Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Page 22

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Page 22
t- ' . *>5JH BARNASKIÐAPAKKAR Pakki I Pakki III Blizzardskíði 70-90 cm ...kr. 2.580,- Blizzardskíði 130-150 cm ...kr. 3.760,- Geze skíðabindingar.. ...kr. 1.580,- Look skíðabindingar.. ...kr. 1.820,- Blizzard skíðastafir ...kr. 420,- Blizzard skíðastafir ...kr. 420,- Nordica skíðaskór ...kr. 2.270,- Nordica skíðaskór ...kr. 2.580,- kr. 6.850,- Pakki II kr. 8.630,- Pakki IV Blizzardskíði 100-120 ..kr. 2.930,- Blizzardskíði 160-175 ....kr. 4.270,- Geze skíðabindingar... ..kr. 1.580,- Look skíðabindingar. ....kr. 1.820,- Blizzard skíðastafir „kr. 420,- Blizzard skíðastafir ....kr. 470,- Nordica Nordica skíðaskór „kr. 2.270,- skíðaskór ....kr. 3.600,- kr. 7.200v- kr. 10.160v- FU LLORÐINSSKIÐAPAKKAR Pakki I Pakki II f. byrjendur f. dömur Blizzard skíði Blizzard Vice 160-185 cm ....kr. 4.550,- 160-185 cm ....kr. 6.100,- Look Look skíðabindingar. ....kr. 1.950,- skíðabindingar. ....kr. 1.950,- Blizzard Blizzard skíðastafir ....kr. 890,- skíðastafir ....kr. 890,- Nordica 1 Nordica skíðaskór ....kr. 3.810,- skíðaskór ....kr. 3.810,- kr. 10.900v- kr. 12.450,- Pákki III f. herra Blizzard Aluflex 170-195...........kr. 6.100,- Look skíðabindingar................kr. 1.950,- Blizzard skíðastafir...............kr. 890,- Nordica skíðaskór..................kr. 3.810,- kr. 12.450,- Póstsendum um allt land. I T unuF Glæsibæ, sími 82922. Zell am See í vetrarbúningi. Zell am See Það er aðeins klukkustund- arakstur frá Salzburg til Zell am See. Bærinn teygir sig út i Zellersee-stöðuvatnið, í 750-800 metra hæð. Staðsetningin er frábær. Nágrannabæirnir Zell am See og Kaprun voru út- nefndir sem „íþróttasvæði Evrópu“ árið 1968 og hafa gengið undir því nafni síðan. Á svæðinu er gefinn kostur á að stunda 31 alhliða iþróttagrein jafnt sumar sem vetur. Hægt er að æfa margskonar íþróttir eftir að komið er af fjalli á svæði sem liggur á milli jökuls og stöðuvatns. í Zell am See er skautahöll, sundhöll, reiðhöll og tennissalir. Að sjálfsögðu líka heilsu- og gufu- böð. Auk þess býður stöðuvatnið upp á skautaferðir á veturna. Mjög góð aðstaða er fyrir gönguskíðafólk. Ef einhver vill líta yfir svæðið án þess að klifra of hátt á skíðum, þá er boðið upp á útsýnisflug. Fyrir ofan bæinn rís Sehmittenhöhe-fjall í 2.000 metra hæð. 25 lyftur liggja upp á fjallið og flytja 48.500 manns á klukkustund. Skíðabrautirnar eru við hæfi flestra. Svigskíða- brautimar eru samtals um 125 km, en gönguskíðabrautir um 300 km. Ibúar Zell am See og Kapmn eru 10.600, gistirúm fyrir 13.500 manns. Innan við bæinn Kapmn er hægt að taka lyftu upp í fjalla- stöðina — Alpincenter. Þaðan er frábært útsýni yfir elsta sumarskíða- svæði Austurríkis. Frá fjalla-. stöðinni liggja lyftur upp í hlíðar Kitzsteinshom-jökulsins sem gnæfir í 3.209 metra hæð yfir „íþróttasvæði Evrópu". Þama er skíðað allt sumarið. Boðið er upp á margskonar skemmtanir eftir að fólk kemur af skíðum — og reynt