Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Side 10
List hins
ómögulega
Þolinmóðir
viðgerðarmenn
safnmuna hafa
undanfarin tvö ár unnið
að því að taka niður og
flytja til
Kaupmannahafnar 44
fermetra veggmynd eftir
Asger Jom, sem hann
málaði beint á vegg í
sumarbústað. Með
verkkunnáttu,
þrautseigju og einhverju
sem líkist göldmm hefur
þeim tekizt það, sem
flestir hefðu álitið
óvinnandi verk.
Sagan hefst á Læsö í Katte-
gat sumarið 1965, þegar
Börge Birch, listaverkasali,
er að vinna í stóra garðinum
með birkitijánum við sumar-
bústað þeirra hjóna. Hann
nýtur aðstoðar vinar síns,
Asgers Jom, og þeir eru að baxa við vél-
sagir.
— Eg er orðinn þreyttur og ætla að fara
inn.og fá mér öl, segir Asger, um leið og
hann vekur athygli á silfurlit birkitijánna.
— Jájá, gerðu það bara, segir Börge og
heldur áfram að saga. En þegar liðnir em
næstum þrír tímar finnst honum þó sem
hvíldin hjá vininum Asger sé orðin nokkuð
löng. Og svo var hann orðinn þyrstur sjálfur.
En á leiðinni í bústaðinn rekst hann á
Asger Jom allan ataðan rauðum, grænum,
gulum og bláum málningarblettum.
— Þú verður að afsaka, en ég er búinn
að svína út vegginn hjá þér, segir Asger.
— Þá verður Karie alveg galin, segir
BÖrge og verður hugsað til þess, hversu oft
þau hjónin hafí talað um, að á Læsö eigi
þau að vera í sumarfríi — einnig í fríi frá
listinni, og þess vegna eru veggimir alhvítir.
Þegar heim kemur inn i stofuna, er máln-
ing í loftinu, á húsgögnunum, gólfinu og
veggjunum. En útkoman! Hann er magnað-
ur hann Asger! Myndin nær yfír fjóra veggi.
Og slíkt fjör og kraftur er í henni, að hún
hefur skotizt inn í lítinn gang og ærslazt
þar um veggi líka.
— Ef þér líkar ekki við myndina á morg-
un, þá málum við bara veggina hvíta aftur,
segir Asger. En hvorki Börge né Karie verða
leið yfír því, að veggimir skuli ekki vera
hvítir lengur, og á næstu summm, þegar
Asger er í heimsókn hjá þeim á Læsö, grípur
hann pensilinn stöku sinnum og bætir um
betur.
— En meira en fímm tímum samtals hef-
ur Asger ekki eytt í að skreyta veggina hjá
okkur, segir Börge Birch.
Myndia sýnir hluta af veggmyndinni í sumarbústað Börge Birchs í Læsö, áður
en hafizt var handa um að taka hana af veggnum.
Hluti af málverkinu er nú tilbúinn. Lag af gerviefni, sem sprautað var á það,
og ýmis konar umbúðir hafa verið fjarlægðar, en það er svo sett á ósveigjanlega
plötu. Málverkið var tekið af veggnum í sjö hlutum, sem síðan voru settir saman
í Kaupmannahöfn.
Myndimar sýna gang mála í sumarbú-
staðnum. Viðgerðarmennirnir em að
gera yfirborð veggjarins það sterkt að
hægt verði að vinda málverkið af
veggnum. Á mynd 4 er málverkið kom-
ið til Hafnar og undirbúningur hafinn
að því að fjarlægja lagið af yfirborði
veggmyndarinnar.
m