Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1988, Page 2
„„-nmc a
Vmvs.sm\r.si s, m-.incV
..............................................
___IJA I
tsuftévmUi
ki*tr-
vmis *mVrsl H Mníu •
Veurnnareínin Áipt^t > rrwffr^ vinlW á ain
líkama, iynrliyi" , _ •-
Er krabbamein hörgulsjúkdómur?
Miðvikudí^nn 18- mal í»
astiidfen ‘oTrtó* «hyjtííSvev*
■í'pcin ua» „Mcft(<TÖ kiaW'a-
meitu' efur Wtktia Svieiíi***. ]&
vttbesai krMtttr.ckisiic'.uiat —
‘ ii&Kí. Lcsaixáinn !«3
...______j íjinsýn í
Kföbwdnu kr^' Já t\
^ *
‘M
■x her íynr siikam rannv^kn^
«f rinnv’-knarié !«p« ‘>í c*
þú h*cr» vcpia?
’vnrt c.r }n« p<:ivmuw?a
»m*e 8 i»fjCivwt-
V*rvtóö«iii <Ji Krchv
},« cUi aö noW beri
Hl? bit i UiwJi ao
fnrwixtu »•' «#»(
'n -wu retur?
livcr *éi
rckí má'tiui.tinj vf liUitnumi
hihannesur Bjtxm tií fððtttfeúv
amw? . ,,
!*»ð i'tfftt hc»ni %>> h*«na
vfwrrnntgum \tss«m Ui Knaii--.*.
en viianWya vxn pM ti ficin
lunníUunvínn tryi?-.: rin»:»h tii
núUincu
Meí» vcn um twtri áwnyui i
etihtunWirölikníníun: ei; Íhi-
vuiunUiti f fiamtiötnni.
hmn-*}*■ Jó*wm Bt6m iútráM-
»c«: c*tóv*nl. Hwk t<«2. *. CÍHS7.
ö-um -r*}‘iS TNs Osmuíscs t* Ciu«í-
afcc«. LoncSoe Oitmnix 1383 a. 2«
lan Cnmwon - 09 Vwa
h-sujiíifcfiBHi itv*. 1974. t. 77.
rrttii reatníeo8 *
vfcfcr wah** «
íffÍM AÐRIR HÆTTA
- ctrileervirktgegnkrabbameinier/tai)auðvttadslór
aö kyngja fyrlr atla þá sem trúa staðfastlega á mált
nútímaaðferða."
x>
jp
UM LAETRllE
s-
UEkn*r. get «*f *«rioj íayi. »8 *f þúMinOir titfa venft Ixkaaö
Hnhvrr titfcUi voru tó tíiða. N> t.rahb* mcA Ijuhúc. sem r
• «v *>»/• *—J* ' *-fciípp*é form *f Bl?
'*•• '« weriö •
Kraftaverk með blómafrjókomum, uppgötvanir nýrra vítamína (P-vítamín er ekki til) og nýjasta nýtt Gemetic! Þetta er brot afþvi úrvali undralyfja sem okkur er
boðið uppá árið 1988.
OFURSKAMMTAR
VÍTAMÍNA OG LAETRILE
fyrri hluta þessarar greinar var minnst á hvemig
vítamínin verka sem bætiefni og efnasambönd.
Greint var frá því hvemig ofurskammtar vítamína
(OSV) gátu verið hættulegir'og hvers vegna notkun
þeirra væri byggð á misskilningi. í lokin var fjallað
um C-vítamín 0g hér verður því haldið
áfram.
C-VÍTAMÍN, STÓRHÆTTULEGT
í Stórum Skömmtum
Ýmis neikvæð áhrif af ofurskömmtum
C-vítamíns (tífaldur dagsskammtur eða
meira) eru þekkt. Áður hefur verið minnst
á ógleði, krampa í kviðarholi, niðurgang,
gallsteinamyndun, rangar niðurstöður sýkis-
prófs, truflun á virkni lyfja og skyrbjúg hjá
ungabami vegna ofneyslu móður á með-
göngutíma. Dæmi era til um að einstakling-
ar, sem hafa arfgengan sjúkdóm sem nefn-
ist sigðkpmablóðleysi hafi látist af völdum
ofneyslu C-vítamíns. Það sem gerist er að
afoxandi áhrif vítamínsins breytir lögun
rauðu blóðkomanna verulega hjá þessum
sjúklingum þannig að þau geta ekki borið
súrefiii. Ef sjúklingur er með ristiikrabba-
mein er mælt blóð í saur. Þetta próf verður
neikvætt hjá þeim einstaklingum sem neyta
of mikils C-vítamíns. Sterk afoxandi eftia-
verkan C-vítamíns hefur einnig áhrif á önn-
ur vítamín. Tilraunir hafa sýnt að ofur-
skammtur C-vítamíns geti eytt 50-95% af
B12-vítamíni úr fæðunni. Ef nægt jám er
til staðar þá vemdar það B12-vítamínið.