að sjá til þess að ekki sé gengið of snemma til hvílu. Flugleiðir bjóða upp á íjóra gististaði í Zell am See, tvö hótel þar sem hálft fæði er inni- falið, gistiheimili sem býður upp á morgunverð og íbúðahótel. Dvöl í fjögurra manna íbúð í hálfan mánuð kostar um 30.000 krónur fyrir manninn. Gistiheimilíð Lind- enthal býður upp á tveggja manna herbergi í tvær vikur fyrir kr. 31.299 á mann, kr. 30.313 um páska. Flug og ferðir innifalið. AUSTURRÍSKA FJALLA ÞORPIÐ Ischgl Þeir sem vilja komast í lítið, friðsælt fjallaþorp og jafnframt fá tækifæri til að skíða á fjöl- breyttu skíðasvæði, ættu að skella sér til Ischgi með Ferða- skrifstofu Guðmundar Jónas- sonar, dagana 6.-20. febrúar. Flogið er til Zilrich með Arnar- flugi og ekið þaðan til Ischgl. Rútuferðin tekur um tvær og hálfa klukkustund. Ischgl er yfir 1000 ára gamalt fjallaþorp með aðeins 1200 íbúum. Það stendur í Paznau-dal, í 1400 metra hæð, á landamærum Aust- urríkis og Sviss, með há fjöll á báða vegu. Þorpið er einkar hlý- legt, gömul bændabýli standa við hlið nýtísku hótela sem að sjálf- sögðu eru byggð í alpastíl. Þegar " . . I Madeira. Tíu vikur evrópuferðir Klapparstig 25-27 101 Reykjavik 2? 628181 gengið er eftir þorpsgötunni rekst maður annaðhvort á tískuvöru- verslun eða fjós. Á kvöldin er lokað fyrir bílaumferð um þorpið svo ekki þarf að kvarta um hávaða frá bílum. íþróttamiðstöð er í Ischgl með sundlaug og aðstöðu til ann- arra íþróttaiðkana. Fjallaþorpin Ischgl og Samnaun í Sviss bjóða upp á sameiginlegan tveggja landa skíðapassa. Hann gildir í 57 lyftur í Paznau-dal auk Samnaun, einnig í strætisvagna á milli staðanna. Passinn kostar um 8000 krónur fyrir fullorðinn, en um 4.400 fyrir börn 6-15 ára. Silvretta-skíðasvæðið er talið mjög gott og fjölbreytt. Skíðað er á svæðunum Idalp (2311 m), Idjoch (2760 m), Greispitz (2872 m) eða Palinkopf (2864m). Sá sem er kominn í næga þjálfun rennir sér yfir til Samnaun (1840 m) og ekki sakar að hafa bakpoka með sér því Samnaun er tollfijálst svæði og þar er vinsælt að gera innkaup. Síðan er farið með pokann, fullan af tollfijálsum varningi, til baka í gegnum tollstöð í fjallaskarðinu, þar sem gamall maður bankar í Svifið upp í fjöllin. hann og spyr: „Hvað ertu með í pokanum góði?“ Gistirúm í Ischgl eru 5.500. Lyftugeta er fyrir 35.000 manns á klukkustund og Ischgl-búar hrósa sér af því að enginn biðtími sé í lyfturnar. Skíðabrautir eru um 150 km að lengd. Mikil áhersla var lögð á að spilla ekki samræmi við náttúruna þegar skíðalyftur voru byggðar í Ischgl. Eftir að komið er af fjalli er mikið §ör á litlu kaffihúsunum, jafnvel dansað á skíðaskónum. Mjög góð veitingahús eru í þorp- inu. Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar býður upp á gistingu í nýju hóteli — Garni Brigitte —. Þar er hægt að velja um tveggja manna herbergi eða íbúðir fyrir 3-4. Tveggja manna herbergi með morgunverði er á 49.850 krónur á mann. íbúðir með morgunverði eru á 57.250 krónur á mann.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.