Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1988, Síða 23
t
Kort yfir svæðið.
Spánn hefur löngum heillað
íslendinga. Imynd Spánar teng-
ist fyrst og fremst sólheitum
baðströndum. En Spánn getur
lika hoðið upp á hvítar snjó-
breiður og góða skíðaaðstöðu.
I vetur bryddar ferðaskrifstofan
Utsýn upp á þeirri nýjung að
blanda saman skíðaferð og bað-
strandarlífi. Farþegar geta tekið
beint leiguflug aðra leiðina til eða
frá Malaga — og Flugleiðaflug
með tengingu við áætlunaifiug
spánska flugfélagsins Iberia í
gegnum London, hina. Að sjálf-
sögðu eigu farþegar völ á að stoppa
í London til að gera hentug inn-
kaup, fara í leikhús og fleira.
Komið er til Malaga að kvöldlagi
svo að farþegum er ráðlagt að
dvelja fyrstu dagana á ströndinni.
Daglegar áætlunarferðir eru frá
ströndinni til Sierra Nevada.
Ferðatilhögunin gefur marga val-
Á gönguskíðum i Ischgl.
Þarna eru líka hestasleðar.
Kvöldverður
skíði
Og
r 1
solar-
strönd
kosti. — Þú getur sólað þig við
sjóinn í nokkra daga — farið síðan
upp í fjöllin og á ströndina aftur
ef þig lystir.
Sierra Nevada er syðsta skíða-
svæði Evrópu og trúlega það
sólríkasta. Hæsti fjallatoppur er
3.500 metrar, en hæsta lyftustöð
er í 3.000 metra hæð. Fyrir tveim-
ur árum var lyftubúnaður og
aðstaða endumýjuð og lagfærð.
Skíðasvæðið er með 50 km af lögð-
um skíðabrautum og 18 skíðalyft-
ur. Hægar, aflíðandi brekkur eru
ríkjandi á svæðinu. Sex daga
skiðapassi kostar um 2.900 krón-
ur. Aðeins 130 skíðakennarar em
við störf svo að auðvelt ætti að
vera að læra réttar svigbeygjur.
Fjögur veitingahús eru uppi í ijall-
inu þar sem hægt er að sitja og
sóla sig og njóta útsýnisins. I góðu
skyggni má sjá Costa del Sol og
Afríkustrendur.
Skíðabærinn Solynieve liggur 5
2.100 metra hæð. Þar er boðið upp
á gistingu bæði í íbúðum og hótel-
um. Fæði er yfirleitt ekki innifalið,
en mörg alþjóðleg veitingahús eru
í bænum. Meðalmáltíð kostar frá
350 krónum og upp úr, eins og
hver vill. Upphituð sundlaug er á
staðnum, aðstaða til íþróttaiðkana,
ölkrár og skemmtistaðir svo að
Spánvetjamir sjá um að engum
leiðist eftir að hann kemur af fjalli.
Um 30 km frá Sierra Nevada ligg-
ur borgin Granada sem er vinsæll
ferðamannastaður.
Dæmi um verð: Lægsta verð
fyrir tvær vikur er í litlum tveggja
manna íbúðum, 26.500 krónur fyr-
ir manninn. Aukavika á fjalli
kostar 6.100 krónur, en 2.900
krónur niðri á strönd. Verðmunur-
inn stafar af því að verðinu er
haldið lágu við ströndina þar sem
fátt er um ferðamenn á þessum
árstíma, en uppi í fjalli er aðal-
ferðamannatíminn.
m
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. JANÚAR 1988 23