Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Qupperneq 14
stöðu. Það var hálfgerður vísindaskáldsögu- bragur á hugmyndum hans, en samt vakti fyrirlestur hans áleitnar spumingar sem skipta jafnvel eins miklu máli og töraunir Edelkort til að vinna sig inn í nánustu framtíð. Sameiginleg einkenni líftækni, efnistækni og tölvutækni eru að vísindamenn eru farn- ir að vinna með innri gerð efna, iífvera og boðferla. Lífiæknin fæst að hluta til við „stýrikerfi" sjálfra frumnanna eða lífsíns; erfðaeiginleikana. Með því að breyta erfða- eiginleikum er hægt að búa til nýja eigin- leika. Jafnvel þótt flestir vísindamenn myndu afskrifa möguleikann á því að í framtíðinni væri hægt að skapa eftirmynd mannsins (og taka þar með það sæti sem guð hefur haft einkaleyfi á fram að þessu) er nú hægt að búa til „nýja“ tómata og hanna nýja ávexti (eins og t.d. Kiwi). Bakt- eríur eru „sérhannaðar" í stórum stíl. Vísindin hafa um nokkurt skeið ráðið yfir tækni til að búa til efni sem ekki eru til í náttúrunni og örgjörvamir nálgast æ meira þá orku sem býr í smæstu einingunum. Ofurleiðaramir ýta enn undir þessa þróun. Þekking okkar á innri gerð efna, bæði lífrænna og ólífrænna er orðin slík að hag- nýting hennar getur á mjög skömmum tíma gjörbreytt atvinnulífinu. Fimm ár eru jú skammur tími í atvinnuþróun. Hönnun á innri gerð og ytri umgjörð verða þá að miklu leyti óaðskiljanlegir þættir. Það er hættulegt að tapa sér í framtíð- armúsíkinni, en þó er enn hættulegra að horfa framhjá þessum breytingum, vegna þess að þær eru raunverulegar og hafa mikil áhrif. Tækni getur á 30 árum breyst úr því að vera sérvitringslegar tilraunir yfir í að verða öflugustu iðngreinar heims, eins og efnafræðin og tölvutæknin eru skýrustu dæmin um. Menntunarstig mannkynsins er orðið slíkt að þróunin tekur jafiivel enn styttri tíma. Það er Ijóst að mestöll hönnun og framleiðsla verður unnin með aðstoð tölvu og einnig er hægt að gefa sér að hlut- ur líftækninnar eykst í nánustu framtíð, sérstaklega fyrir matarframleiðsluland eins og Island. Þetta var innskot, en varðandi raunsæjar þróunargreiningar er Ijóst að án þeirra kom- umst við ekki iangt. Framtíðarspár eru orðnar jafn mikilvægum þætti í hönnunar- starfinu og útfærslan sjálf — að vera í takt við tímann svo notað sé slitið orðtak. TÁKNHEIMUR HLUTANNA Hönnun nær ekki aðeins til hiutarins sjálfs eins og áður var getið heldur einnig tíl umhverfis og ímyndar. Það sést t.d. í þeim tilfellum sem húsgögn hafa orðið sölu- vara að góð hönnun á eínum hlut dugir ekki. Bæðí Staceó- og Sóleyjarstóllinn hafa kallað á viðbótarlausnír ' þannig að hægt væri að bjóða upp á ákveðna heildarlausn. Sama er að segja um bamasvefnherbergis- húsgögnin sem Pétur Lútersson hannaði fyrir Axis. Markaðurinn krefst lausna, ekki einangraðra hluta. Áherslan á heildarlausn- ir leiðir til að þær verða að höfða til ákveðins og vel skilgreinds markhóps. Þetta eru ekki annað en grunnreglur nútíma markaðs- fræði. Síðan hefur verið farið að krefjast þess af hönnuðum að þeir séu sér meðvitaðir um þær leikreglur sem einstök „stílbrigði" krefj- ast. Að vissu marki kemur þetta að sjálfu sér. Ákveðnir litir eru í tísku, hönnuðir þekkja til nýrra tæknilausna sem vitað er að eftirspum er eftir o.s.frv. Það liggur svo að segja í loftinu að nærtækara sé að út- færa hlutina á einn hátt fremur en annan. Innan raálvígindanna hefur verið þróuð greiningaraðférð, málmyndunarfræði, sem gerir það mögulegt að bijóta texta niður í frumeindir sínar og kortleggja þannig leik- reglumar. Fyrir þó nokkru var farið að nota þessar aðferðir í bókmenntum, lista- og kvikmyndagagnrýni og er táknfræði (se- manties/semioties) nú orðin að mjög öflugri greiningaraðférð. Fyrir nokkrum árum fóru síðan hönnuðir að ræða það sín á milli hvort ekki væri raunhæft að nota greininguna sem verkfæri og snúa þar með dæminu við. I stað þesa að lesa eingöngu umhverfið er niðurstíiðum lestrarms beítt á sjálfu