Lesbók Morgunblaðsins - 27.08.1988, Qupperneq 11
í safninu eru nú um 160 þúsund handrit
og skjöl, um 700 prentaðar bækur og um
100 þúsund handrit með sýnishomum af
leturgreftri, auk fjölda fomra landabréfa,
sem hafa ómetanlegt sögulegt og menning-
arlegt gildi.
PÁFAÍBÚÐIN
íbúð Alexanders VI Borgia sem var páfí
í ellefu ár, um aldamótin 1400 og 1500,
hefur nú verið gerð að safni. í íbúðinni em
sex herbergi og meðal annars hið svonefnda
Páfaherbergi, þar sem áður fóm fram hátí-
ðlegar móttökur páfa. Þetta er stærsta her-
bergi íbúðarinnar, en hún er öll fagurlega
skreytt og vekja freskumyndimar á öllum
veggjum og í lofti sérstaka aðdáun og at-
hygli-
Þar er páfinn Valinn
Sixtinska kapellan í Vatikanhöllinni er
sjálfsagt ein sú þekktasta, en þar safnast
kardínálar saman til að velja sér páfa. Flest
allt í Vatikaninu í Róm er svo fagurt að
engin orð fá lýst þeirri tilfinningu sem fylg-
ir því að skoða sig þar um. Sixtínska kapell-
an er engin undantekning, því hún er ein-
faldlega stórkostleg. Þetta er hin opinbera
og persónulega kapella páfa og em í henni
ótal listaverk frá fimmtándu og sextándu
öld. Giovannino dei Dolci byggði kapelluna
eftir teikningum Baccios Pontelli á ámnum
1475 til 1482, og er hún nefnd eftir Sixt-
usi IV páfa sem lét byggja hana. Tólf fresk-
ur þekja veggi kapellunnar, sex á hvora
hönd. Ofan við altari kapellunnar er „Dóms-
dagur“ sem Michelangelo málaði á árunum
1535 til 1541, þá kominn á sjötugsaldur.
Mjmdin þekur um tvö hundmð fermetra og
á hana em málaðar nærri 400 vemr, sumar
yfír tveggja metra háar. Altaristaflan er af
sumum talið eitt magnaðasta verk lista-
Styttan af Laókóon hofgoða Apollos og sonum hans í baráttu við snákana tvo
sem Aþena sendi Laókóon. Styttan er í Átthymda hallargarðinum, sem nú er
yfirbyggður, en var áður raunverulegur hallargarður Innócentíusar VIII páfa.
Rómverskur tvíhjóla stríðsvagn, sem Franzoni setti saman árið 1788. Nokkrir
hlutar úr vagninum eru frá fyrstu öld, en grindin úr Markúsarkirkjunni í Róm.
mannsins, og hafa gagnrýnendur sagt að
þar komi fram hin innri barátta sem Mich-
elangelo háði við sjálfan sig og sum gmnd-
vallaratriði kaþólsku trúarinnar.
Herbergi Rafaels
Rafael, einn frægasti listamaður allra
tíma, hóf störf hjá Vatikaninu árið 1508,
er hann var aðeins 25 ára gamall. Júlíus
n páfi fékk Rafael til að annast skreytingar
á íbúð í Vatikaninu og er íbúðin nú nefnd
Herbergi Rafaels.
Fyrsta herbergið, sem gengið er inn í,
er hið síðasta sem Rafael gerði. Þar er hið
merka málverk hans af Stórbmnanum í
Borgo. Heimildir frá miðöldum herma að
Leó IV, sem var páfi frá 847 til 855, hafi
slökkt hinn óviðráðanlega eldsvoða í Borgo
með því að gera krossmarkið.
Næst er gengið inn S herbergið sem hugs-
að var sem vinnustofa og einkabókasafn
fyrir Júlíus II. Freskumar sem Rafael mál-
aði þar bera þess merki, því þær byggjast
á þemanu „hið sanna, hið góða og hið
fagra".
Herbergi Helíosar, sólguðs Grikkja, var
málað á ámnum 1512 til 1514. Þar sést
að Rafael hefur tekið upp nýjar litasamsetn-
ingar og helsta þemað er hvemig Guð vemd-
ar kirkjuna og þar með kristna trú. Meðal
mynda þar er myndin af björgun Péturs
postula.