C-vítamín hjálpar til við nýtingu jáms en
of mikið af C-vítamíni getur einnig valdið
jámeitmn.
C-VÍTAMÍNOGKVEF
Því hefur alloft verið haldið fram að C-
vítamín lækni kvef. Engar vísbendingar eru
til þess að svo sé. Einnig hefur því verið
haldið fram að það stytti meðgöngutíma
kvefsins. Ein stór rannsókn gaf vísbending-
ar um að svo gæti verið en munurinn var
lítill. Árið 1976 birtist grein í hinu virta
læknariti “New Engiand Joumal of Medic-
ine“ um að indíánaböm hafí síður fengið
kvef við að neyta ofurskammta af C-
vítamíni. Þegar tilraunin var framkvæmd á
réttan hátt og leiðrétt fyrir þóknunarhrifum
með óvirku platlyfi fengust alit aðrar niðúr-
stöður, þ.e. að C-vítamín kom ekki í veg
fyrir kvef hjá þessum bömum. í Kanada
var 2.000 einstaklingum skipt í átta hópa.
Tveir þeirra fengu platlyf en hinir sex fengu
ofurskammt af C-vítamíni. Niðurstaðan varð
sú að sá hópur, sem fékk sjaldnast kvef var
annar plathópurinn, sem þýðir að ofur-
skammtur C-vítamíns hefur ekki áhrif á
kvef.
ENGINÁHRIFÁ
GéðklofaHeldur
Um tíma var mikið skrifað erlendis um
að ofurskammtur C-vítamíns gæti haft áhrif
á geðklofa. Slíkt er algjörlega ósannað.
Hópur bandarískra geðlækna á vegum sam-
taka þeirra, fór yfír allar rannsóknir sem
fundust um áhrif OSV á geðræn vandamál
og gáfu síðan út þá yfirlýsingu að fullyrðing-
ar um að OSV hefðu jákvæð áhrif á geð-
heilsu væru með öliu úr lausu lofti gripnar.
Ekki ein einasta marktæk rannsókn gat
sýnt fram á nokkur tengsl.
OFURSKAMMTUR Ní ASÍNS
Neikvæð áhrif ofurskammta af níasíni
(eitt B-vítamínanna) eru margvísleg. Til að
byrja með era þau mild sbr. roði og kláði
en enda á lifrarskemmdum og trafiunum á
efnaskiptum gallrauða, sem veldur gulu.
Algeng einkenni era húðsjúkdómar, hækkað
sykur- og þvagsýramagn í sermi og vera-
lega hækkað magn lífhvata sem koma frá
skemmdri lifur. Tekist hefur að sýna fram
á að ofurskammtur níasíns iækki þríglys-
eríð í blóði en ekki var sýnt fram á að dán-
artíðni lækkaði þessvegna. Aftur á móti var
sýnt fram á traflanir á hjartaslætti, á starf-
semi meitingarfæra og óeðlilega efnasam-
setningu blóðsins.
E-vítamín
E-vítamíni hefur mjög mikið verið hamp-
að sem kynörvandi af flölda leikmanna.
Líklega er það rétt fyrir þá sem vilja trúa
því en að öðra leyti hefur það engin áhrif
til örvunar á kynlífí. Þóknunarhrifin (ímynd-
unin) ein valda mestu hér um. Upphaf þeirra
fullyrðinga að E-vítamín geti verið kynörv-
andi er að fínna í rannsókn frá þriðja ára-
tugnum þar sem E-vítamín var fyrst ein-
angrað. Óll fíta var Qarlægð úr fæði til-
raunarotta og sett aftur í fæðið að undan-
skildum einum hluta, sem innihélt E-
vítamín. Rottumar urðu lasnar og þróttlitlar
(einnig kynferðislega). Þegar E-vítamín-
hlutanum var bætt aftur útí fæði dýranna,
fengu þau þróttinn aftur og þar með kynget-
una. Þessi rannsókn hefur verið notuð til
að styðja fullyrðingar um að E-vítamín auki
kyngetuna. Skortur á E-vítamíni getur Ieitt
til þess að rauð blóðkom springa vegna
galla í frumuhimnum þeirra. Við eðliiegar
aðstæður er ekki þörf á aukaskammti. Ef
mikil loftmengun er (oxunarmiðiar) eða ef
einstaklingur er haldin tilteknum sjúk-
dómum, þarf stundum að auka E-vítamín-
neyslu, en ekki er þörf á ofurskömmtum.
buram er einnig þörf á aukaskammti. Ymis
sjúkdómseinkenni hafa komið í ljós við notk-
un ofurskammta E-vitamins. Nokkur þeirra
era m.a. slæm áhrif á húð og himnur, bólg-
ur í munni, sprangnar varir, meltingartrafl-
anir, þróttleysi vöðva, lágur blóðsykur,
auknar blæðingar og ýmis hrömunarein-
kenni.
