Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Blaðsíða 12
/T
Er hönnun
okkar?
"mr ugtakið hönnun hefur margþætta merkingu.
í víðustu merkingu nær hönnun til þeirrar
sérgáfu mannsins að geta skipulagt fram-
kvæmdir sínar
kemur, en það
Hönnun er alltaf að
verða mikilvægari, áj)ví
er ekki nokkur vafi. í
sumarlok sótti
undirritaður
hönnunarráðstefnu í
Amsterdam á vegum
Form ísland og vakti
ráðstefnusetan nokkrar
áleitnar spurningar um
atvinnuþróun hérlendis
og möguleika okkar.
Fyrirlestrarnir á
ráðstefnunni voru yfir
50 talsins, auk
umræðufunda og
kynninga og því er
vandaverk að velja
áherzluatriði. Þær
hugleiðingar sem hér
fara á eftir byggja að
mestu á nokkrum
fyrirlestranna og það eru
einkum þrjú atriði sem
tekin verða fyrir: mat á
væntanlegri þróun,
táknheimur hlutanna og
að lokum hvernig tengja
megi þessar hugmyndir
stöðunni á íslandi nú á
tímum. En fyrst verður
Qallað lítillega um þátt
hönnunar og skilning
undirritaðs á
hönnunarhugtakinu.
EftirÖRND.
JÓNSSON
áður en til framkvæmdar
er sá eiginleiki sem skilur
manninn frá öðrum dýrategundum. Hönnun
sem sjálfstætt starfsvið er aftur á móti
nútíma fyrirbæri t.d. eru ekki nema um
10.000 „löggiltir" iðnhönnuðir starfandi í
heiminum í dag.
Hönnuðurinn hefur þann starfa að búa
til tæknilega eða fagurfræðilega ákveðinn
hlut, umhverfi eða jafnvel ákveðna þjón-
ustu. Margir hlutir sem við teljum vel
hannaða voru smíðaðir án þess að smiðurinn
teldi sig vera að „hanna“. Hann var að vinna
í anda þess verklags, tæknistigs og þeirra
hefða sem ráðandi voru á þeim tíma er
verkið var unnið. Þess vegna hefur það
tvíþætta merkingu þegar við segjum að
þörfin fyrir hönnun hafi aldrei verið meiri
en nú. annars vegar hafa tengslin milli
ætlunar og útfærslu sem áður voru eðlileg
rofnað og hins vegar er heimurinn sem við
lifum í orðinn mun margbrotnari en áður.
Þarfimar eru Qölþ'ættari, tæknin þróaðri og
möguleikamir á samsetningu óendanlegir.
Þegar skóarinn smíðaði stígvél fyrir
kerrusmiðinn var hann ekki að „framleiða
fyrir markað", heldur að vinna ákveðið verk
fyrir nágranna sinn. Aukin þörf fyrir hönn-
un stafar fyrst og fremst af því að við emm
aftur að nálgast þá stöðu sem skóarinn var
í: Að vinna ákveðið verk fyrir kröfuharðan
kaupanda, sem vill að verkið sé unnið sér-
staklega fyrir sig. Tímabil staðlaðrar fjölda-
framleiðslu er í vissum skilningi að líða
undir lok. í stað seljendamarkaða koma
kaupendamarkaðir. Fæstir gera sig ánægða
með að kaupa tölvuhugbúnað, þeir vilja fá
hugbúnað sem hæfír þeim aðstæðum sem
þeir vinna við. Kaupa lausnir. Verkbókhalds-
kerfið verður að vera í samræmi við
vinnuskipulag fyrirtækisins og eigi að selja
hann á íslandi verður hann að vera á
íslensku. Krafa nútímans era sérsniðnar
lausnir á fjöldaframleiðsluverði. Við slíkar
aðstæður er hönnunin í fyrirrúmi. f þessari
greinagerð er hönnunarhugtakið látið ná
til: vöru — umhverfis — ímyndar.
AÐ Sjá fram í tímann
Vart þarf að ítreka þá staðreynd að for-
senda fyrir samkeppnishæfni er að sjá fyrir
breytingar. Eitt af því sem var hvað mest
spennandi á ráðstefnunni var mismunandi
framtíðarsýn fyrirlesara.
Þróunin sem orðið hefur frá seljenda-
markaði til kaupendamarkaðar á sér margar
forsendur. Sú mikilvægasta liggur sjálfsagt
í breyttum neysluvenjum. Hinn breiði hópur
neytenda, miðstéttin í iðnvæddustu ríkjum
heims, mótar í raun neysluvenjur alls heims-
ins í dag. Þessi hópur hefur verið að breytast
í samsetningu og gerir nú aðrar kröfur en
áður. í takt við þetta hefur átt sér stað ör
tækniþróun sem gengur í nokkuð aðra átt
en menn ætluðu. Þar ber fyrst að nefna þær
breytingar sem tengdar upplýsingatækn-
inni. Annars vegar er það tæknin sjálf, hins
vegar afleiðingar hennar.
Tölvutæknin sem slík er ákveðin grann-
tækni sem gerir framleiðendum kleift að
sérhanna fyrir ákveðna notendahópa ná-
kvæmiega það sem þeir óska eftir. Tölvu-
íslenzk hönnun: Ullarfatnaður frá Sambandi ísl. samvinnufélaga í auglýsingabæklingi fj
útflutning.
íslenzk hönnun: Húsgagnalína í bamaherbergi frá Axis. Hönnuður: Pétur Lúthersson.
vædd framleiðsla dregur úr nauðsyn
seríustærðar þannig að nú er hægt að fram-
leiða sérhannaða hluti í litlu magni, en með
hagkvæmni fjöldaframleiðslu.
A ráðstefnunni birtist þetta m.a. í því'að
hönnunarstöðvar, bæði til hönnunar fram-
leiðsluvara og myndrænnar framsetningar
er orðin það þróuð að allar tilraunir, lagfær-
ingar og sérútfærslur má gera á teikniborð-
inu og í mörgum tilfellum senda niðurstöð-
umar í stafrænu (digital) formi beint til
framleiðslutækjanna eða til útprentunar, ef
um grafíska hönnun er að ræða. Sérhæfð
fjölhæfni er framleiðsluháttur nútímans,
þ.e. framleiðandi eða þjónustuaðilinn velur
sér afmarkað svið en ræður yfir mikilli fjöl-
hæfni á því sviði. Allir fyrirlesarar vora á
einu máli um þetta og þær hönnunarstöðvar
sem vora til sýnis á staðnum undirstrikuðu
þessar breytingar enn frekar. Neytendur
gera síðan auknar kröfur þegar þeir átta
sig á möguleikunum sem era til staðar.
í iðnaði má m.a. sjá þetta í fataiðnaðin-
um. Afgreiðslutíminn styttist verulega og í
stað þess að tískubreytingar verði fjóram
sinnum á ári, birtast þær nú í verslunum
með slíkum hraða að göldram er líkast.
Breytingamar era miklar á neysluvöra-
markaðnum, en jafnvel meiri á framleiðslu-
vöramarkaðnum, þar sem framleiðendur
bjóða nú sériausnir sem óhugsandi hefði
verið fyrir nokkrum áram. Það er ekki að-
eins tölvutæknin sem ýtir undir þessa þróun,
framboð á sérhönnuðum efnum s.s. plasti,