KonstantSnusarherbergið svonefnda var
málað af nemendum Rafaels, eftir lát hans,
1520. Herbergið dregur nafn sitt af hinum
risastóm freskum sem sýna helstu viðburði
úr lífi Konstantínusar keisara, þar á meðai
skím hans og sigurinn yfir Maxentiusi á
Milvianbrú.
Tvennar jrfirbyggðar svalir Páfahallarinn-
ar snúa út að San Damasco-garðinum. Sval-
imar á annarri hæð em nefndar eftir Rafa-
el, en hann lauk við að mála þær ári áður
en hann lést. Bramante byijaði á verkinu,
síðan tók Rafael við og eftir hans dag tóku
nemendur hans við og luku við skrejrtingam-
ar, sem hann hafði gert rissmjmdir af. Dýr-
mætustu verk á svölunum em myndir sem
sýna atburði úr Nýja og Gamla testament-
inu í 52 hlutum.
Kapella Angelicos
Kapella Angeiicos munks er nefnd eftir
Giovanni da Fiesole, sem var munkur og
gekk undir nafninu Angelico munkur. Kap-
ellan er tileinkuð heilögum Stefáni og hei-
lögum Lárensi, en Angelico munkur málaði
hana að fyrirskipan Nikulásar V páfa milli
1448 og 1450.
120 METRA LANGT SÁFN
Landabréfasafn Páfagarðs er 120 metra
langur gangur sem er aðeins sex metra
breiður. Gregoríus XIII páfi lét byggja safn-
ið í páfatfð sinni 1572 til 1585. A veggina
em máluð landakort af hinum mismunandi
landshlutum Ítalíu og borginni Avignon í
Frakklandi, en þar var aðsetur páfa frá
1309 til 1377. Safnið er talið merkasta
kortasafn endurreisnartímabilsins og auk
korta og landabréfa em þar upphleyptar
Góði hirðirinn, sem hér er táknrænn
fyrir samnefnda dæmisögu Jesú. Mynd
af manni með lamb á herðum sér má
einnig sjá í heiðnum Ustaverkum aUt
frá sjöundu öld fyrir Kristsburð.
myndir og freskur. Á miðhluta hvelfíngar-
innar em freskur sem Cesare Nebbia og
aðrir listamenn gerðu undir umsjón Muzian-
os.
Stríðsvagnar
Salur stríðsvagnanna var byggður að fyr-
irskipan Píusar VI páfa, og var það Campor-
ese sem hannaði salinn. í miðjum salnum
er afar fagur rómverskur tvíhjóla
stríðsvagn. Franzoni setti vagninn saman
úr stríðsvagnshlutum frá ýmsum tímum og
er elsti hlutinn frá fyrstu öld. Grind vagns-
ins kemur hins vegar úr Markúsarkirkjunni
í Róm, þar sem hún gegndi áður hlutverki
biskupsstóls.
MYNDASAFNIÐ
Myndasafni Páfagarðs er skipt í 18 sali.
Safnið var opnað í október 1932 og í fyrsta
salnum em myndir frá 11. öld til 14. aldar.
Frægustu myndimar í þessum sal em mynd
frá tólftu öld af Rómverska skólanum og
mynd af Jesú Kristi sem blessar mannkynið.
Nafn Rafaels kemur mikið við sögu er
listaveiik Vatikansins em annars vegar og
í mjmdasafninu er einn salurinn tileinkaður
honum. Sumir kalla salinn „Helgidóm Rafa-
els“, því þar em meðal annars tvö fegurstu
verk hans, „Krýning Maríu meyjar" og
„Transfigurazione", sem sýnir ummyndun
Krists á fjallinu og er frægasta listaverk
Rafaels.
Næsti salur er tileinkaður Leonardo da
Vinci og er þar meðal annars að finna hið
ófullgerða en óviðjafnanlega verk hans af
heilögum Híerónýmusi, þeim mikla fræði-
manni sem meðal annars gerði Vulgata,
latnesku þýðinguna á Biblíunni.
Þá er gengið inn í síð-endurreisnartímabi-
lið og fyrri hluta barokk-skeiðsins ef svo
má að orði komast, því í næsta sal em verk
eftir helstu listamenn sem unnu í anda þess-
ara tveggja listastefna. Meðal annars em
þar verk eftir Barocci, Muziano og Carracci.
