Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Blaðsíða 10
Líkamsræktar- kona níunda tugsins sýnist geta hreyft sig frjálslega á móti sumu því sem kynsystur hennarmáttu þolafyrrá tímum. ímynd kvenlegrar fegurðar hefur verið mjög breytileg frá því ísaldarmenn gerðu sínar smástyttur af akfeitum konum. Hitt kom löngu seinna að konan væri þeim mun fegurri, sem hún væri mjórri, einkum í mittið, og þá tók við kvalaskeið lífstykkjanna. Á sjöunda áratugnum sáust minipilsin hvar sem var; til dæmis íroki og skafrenningi á ís- landi. Nútímakonur í bikini? Ónei, þær eru í mósaíkmynd úr Villa Romana í Róma- borg, sem talin er vera frá þriðju eða fjórðu öld. Aðflikka uppá sköpunar- verkið Eftir JUDY WADE Ef trúa má lýsingum listamanna og ljósmynd- ara sést að í aldanna rás hefur vöxtur og útlit kvenna tekið stórkostlegum breytingum. Bústnar fyrirmyndir Rubens á 17. og 18. öld líkjast í litlu drengjalegu stúlkunum á hinum Oft hefur tízkan orðið til þess að útlitið á kvenþjóð- inni varð æði langt frá sjálfu sköpunarverkinu; þó sjaldan eins ogá 16. öld í Englandi. Mittið erreirt saman, en vírgrind varlátin halda pilsinu út. Fyrirtæpun lOOárum þótti stundaglasið bezta viðmiðunin oglífstykkið var nauðsynlegt til að ná því markmiði. Drengjalegt útlit kom til sögunnar uppúr 1920: Bijóst- in voru falin, vöxt- urinn átti að vera eins og hefluð fjöl og klippingin drengjakollur. áhyggjulausu millistríðsárum. Og útlit glað- legu stundaglasvöxnu snótanna á síðasta áratug 19. aldar minnir lítið á sólbrúnar vaxtarræktarkonur dagsins í dag. Þegar skoðað er hvemig vexti konunnar hefur verið breytt, hann þvingaður og af- bakaður í gegnum aldirnar, kemur í ljós saga um áreynslu og öfgar, sem stundum endaði með veikindum, eða jafnvel dauða, allt í nafni tískunnar. Vitað er að þvingandi, fastreyrðir búning- ar hafa verið notaðir þegar á 8. öld f.Kr. Stytta af snákagyðjunni frá tíma Krítarveld- isins sýnir gyðjuna í lífstykki, sem gerði að verkum að pilsið lá þétt á mjöðmunum og undirstrikaði grannt mittið og beran barm- inn. Á mósaikmynd frá Piazza Armerini á Sikiley frá 3.-4. öld sjást konur með um- búnað um bijóstin, sem minnir á nútímaleg bijóstahöld. Ekki er vitað hvort þetta var aðeins hversdagslegur klæðnaður eða hvort þessum umbúnaði var ætlað að vekja at- hygli á barminum. Á fyrstu 10—11 öldum kristni voru klæði venjulega notuð í gagn- semis skyni, til að vemda gegn hita og kulda. Þó merki sjáist um tískufyrirbrigði var lítið gert til að breyta lögun líkamans. Á 14. öld tóku myndlistarmenn og rithöf- undar að gefa kvenlegum yndisþokka og fögrum vexti meiri gaum í listsköpun sinni. Með því var lagður grundvöllur að aðskom- um, þvingandi undirfötum, sem urðu síðar allsráðandi. Á 16. öld var í tísku að draga athyglina að áberandi maga, eins og sjá má mörgum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.