hönnun- arst.iginu. Rétt eins og hægt er að fá uppflettibækur um líkamsbeitingu ogergón- ómíska útreikninga þá er nú að verða hægt að fá leifcreglur mismunandi stílbrigða. Hér er iíklega verið að segja frá einföldum hlutumi á flókinn hátt, en breytingin felst í eftirfarantfe Áður fyrr iitu hönnuðir hönnuð- ir svo á íog reyndar affir skapandi listamenn) að þær aðferðir sem jjedr ynnu eftir og þau stílbrögð sem þeir þróuðu væru framþróun sem væri komm ti! að vera. Menn aðhyllt- ust ákveðna hugmyndafræðj og trúðu að sjálfsögðu & það sem þeir' voru að gera. Þannig var fúnksjónalismmn svar við þeirri kröfu tímans að hanna emfaida og stflhreirva Það smáa er stórt -jafn- vel pennasett selst í stórum stíl vegna góðr- ar hönnunar. Lamy- pennasett eftir Þjóðveijann Wolfgang Fabian. hluti sem væru fjöldaframleiðanlegir. Sama var að segja um mismunandi myndlistar- stefnur, þær voru ákveðin leið til að sjá heiminn á nýjan og ferskan hátt. Nú er aftur á móti komin upp sú staða að stflbrigð- in eru orðin fjölmörg og það er ekkert sem segir að einn stfll sé öðrum æðri. Að baki liggur þróun sem Edelkort myndi nefna „langbylgju!. Áhrif fjölmiðlunar hafa aukist verulega og einkum er myndræn §öl- miðlun orðin stærri þáttur í lífi okkar. Til eru kenningar um að myndmálið sé að taka við af ritmáli sem meginleið til skilnings okkar og upplifunar á umhverfinu og stöðu okkar í heiminum. Sjónvarpið, kvikmyndin og þróun í prentmyndatækni hefur gert heim okkar „myndrænni" og við erum að verða duglegri við að lesa myndir — erum orðin sjónrænt læs (visually literate) eins og það heitir á hönnunarmáli. Reynsluheimur okkar mótast í æ ríkara mæli af myndrænum upplýsingum. Með reynsluheim er átt við þá þætti í umhverfí okkar og samskiptum við aðra sem við meðtökum, meðvitað eða ómeðvitað og bú- um síðan til heimsmynd okkar úr. Það er ekki langt síðan landsmenn gátu tjáð hugs- anir sínar meðjþví að vísa í setningu eða sögupersónu í Islendingasögunum og við- mælendur voru með á nótunum. Nú er auðveldara að vísa í mynd eða fréttaþátt í sjónvarpinu ef koma á boðum til skila í knöppu fnrmi. Stríðið milli írans og íraka eru í. hugum okkar brennandi olíuborpallar, ekki málefnalegur ágreiningur. Hvort sem okkur líkar þessi þróun betur eða ver þá er hún staðreynd og ein af afleið- ingunum er að hún gerir hönnun mikilvæg- ari. við gerum strangar kröfur til forms og útlits. Reinhart Butter flutti fyririestur sem hann nefndi Semantics as Design Tool. Butter er prófessor við Ohio State Univers- ity og sagði frá lokaverkefni nemenda sinna sem unnið var í samvinnu við vörubfladeild Daimler Benz. Nemendumir fengu það verk- efni að hanna innréttingar vörubfla með tilliti ti! mismunandi stflbrigða. Þeir skipt- ost í hópa og höfðu aðgang að söíwö tæknðegu oppiýsjngunum og gáttr þar með I sönwi fbrsenður tfl; útfærste- Hver bópur athugaði síðan ieikreglur þess stíls sem þeir ætluðu að vinna eftir sem voru m.a. fúnksjónal, nútímalegur. eða framúrstefnu- legur. Nútímalegi stíllinn tók t.d. mið af því að algengt er að hjón skiptist á að keyra vörubíla á langferðum. Þá skiptast þau á um að aka og sofa. Það var sem sagt tekið tillit til þeirra þarfa sem tilheyrðu hverjum stí! fyrir sig, en það sem Butter lagði áherslu á var að táknheimur hlutarins eða um- hverfisins væri nánast jafn mikið mótaður af fyrri reynslu okkar og hugmyndum eins og hvemig hluturinn sem slíkur væri. Hann tók dæmi af „míkrófónum". { rauninni er nú hægt að hafa míkrófóna þannig að þeir sjáist varia, sbr. þá sem notaðir eru við ráðstefnur og festir eru á jakka, en popp- stjömur nota míkrófóna sem þátt í sviðs- framkomu sinni og hafa þeir þá óteljandi vísanir, eða mörg tákngildi. Hlutir hafa áru, ef þannig mætti að orði komast og við erum orðin leiknari að lesa þessa áru. Staðan Á Íslandi núna Vera má að þær hugmyndir sem hér hafa verið reyfaðar virðist sundurleitar og fræðilegar og komi okkur lítið við. Það væri þó varasöm afgreiðsla að