Heiðingjasafnið
Gregoríska Pagan-safnið eða heiðingja-
safnið var flutt í Páfagarð frá Lateran-höll,
þar sem aðsetur páfa var áður. Safnið var
flutt til að fyrirskipan Jóhannesar XXni
páfa um 1960. Safnið var síðan opnað fyrir
almenning í Vatikaninu árið 1970. Hér era
fyrst og fremst til sýnis hlutir og listaverk
sem fundist hafa í fyrrverandi páfaríkjum.
Mikið er af fomum höggmjmdum, og sú
fyrsta sem mætir auganu er marmarastytta
af Gregoríusi XVI, sem upphaflega stofnaði
safnið í páfatfð sinni um miðja nitjándu öld.
Mikið er af styttum sem gerðar hafa verið
eftir grískum frummyndum frá fyrstu og
annarri öld fyrir Krist og tengjast flestar
þeirra grísku goðafræðinni. Á einni steinkis-
tanna em ristar ljóðlínur á latínu sem ortar
em upp úr grískri háðvísu. í vísunni kveður
látinn maður þær Von og Gæfu með virkt-
um. Hann segist vonast til að þurfa aldrei
framar að hafa nokkuð af þeim að segja,
og nú geti þær stöllur fundið sér aðra menn
til að hafa að ginningarfíflum.
Frá Sköpun Mannsins
Til Kraftaverka Krists
Kristilega safnið var stofnað af Píusi IX
páfa árið 1854. Eitt hið merkilegasta í þessu
safni er stór steinkista frá miðri fjórðu öld,
sem fannst við uppgröft hjá kirkju heilags
Páls í Róm árið 1838. Á kistuna em ristar
guðfræðilegar mjmdir sem lýsa sögu manns-
ins frá sköpun hans til kraftaverka Jesú
Krists.
Stjrtta af Góða hirðinum prýðir kristilega
safnið, en í samanburði við aðrar helgimjmd-
ir virðist þessi. sfytta ekki eiga kristnar
rætur. Sfyttan er af hirði sem ber lamb á
herðum sér, en slíkar mjmdir sjást í heiðnum
listaverkum allt frá 7. öld fyrir Krist, og
tákna þá mann með lamb á leið til að færa
guðum sínum sem fóm. Sú stytta sem hér
um ræðir er þó talin vera gerð samkvæmt
dæmisögu Jesú um góða hirðinn. í safninu
em margar fleiri steinkistur og ákaflega
fallegar mósaikmjmdir. Þá er þar eitt merki-
legasta safn áletrana í heiminum, og er því
skipt í 24 efnisflokka.
Flutningsvagnar Páfa
Sögulegt safn var opnað í Páfahöllinni
árið 1973 að ósk Páls VI páfa. Safninu er
skipt í tvo hluta og í hinum fyrri em til
sýnis flutningsvagnar fyrrverandi páfa og
kardínála, ásamt brjóstmyndum af þeim.
Einnig em þar reiðtygi til sýnis og mjmdir
af ýmsum trúarlegum athöfnum og ferða-
lögum páfa. í hinum hluta safnsins em
munir sem tengjast her þeim sem Páfagarð-
ur hafði áður, meðal annars einkennisbún-
ingar, brynjur, hjálmar, vopn og fleira. Til
dæmis em til sýnis herklæði riddara frá
síðari hluta sextándu aldar.
PICASSOOGDALI
Síðasta safnið sem greint verður frá, er
safn nútíma- og trúarlegrar listar. Safnið
var opnað árið 1973 og hefur að geyma
nærri átta hundmð listaverk eftir um 250
listamenn. Safninu er skipt í 55 sali og er
fyrst gengið inn í Borgia-íbúðina sem nú
hefur aftur verið opnuð eftir að viðgerðum
á fresku Pinturicchios lauk. Þar em eldri
verkin til sýnis, til að mynda „Hugsuður"
Rodins, andlitsmynd af Alexander VI, páfa
eftir Pinturicchio, og 16. aldar myndir eftir
Giovanni da Udine og Perin del Vaga.
Nokkrir salir em tileinkaðir frægum lista-
mönnum sem gefið hafa Páfagarði verk
eftir sig og em ekki ófrægari menn en Pic-
asso, Dali og Conti meðal þeirra.
Helstu heimildir: The Vatican and
Christian Rome og Conoscere il Vatic-
ano.
Höfundurinn hefur veriö blaðamaöur á Morg-
unblaöinu en býr nú á Itallu.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 27. ÁGÚST 1988 11