Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1988, Side 20
Ferðavarningiir fyrir
heimshornaflakkara
vert sem
ferðinni
er heitið
- í sól,
snjó eða
á sjó —
verður
ferðalag-
H
ið auðveldara ef þær eru með
í farangrinum, segir í kynn-
ingu.
Ferðamaður er förumaður sem
flýgur á milli heimshorna með
persónulega fylgihluti samþjapp-
aða niður í ferðatösku. Það verður
að fara lítið fyrir hveijum hlut,
en samt á allt að vera til staðar.
Hvar sem ferðamaður er staddur
hvort sem það er norður við heim-
skautsbaug eða suður við mið-
baug — gistir í tjaldi eða á hóteli
— vill hann hafa þau þægindi sem
hann er vanur.
En erfítt getur reynst að flytja
allt hafurtaskið með sér, sem er
ýmist of fyrirferðarmikið eða
ónothæft í öðru landi. Hver kann-
ast ekki við óþægindi eins og að
innstungur fyrir hárþurrkuna eða
rakvélina passa ekki eða straum-
urinn er annar? Kaffílöngun vakn-
ar um miðja nótt. Urið fer úr
skorðum við að færa það fram
og til baka og erfitt er að henda
reiður á tímamismun á milli
ákvörðunarstaða. Örsmá fluga
getur stungið svo illa að nætur-
lagi að fríið er eyðilagt að hluta.
Allt eru þetta vandamál sem flest-
ir heimshomaflakkarar þurfa að
glíma við, nema þeir séu svo for-
sjálir að kaupa ferðavaming sér-
hannaðan fyrir flökkufólk.
Vandamálin eru til að leysa
þau. Sölutækni nútímans lætur
ekkert fram hjá sér fara og ný-
lega hefur sprottið fram á sjónar-
sviðið margskonar varningur sem
er seldur undir vöruheitinu „ferða-
vamingur fyrir heimshomaflakk-
ara“. Þar er leyst úr ofangreind-
um vandamálum og mörgum
óþægindum í sambandi við ferða-
lög. Við skulum líta nánar á úrval-
ið.
ErtuAðSpurja
HVAÐ
KlukkanSé?
Þú ræður yfír öllum heimsins
tíma með „ferðaklukkunni" sem
lagar sig að tímaskiptunum og
sýnir samtímis staðartíma og
þann tíma sem valinn er hvar sem
er í heiminum. Alþjóðlega ferða-
klukkan kemur í veg fyrir enda-
lausar stillingar á ferðalögum og
símhringingar í önnur heimshom
á vitlausum tíma sólarhringsins.
Klukkan, sem hentar vel í vasa,
er aðeins stærri en greiðsiukort
og er vekjaraklukka samtímis og
sýnir vel klukkustundir, mínútur,
Alþjóðlega ferðaklukkan
sekúndur, mánuð og dagsetningu.
Örsmá A76 rafhlaða heldur henni
gangandi. Klukkan er með þægi-
legan náttborðsstand og útfærð
með hlífiloki sem hefur að geyma
kort yfír tímabeltin ásamt helstu
heimsborgunum.
ÖRYGGIFARANGURS
Flestir ferðamenn hafa ein-
hvem tíma óskað þess að þeir
væru með augu í hnakkanum,
þegar þeir þurfa að skilja farang-
ur sinn eftir, þó það sé ekki nema
smástund. Farþegar eru eindregið
varaðir við að skilja hann eftir
eftirlitslausan, til dæmis í flug-
höfnum. í vamingi fyrir heims-
homaflakkara fínnst líka meter-
slöng öiyggisstálkeðja sem er
haganlega rúllað upp inni í hólk
eins og málbandi. Hvar sem ferð-
ast er í flugi, bíl, lest eða feiju
kemur þessi litla stálkeðja að góð-
um notum til að festa farangur
saman eða til að hefta hann við
farangursgrindur. Keðjan kemur
sér vel til dæmis til að festa skíði
eða annan íþróttabúnað saman,
reiðhjól, bamakeirur og fleira
verðmætt sem fylgir í farangri.
Það fer lítið fyrir hólknum í vasa,
þegar keðjan er ekki í notkun.
50 herbergi, með baði,
beinum síma, útvarpi, lit-
sjónvarpi og video, mini-
bar og herbergisþjónustu.
