu hermannamáli. Lee Emery, fyrrverandi atvinnuhermaður leikur hlutverk liðþjálfans af stakri sniild. Upphaflega var Lee Emery ráðinn sem tæknilegur ráðgjafí við gerð myndarinnar, en því starfí hafði hann áður gegnt hjá leikstjóranum Coppola við tökur á mynd- Eftir SÓLVEIGU ANSBACH inni Apocalypse Now. Stanley Kubrick gerði sér hins vegar fljótlega grein fyrir því, að þessi kraftalegi náungi, sem færði honum 200 blaðsíður af fúkyrðum upp í hendum- ar, var einmitt sá liðþjálfí, sem hann þurfti á að halda í myndinni. LEIKSIGUR D’ONOFRIOS Með hlutverk ungs hermanns fer leikar- inn Matthew Mondine. Hann lék m.a. sálsjúkan mann í mjmdinni Birdy eftir Alan Parker, og á síðastliðnum fjórum ámm hefur hann alls leikið í 7 kvikmyndum. Ungi maðurinn tekur heilaþvottinum hjá liðþjálfanum ekki alveg mótþróalaust; þeg- ar á vígstöðvamar er komið blasir raun- vemleikinn við honum í allri sinni skelfílegu mynd. Vincent d’Onofrio leikur vin hans, „Pyie“, d’Onofrio varð að safna nokkmm holdum til að falla vel að hlutverkinu. „Pyle“ er blíðlyndur, óseðjandi mathákur, og verður í fyrstu fómarlamb Hartmans liðþjálfa. „Pyle“ breytist í eins konar vél- menni í þjálfúnarbúðunum. En þessi auðsveipa sál fer þó fljótt úr skorðum: Eft- ir að hafa sprengt liðþjálfann í tætlur stingur „Pyle“ byssunni upp í munninn og hleypir af. Gert er ráð fyrir því, að Vincent d’Onofrio hljóti Óskarsverðlaunin fyrir frammistöðu sína í þessari mynd. Þá þykir og líklegt, að d’Onofrio leiki Elvis Presley í sjónvarpsþáttum, byggðum á æviminning- um fyrrum eiginkonu hans, Priscillu. Áður eij d’Onofrio getur tekið að sér að leika Elvis Presley verður hann þó að grenna sig aftur eftir vistina hjá Kubrick og öðlast eðlilega líkamsþyngd á ný. Sneri Baki Við HOLLYWOOD Þegar Stanley Kubrick hafði lokið við gerð kvikmjmdar sinnar Lolita 1962, settist hann að fyrir fullt og allt í Englandi. Og þar var þessi nýjasta mynd hans, Full Met- al Jacket, tekin upp. Velgengni hans á sviði kvikmyndagerðar hefur gert honum kleift að byggja upp smátt og smátt, lið fyrir lið, þétta viðamikla og sérstæða kvikmynda- verk, sem hann hefur nú látið frá sér fara. í Estree kvikmyndaverinu í Lundúnum hef- ur hann ákjósanlegustu aðstöðu til kvik- mjmdagerðar, og þar hefur hann unnið að gerð mynda á borð við 2001 (1965), Clock- work Orange (1971), Barry Lyndon (1975) og svo Shining( 19J9). I Estree hefur hann fijálsar hendur. Á sama hátt og Orson Welles forðum, stjómar Kubrick sjálfur eig- in Hollywood,' ef svo má að orði komast. í Qölmörg ár hefur hann verið að vinna að undirbúningi að töku kvikmyndar um Napoleon. Hann þekkir orðið út í æsar hvert atriði í söguþræði væntanlegrar myndar, og hann er meira að segja búinn að leysa vandann í sambandi við Napoleon á jmgri árum og á síðari æviskeiði eins og hann þarf að birtast í kvikmvndinni. Sú lausn, sem Kubrick fann því á máli, er að vinna einfaldlega við upptökur á myndinni á það löngum tíma, að A1 Pacino í hlut- verki Napoleons verði orðin fímmtugur að aldri þegar kvikmjmdatökunni lýkur. Svo einfalt er málið — og ekkert virðist Kubrick ómögulegt. Hinn skelfílegi raunveruieiki Víetnamstríðsins.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.