Lesbók Morgunblaðsins - 07.01.1989, Blaðsíða 20
Gönguferðir:
Fossar o g gljúfragöng
við túnfót borgarbúa ...
Fyrsta gönguleiðin, sem lýst
verður, er gömul, góð og vinsæl.
Áfangastaðurinn er Tröllafoss í
Leirvogsá sem fellur úr Leirvogs-
vatni niður Mosfellssveit og til
sjávar í Leirvogi. Þar sem Leir-
vogsá fellur á móts við Hauka-
§öll nærri Stardal, þrengist þessi
litla vinalega á og fellur ofan í
langt og hrikalegt gljúfur. Þar
heitir Tröllafoss þar sem þetta
gljúfur byrjar og er fossinn sér-
kennilegur og fagur. Þessi nátt-
úrusmíð er svo að segja við tún-
fót höfuðborgarbúa, því ekki er
nema um það bil 20 mínútna
akstur þangað sem styst er að
ganga að fossinum og varla
meira en hálftíma gangur þaðan.
Jafnvel þótt fólk taki það ofur
rólega ætti heildarferðin ekki að
taka nema fáeinar klukkustund-
ir.
Það er hægt að aka alla leið
að Tröllafossi og er þá þrædd
slóð frá bænum Skeggjastöðum,
en til hans er ekið af Þingvalla-
vegi skammt fyrir ofan Gljúfra-
stein. Ef sú leið væri ekin áfram,
væri komið að brú yfir Leirvogsá
við bæinn Hrafnhóla. Þaðan hefja
margir gönguna upp með ánni
til Tröllafoss. Aðrir aka áfram
Þingvallaveginn og aka áleiðis
Stardalsveg og ganga síðan niður
með ánni. Sá sem þetta ritar
hefur reynt báðar leiðir og telur
þær eins og svart og hvítt. Mikl-
um mun tignarlegri leið er þegar
gengið er upp með ánni, því
gljúfrin í ánni er ekki síður stór-
kostlegt augnayndi heldur en
fossinn sjálfur. En auðvitað er
hægt að ganga áfram niður ána
til þeirra þótt gengið sé frá Stard-
al.
Þegar gengið er upp með ánni
er farið um norðurbakka árjnnar,
enda sjást bæði fossinn og gljúfr-
in mun betur frá þeim bakka.
Þegar gangan er svo sem hálfn-
uð, kemur lítil beygja á ána og
Við stífluna gömlu í Ketilhyl. Laxveiðimaður kastar flugu.
neðst í henni fellur lítill lækur í
Leirvogsá ofan úr Esjuhlíðum.
Efst í þessari beygju er lítill foss
þar sem heitir Ketilhylur. Þar er
gömul stífla í ánni með laxastiga
sem er ekki lengur notaður. Þess-
ar rústir eru gamlar minjar og
gæða þennan litla gljúfrafoss
friðsælum en torskýrðum þokka.
Best er að halda sig uppi á
gljúfurbörmunum, en varast að
fara of framarlega. Bæði til þess
að fara sér ekki að voða, svo og
fyrir kurteisissakir í garð lax-
veiðimanna, sem oft eru þarria á
ferð að sumarlagi, enda Leir-
vogsá mjög góð laxveiðiá og
gljúfrin oft krök af laxi. Er sjálf-
sagt mál að göngufólk og veiði-
menn virði rétt hvort annars,
enda fólk af sama meiði, útivi-
starfólk.
Við látum þessu svo lokið að
Á sumrin má oft fínna rokvæna
svartsnigla í brekkunum upp
með Leirvogsánni. Margir eru
stærri en þessi...
þessu sinni, en í næsta Ferða-
blaði verður haldið á aðrar slóð-
ir . .. — gg-
Útsýni ySr Bandama-völlinn & Gran Canaria. Á hæðinni til
hægri stendur klúbbhúsið, en í baksýn sést framaf fiallinu til
úthverfa Palma og út á haSð.
Vetrargolf:
Bandama á Kanaríeyjum
Sú tíð er liðin, að golfleikarar
komi kylfunum sínum snyrtilega
fyrir í geymslunni með það fyrir
augum að hreyfa þær ekki fyrr
en allt er orðið grænt næsta vor.