Laetrile Svindlið
Um tíma var eitt vinsælasta „hollefnið"
í BandaríkjUnum blásýra (Cyanide). Er um
að ræða efnasamband, sem hefur verið nefnt
Laetrile. Laetrile á að lækna krabbamein.
Til að gefa því trúverðugt nafti var það
kallað B17-vítamín, enda voru engin lög til
sem bönnuðu slíkt í Bandaríkjunum. Meira
að segja var hægt að nefna arsenik B18-
vítamín. Með þessum hætti fékkst leyfi til
sölu Lateriles. Kenningin um að Laetrile
lækni krabbamein byggist á því að eitrið
eigi að losna i krabbameinsframunum ein-
göngu og drepa þær, en í ljós hefur komið
að það hefur einnig áhrif á aðrar framur
iíkamans. Eins og öll önnur efnasambönd
era þau ekki hættuleg fyrr en í of miklu
magni. Það munu þó vera miklar líkur á
þvi að fólk geti fengið of mikið af blásýra
úr laetrile og aprikósusteinum. í Mexíkó er
t.d. frægt heilsuhæli þar sem krabbamein
er meðhöndlað með Laetrile. Hefur verið
staðfest að sjúklingar þaðan hafa þurft á
meðhöndlun að halda vegna blásýraeitran-
ar. Á hveiju ári í Bandaríkjunum hafa ver-
ið staðfest dánartilvik vegna Laetrile-eitran-
ar. Víða í Bandaríkjunum hefur lögregla
þurft að flarlægja Laetrile og aprikósusteina
úr hillum heiisubúða. í Merck-efnalistanum
er Laetrile skráð sem eitur sem er ranglega
’ talið lækna krabbamein. Þannig hefur það
verið skráð frá 1840. Margir læknar og
lyfjafræðingar telja að notkun Laetriles sé
banvæn og að þeir sem hvetji til notkunar
þess geti verið að fremja morð!
MORÐSAGA!
Litil stúlka átti að gangast undir augnað-
gerð til að fjarlægja krabbameinsæxli.
Læknirinn taldi góða möguleika á bata þar
sem æxlið hafði ekki náð að breiðast út.
Þá gerðist það stuttu fyrir aðgerðina að í
biðsal spítalans hitta foreidramir hjón sem
sögðu að kírópraktor (hnykklæknir) hefði
læknað æxli í höfði sonar þeirra án skurðað-
gerðar. Eftir að hafa hringt í kírópraktorinn
og lýst ástandi dótturinnar sagði hann að
hægt væri að lækna hana með því að rxá
réttu efnajafnvægi í líkamanum. Foreldrar
stúlkunnar tóku þá ákvörðun að hætta við
skurðaðgerð, sem hefði haft í for með sér
augnmissi en líklegast bjargað lífi stúlk-
unnar. Kírópraktorinn gaf stúlkunni vítamín
og “bætiefni", sem neftiist Laetrile en allt
kom fyrir ekki. Æxlið stækkaði þar til það
varð á stærð við tennisbolta og féll augað
út. Stúlkan dó nokkram mánuðum seinna,
þar sem of seint var að koma í veg fyrir
útbreiðslu æxlisins. Kírópraktorinn var
dæmdur fyrir morð. Hér á landi hefur verið
rekinn áróður gegn þeim skoðunum, sem
mæla gegn Laetrile. Hafa greinar verið
skrifaðar í blöð þar sem talið er að notkun
Laetriles vinni gegn krabbameini sbr. grein
í Þjóðviljanum föstudaginn 3.6.1988, Morg-
unblaðinu fímmtudaginn 25.9. 1986 og í
bókinni „Falið vald". Einnig hefur greinar-
höfundi verið ráðlagt að nota aprikósusteina
tii að fá Laetrile í tveimur heilsubúðum
hérlendis. Við verðum þó að gæta þess að
áfellast ekki þetta fólk, því sjálfsagt vill það
okkur allt hið besta. Líklegast er um van-
þekkingu að ræða og ber að meta viljann
fyrir verkið. Það gildir um okkur öll að
skoðanir okkar mótast mjög af þeim upplýs-
ingum sem við fáum. Hins vegar eram við
misvel í stakk búin til að afla okkur þeirra,
hvað þá að meta hvað sé rétt eða rangt.