Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 19
SÉRSTAÐA ÍSLENSKA
Markaðsins
Forsaga þessarar samvinnu er
að nokkur íslensk hótel hafa verið
í samstarfi við Scanclass-hótelk-
eðjuna, en vildu segja sig úr henni
í haust þar sem markmið sam-
starfsins virtist ekki ná tilgangi
sínum á íslenskum markaði. Innan
Norðurlanda eru það aðallega fjöl-
skyldur sem ferðast í einkabílum
sem nota norræna hótelpassann.
íslenski markaðurinn stendur þar
fyrir utan. Aðaltakmark Scanc-
lass-hótelkeðjunnar, með því að
bjóða greiðslukort með afslætti,
er að bæta nýtingu yfir sumartí-
mann. Bæjarhótelin sem mynda
kjarnann’í hótelkeðjunni eru miklu
minna nýtt á sumrin, andstætt
íslenskum hótelum. Frambærile-
gustu hótelin í hverju bæjarfélagi
mynduðu þess vegna Scanclass-
hótelkeðjuna til að fá fleiri gesti
til sín yfir sumarið.
íslensku hótelin voru að hugsa
um að kljúfa sig út úr samstarfinu
vegna sérstöðu íslenska markaðs-
ins. En fulltrúar frá Inter Nord
og sænsku hótelsamtökunum
SARA komu hingað til viðræðna.
Þeir gerðu sér grein fyrir sérstöðu
Islands, en vildu ekki missa
íslensku hótelin út úr keðjunni.
Sérstök skilyrði voru sett fyrir
áframhaldandi samstarfi af hálfu
Islendinga.
1. Að ísland yrði auglýst meira í
Scanclass-bæklingnum og nyti
hagstæðari kjara. 2. Að meiri
áhersla væri lögð á að byggja upp
og þróa íslensku hótelin með því
að vera með sérstakt tilboð á
heimamarkaði.
HVAÐA VlLDARKJÖR
BÝÐUR HÓTELPASS-
INN?
Yfirskrift hans er „go as you ple-
ase“ sem þýðir að ferðast að eigin
vild — eða elta sólina — eins og
íslenskir ferðamenn kannast vel
við á hringferðum sínum um
landið. Miðað við íslenskar aðstæð-
ur er gott að staðfesta fyrstu og
síðustu gistinótt ferðalags um
landið, en hafa að öðru leyti frjálst
val um hvar og hvenær hótel-
passinn er notaður. Reglan er yfir-
leitt að gisting er ekki pöntuð fyrir-
fram. Hótelpassinn er aðeins sýnd-
ur við komu á staðinn og hand-
hafar eiga rétt á afslætti. Ef að
gistirými er ekki á lausu á fyrsta
hóteli, þá er séð um að útvega
gistingu á næsta hóteli í samtökun-
um. Á Norðurlöndum hefur hótelp-
assinn hentað mjög vel fyrir frjöl-
skyldur sem vilja gista í tjaldi þeg-
ar gott er veður, en geta líka átt
kost á ódýrari, fyrsta flokks gist-
ingu af og til á löngu ferðalagi.
Eddu hótelin hafa gefið út svip-
aða hótelpassa sem bera yfirskrift-
ina „open Edda“. Handhafar hótel-
passa fyrir Eddu-hótelin fá ákveð-
inn afslátt með því að ferðast á
milli hótelanna og panta gistingu
kvöldið áður. En Eddu-hótelin hafa
eingöngu verið með sína hótelp-
assa í gegnum erlendar ferðaskrif-
stofur og fyrir erlenda ferðamenn.
Rætt var um að vera með hótel-
passa fyrir íslendinga síðastliðið
sumar, en kom ekki til fram-
kvæmda.
Landsbyggðarhótelin innan
íslensku hótelsamtakanna eiga það
sameiginlegt að vera frambærile-
gustu gististaðirnir á sínu svæði.
Það er mjög líklegt að samvinna
þeirra eigi eftir að hrinda af stað
meiri sundurliðun og gæðaflokkun
á milli íslenskra gististaða og þá
um leið ólíkari verðmyndun í fram-
boði á gistingu. Ymislegt bendir
til að samtök íslensku hótelanna
séu jákvæð þar sem þau hljóta að
stuðla að betri þjónustu fyrir
íslenska ferðamenn og um leið fjöl-
breyttara úrvali á gistingu. íslend-
ingar ferðast mikið og markaðs-
þróun innanlands hlýtur að stefna
í að bjóða fjölbreyttara gistiverð
sem er í réttu hlutfalli við þjónustu
og gæði.
MISSAN SUNNY SEDAN. NISSAN SUNNY WAG0N 4 WD'
Á Akureyri: Nýja sýningarsalnum hjá Sigurði Valdimarssyni,
Óseyri 5A.
Verið velkomin
- Alltafheitt á könnunni.
3JA ARA
ÁBYRGÐ
INGVAR HELGASOINI HF
Sýningarsalurinn/Rauöageröi, sími 33560.
NISSAN - SUBARU
Bílasýning
í REYKJAVÍK OG Á AKUREYRI
LAUGARDAG OG SUNIMUDAG KL. 2-5
SUBARU
SUBARU STATION 4 WD.
NISSAN PATHFINDER4 WD.
SUBARU JUSTY 4 WD.
SUBARU XT 4 WD. Turbo
NISSAN PATROL4 WD.
NISSAN PRAIRIE4 WD.
NISSAN MICRA.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. FEBRÚAR 1988 19