Hvorttveggja er, að kylfíngar
hafa í mjög vaxandi mæli reynt
að nota þær gæftir sem gefast á
auðri jörð að vetrinum hér á landi
og eins hitt, að verulegur fyöldi
kylfínga fer eitthvað suður á bóg-
inn í vetrarfrí og þá er gjaman
farið þangað sem hægt er að leika
golf. Þegar tekið er mið af því
sem stendur Islendingum til boða
á viðráðanlegu verði, fara kylfing-
ar nær eingöngu til tveggja landa
í vetrargolf. Annar valkosturinn
er Florida með urmul af golf-
hótelum og golfvöllum í öllum
verðflokkum, en hinn kosturinn
er Kanaríeyjar; Tenerife, þar sem
einn völlur er og hægt að komast
í tíma hjá John Jacobs, þeim
fræga golfkennara, - og Gran
Canaria, þangað sem megin-
straumur íslenzkra ferðalanga
liggur. Þar eru tveir vellir: Gamli
völlurinn sem svo er nefndur í
Maspalomas á Playa del Inglesi
og er mikið notaður völlur af kylf-
ingum hér. Hinn er Bandama,
golfvöllur klúbbsins í höfuðstaðn-
um, Palma. Sá golfklúbbur er elzt-
ur á Spáni, stofnaður af Bretum
1891. Völlurinn var í fyrstu
skammt frá Palma og fór fyrir
félögum líkt og í Golfklúbbi
Reykjavíkur, að borgin þurfti
svæðið fyrir byggingarland og lét
klúbbnum í té áhugavert og fjöl-
breytt landsvæði í nánd við foman
eldgíg og mikið og bratt gljúfur
uppi á fjalli. Þar heitir Bandama
og er útsýni þaðan yfír Palma,
nærleggjandi strendur og langt
út á haf. Veglegt klúbbhús er á
Bandama og á að sjást frá klúbb-
húsinu á allar flatir vallarins.
Hann er ekki ýkja langur, 5,510
metrar, parið 71, SS-skor líklega
70.
Það eru nú liðin 11 ár síðan
sá er þetta ritar, lék síðast á
Bandama. Þá var allstór hópur
íslenzkra golfleikara á Playa del
Inglés og mest var leikið á nýja
vellinum í Maspalomas, sem bar
sig víst ekki sem fyrirtæki og var
lagður niður. En nokkrum sinnum
fómm við og lékum á Bandarna.
Þá virtist ekki vera komin sjálf-
virk vökvun á brautir og voru þær
þá illa grónar og afar þurrar. Það
hefur nú breyzt; þar er nú komið
vökvunarkerfi, en vatn er eitt-
hvert mésta dýrmæti sem til er á
Kanaríeyjum. Flatimar voru hins-
vegar góðar.
Fyrsta braut er mjög stutt
par-4; aðeins 225 metrar og fram-
af allhárri brekku, svo það á að
vera allgóður möguleiki að slá
upphafshögg alla leið á flöt. Þrátt
fyrir mishæðótt landslag skortir
brautimar tilbreytingu; þar eru
næstum allar með sveig, annað-
hvort til hægri eða vinstri, allar
í hliðarhalla, allar umluktar lágum
olífuviðartijám og flestar fremur
þröngar. Víða er samdglompum
raðað í brautarkanta meðfram
tijánum og óþarft er að reyna að
leita að þeim boltum, sem fara
útaf, þegar leikið er meðfram
gljúfrinu. Einnig kemur hinn fomi
eldgígur við sögu á síðari helm-
ingi.
Eftir að nýi völlurinn í Lasp-
alomas var lagður af, hefur verið
mjög áskipað á gamla vellinum
þar og menn verða helzt að eiga
gantaðan tíma til að komast að.
Á Bandama er hinsvegar miklu
minni ásókn vegna þess að þang-
að verður að taka taxa, nema
verið sé á bílaleigubíl. Það á að
vera óhætt að aka þangað án
þess að eiga pantað og í ensku
golfblaði var þess getið nýlega,
að stjóm Golfklúbbsins í Palma
vildi gjaman stuðla að því að fá
fleiri ferðamenn til að leika golf
á Bandama; íslenzkir kylfingar
sem að vanda munu fjölmenna
suður á Kanaríeyjar í febrúar og
marz, ættu að hafa í huga, að
þeir eru sérstaklega velkomnir á
Bandama.
GS
20