mínu mati og mun ég reyna að færa rök fyrir því. En fyrst er hér örlítil samantekt. Þarfir eru margþættari og betur skilgreindar og tæknilegar forsendur til að uppfylla þær þróaðri. Niðurstaðan er aukin fjölbreytni. Það er ekki eingöngu notkun hlutarins sem ræður úrslitum heldur „sú saga sem hann ; segir" eða ára hans. Samkeppnishæfni nú ræðst öðru fremur af þeim skiiningi sem framleiðendur og söluaðilar hafa á möricuó- um, eða notkunarsamhengi þeirrar vörti sem selja á. Ég ætla að nefna tvö dæmi um vefhepp®- aðar íslenskar „uppfinningar" þar sem markaðsskilningur var til staðar og vörunm- ar voru hannaðar í takt við þann skiirííríg. f Þegar athugaðar voru horfur fyrir fiskaf- I urðir á Bandaríkjamarkaði kom í ljós að j neytewtom fétt efckr ttvfta hetóið á fiskinam né jrfirfettt það omátang sem fiskneysla til- 1 heyritt (í mörgum Evrópulötxtom þykir j fiskur ekki ætur nema harm sé matreiÁtor i í heilu lagi) og því var ákveðið að búa til fiskstauta. Fiskstautar falla fyllilega inn í skyndibitaímyndina. Brauðmylsnan hylur holdið og einsleit lögun veitir óvönum neyt- endum tryggingu fyrir því að hér sé á ferðinni hreinleg og „örugg" neysluvara, auk þess sem slík afurð er auðveld í með- ferð og neyslu. Neytandinn veit að hveiju hann gengur. íslendingar voru fyrstir til að markaðsfæra þessa vöru á Bandaríkjamark- aði og fjölmargir fylgdu á eftir, en náðu ekki sama árangri. Hönnunarhugmyndin var að feia fískinn og gera þar með mat úr einhveiju sem neytendum almennt var ekki um geð. Nú hafa aðstæður breyst. Hvítt fisk- holdið er orðið tákn heilbrigðis og hreinlætis og fiskurinn fellur vel að „langbylgju" létts, bragðmilds matar sem í senn er hollur, hita- einingasnauður og auðveldur í meðförum. Á sama tíma og stórfyrirtæki á borð við Camp- ell’s eru að fara úr dósasúpunum yfir í fiskrétti hefur annarri brauðhúðunarverk- smiðju ISC verið lokað. íslenska lopapeysan sem komst inn I bandarískar stórverslanir var hönnuð með hliðsjón af „millibylgju" eþnísks áhuga. Það komst í tísku að sækja í aðra menningar- heima stfl og venjur. Nægir að nefna indversku áhrifin og síðar þau japönsku. Snilldin í markaðshugmynd ullarpeysunnar var að grófleikinn og einfaldar framleiðslu- aðferðir urðu að jákvæðum eiginleikum. Mosatægjur eða mislitun, voru teikn um upprunaleika og náttúruleg einkenni vör- unnar (það var verra ef baggabönd fundust). Lopavörumar voru á ákveðinn hátt andsvar við borgarmenningu og nafnlausri fjölda- framleiðslu; afturhvarf til náttúrunnar. Fiskstautamir og lopapeysan hafa undan- farin ár verið stór þáttur í velheppnaðri útflutningsstefnu okkar, en nú eru báðar þessar vörur að nálgast hrörnunarskeið sitt, svo notað sé hugtak frá vömþróunarfræðun- um. Það þarf því að finna nýjar hugmyndir og nýjar ímyndir, sem eru í takt við þá strauma og þróunartilhneigingar sem nú eru ráðandi eða á uppleið. í því starfi verður hönnun að vera í lykilhlutverki, spá um væntanlega þróun og um leið skilningur á táknheimi hlutanna. Hvað fiskinn varðar verður okkur að tak- ast að vera með í þeirri byigju sem nú er á uppleið og kalla mættf „aóra kynstóð skyndibitanna“: Hvað ullina varðar verðum við að breyta ímyndinni úr „eþnískrí túnsta- vöru“ í „vandaða náttúruvöru” jafnvel með tengsl við útilíf. NIÐURLAG Ráðstefnur á borð við þá sem haldin var f Amsterdam era vítamínsprautur og heild- aráhrif þátttökunnar etv, að rrú fara í hönd áhugaverðír tímar fyrir þá sem fást víð hönnun og vöruþrówn. Gerðar eru mtklar kröfur til allra sem nálægt þessum mátom komast, en tækifærin era morg. Heiidin skiptir mestu mátí, eða eins og, handarískur markaósmaður sem Mr vstr & ferð fynr nokkm orðaði það á möðurmáli sínu: „If you ðoit't know where you are goin’, you’ll end etp somewhere,” sem má útleggja: Ef þó veíst ekki um ákvörðunarstaðinn, endar ferðin einhvers staðar. Möfwytor er <ramk.v8emdastjö<f lönfasirrssfo'fn- mar istaods-.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.