Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Qupperneq 8
Lengur en sögur herma
hafa menn rýnt í
himintunglin og gert sér
þar af heimsmynd og
jafnvel leitað þar
skýringa á örlögum
manna og atburðum.
Menn gerðu sér
heimsmynd og frá þeim
hugmyndum forfeðra
okkar segir í Eddunum.
Greinin sem hér birtist
er leikmannsskýring á
þessum fornu fræðum
okkar og birt hér meira
til gamans og sem dæmi
um það sem nútíma
íslendingar grúska í. í
greininni er t.d. gert ráð
fyrir því að Askur
Yggdrasils sé
vetrarbrautin og í annan
stað er reynt að finna
samsvörun milli hins
norræna goðsagnaheims
og hins austræna, sem
enn lifir góðu lífi í
stjömumerkjunum.
FYRRI
HLUTI
Eftir
BJÖRN JÓNSSON
V. HEIMDALLUR
SeÍEeus
Sólmyrkvi.
ítölsk tré-
skurðarmynd
frá 16. öld.
Askurinn eystri
Lupus [ij
NIFLHEIMUR
GINNUNGÁGAP.c r ; , t
MlMI^BRbfíNUR v
Stjam-goðfræði skýringar. þær sem hér eru bomar fram em ágrip úr all-
ýtarlegri bók á ensku, sem nefnist Astral Aspects of the Eddas. Styttri íslensk
gerð nefnist Stjamvísi í Eddum. Útgáfa þessara bóka er væntanleg innan
skamms. í þeim em rökræddar þær kenningar mínar að margar goðsagnir
Eddanna séu stjarnmítar, þ.e. launsagnir eða allegóríur um sýnileg eða viðmið-
unarleg fyrirbæri á himni; svo sem gang
himintungla, bakhreyfíngu og hvörf sumra
þeirra, heiti stjama og stjömumerkja og
staðsetning þeirra á festingu; dýrahringi
tungls og sólar, jafndægur og sólhvörf, sól-
baug, fi-amsókn vorpunkts, samstöður og
sólmyrkva, stjömuhröp, halastjömur og
þokur. Ennfremur eru gefnar líkur að tíma-
og staðsetningu sumra atriða á jörðu.
Fyrst nokkur orð um goðspekilegan skiln-
ing fyrirbæra á himni, sem snerta þennan
þátt. Sólbaugurinn er ósýnileg braut sólar-
innar um stjömumerki dýrahrings. Honum
er oft lýst sem gylltum, t.d. Gjallarbrú, og
Fránangur. Ofan sólbaugs á festingu er ríki
eða höll goða, himinfestingin sjálf. Neðan
sólbaugs eru undirheimar, ríki Heljar og
hrímþursa. Það sem er að rísa, sól, tungl,
reikistjömur, einstaka stjömur og stjömu-
merki, fær algert vald yfír því sem samtím-
is er að setjast andspænis á sjóndeildar-
hring. Því sem er að setjast, er þá drekkt,
dregið yfír gijót og urðir, étið, fótumtroðið
eða gelt.
Askur Yggdrasils -
Vetrarbrautin
Það sem Qallað verður um í þessum