Hótelið hefur nýlega vcrið stækkað
og cndurnýjað og allur aðbúnaður
rétt eins og best gerist.
Njótið góðra veiga og veit-
inga i notaiegu unihverfí.
Glæsilegir veitingasalir,
bar og kaffitería.
HOTEL KEA
Listaverkið Berlín eftir Birgitte og Martin Matschinsky-
Denninghoff sýnir borgina á táknrænan hátt.
Berlín, menningar-
borg Evrópu 1988
að verður mik-
ið um að vera
í Berlín þetta
ár, þar sem
borgin hefur
verið kosin
menningar-
borg Evrópu 1988. Aþena, Flór-
éns og Amsterdam hafa áður hlot-
ið þennan eftirsótta titil. Þýska
borgin verður kynnt út frá þremur
aðaláherslupunktum: — Berlín,
vettvangur nýrra hugmynda —
Berlín, miðkjami
listasýninga — Berlín, borgin í
hjarta Evrópu.
Fjölbreytt úrval af menningar-
og listviðburðum er á boðstólum
fyrir ferðamanninn sem sækir
Berlín heim 1988. Hljómleikar,
leiksýningar, sýning á byggingar-
list,. bókmenntaspjall, tísku- og
málverkasýningar, allt á heims-
mælikvarða. Menningarborgin á
að sýna það besta sem hún býr
yfír og kalla til sín alþjóðlega
snillinga svo að gestir hennar fari
reynslunni ríkari til stns heima.
Meðal helstu listkynninga er
málverkasýning málarans og
listamannsins Joseph Beuys.
Mörg af bestu verkum hans verða
sýnd í Martin Gropius sýningar-
höllinni frá 20. febrúar til 1. maí.
Á tónlistarsviðinu beinist athyglin
að Johannes Brahms og Amold
Scönberg. Nokkrar heimsþekktar
hljómsveitir munu leika tónverk
þeirra frá júlí fram í nóvember.
Meðal stjómenda má nefna nöfn
eins og Daniel Barenboim og
Herbert von Karajan.
„Ágústus keisari og týnda lýð-
veldið" nefnist yfirgripsmikil
sögusýning sem verður opnuð 6.
júní og stendur til 14. ágúst. Mið-
punktur sýningarinnar er líkan
af Kapitólum í Róm. Reynt verður
að sýna hvemig þýskir menning-
arstraumar hurfu inn í rómverska
menningu á þessu tímaskeiði sög-
unnar. „Óbundin af tíma“ nefnist
sýning sem reynir að sýna það
helsta í nútímalist. Og frá 9. júní
til 4. september eða yfír helsta
ferðamannatímann rekur hver
listviðburðurinn annan í þýsku
menningarborginni.
Óskarsverðlaunin í kvikmynda-
list hafa hingað til gæðamerkt
kvikmyndir, en núna verða kvik-
myndaverðlaun Evrópu veitt í
fyrsta skipti. Athöfnin fer fram
26. nóvember. Yfir 50 frægir rit-
höfundar frá Austur- og Vestur-
Evrópu munu koma saman í
Berlín dagana 24. til 29. maí til
að skiptast á skoðunum um ólík
lífsviðhorf í hinum ýmsu Evrópu-
löndum. „Draumsýn Evrópu" er
þemað sem þeir ganga út frá og
viðbúið að umræðumar muni ná
langt út fyrir venjulegt bók-
menntasvið. Berlín er líka tísku-
borg og nöfn margra fatahönnuða
hafa náð langt út fyrir borgar-
mörkin. En sjón er sögu ríkari í
þýsku menningarborginni fyrir
árið 1988. Allir ferðamenn sem
hafa á annað borð ánægju af
menningu og listum ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfí í
Berlín.
AKUREYRI
Haf'narstrieti 87-89, 600 Akureyri, f’óstliólf 283 Sími: (96)-22200, Telex: 2195 kea is
Yfir 80 áætiunarflugvélar lenda á Tegel-flugvelli í Berlín dag
lega. Um 20 hraðlestir koma til Berlínar-brautarstöðvarinnar
á dag viðsvegar að frá Þýskalandi og að auki alþj'óðlegar lest-
ir frá Amsterdam, Brussel, París og ZÚurich.
20