Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1989, Síða 16
; íT
fiRfií .ijlfTctA ,?.t íIUOAQflAOUAxI QIQAJímUDflOM
Söguslóðir í
Skagafirði
Margir ferðamenn fara um SkagaQörð — éitt helsta sögu-
hérað landsins. En hvað sjá þeir af söguslóðum? Kannski
harla lítið. Tíminn, mannshöndin og náttúruöflin hafa sléttað
yfir söguna, sem liggur hulin blámóðu fortíðar í landslaginu.
En góðir menn í Skagafirði vilja endurvekja söguslóðir og
hafa unnið þarft átak. Á engan er hallað þó að nafii Jóns
Gauta Jónssonar, kennara og náttúrufræðings með meiru,
sé þar nefiit fyrst, en Jón hefúr látið ferðamál í Skagafirði
mjög til sín taka.
Hólar í Hjaltadal -
Sögnslóð
Á vori komanda lítur nýr
bæklingur dagsins ljós. Hann ber
nafnið „Hólar í Hjaltadal —
Söguslóð" og er ætlaður fyrir
ferðamenn, sem vilja ganga um
á sögustaðnum Hólum. Ferða-
menn sem koma að Hólum,
kunna oft ekki við að betja upp
á til að fá leiðsögn um staðinn
og margir hafa farið án leiðsagn-
ar frá höfuðbólinu. En núna geta
allir gengið „söguslóðina á Hól-
um“ eftir merktum póstum —
staðnæmst við hvern póst og les-
ið sér til um hvað gerðist merki-
legt á blettinum, þar sem þeir
standa. Fjórtán póstar eru á
söguslóðinni, merktir með stik-
um og sést á milli stika. Margir
ferðamenn eiga eflaust eftir að
koma að Hólum í sumar, í tilefni
af því að nú hefur kirkjan öll
verið endurgerð að innan og
færð í upprunalegan búning. I
fyrrasumar var tekið í notkun
nýtt anddyri í Bændaskólanum.
Kaffihlaðborð verður alltaf til
staðar fyrir ferðamenn í sumar.
Ferðafólk getur líka brugðið sér
í sundlaug og heita potta í
skjólríkum innigarði skólans og
skolað af sér þreytu og ferðaryk.
Kort og minnisvarði um
Orlygsstaðafundinn
í fyrrasumar var þess minnst,
að 750 ár voru liðin frá hinum
fræga Örlygsstaðafundi. Þá var
afhjúpaður minnisvarði 21.
ágúst. í sumar stendur til að
koma fyrir korti í hlaðinni vörðu
í Örlygsstaðagerði, þar sem háð
var fjölmennasta orusta, sem
Islandssagan greinir frá, en þar
börðust um 3000 manns. Kortið
sýnir atburðarás fundarins, sem
til er mjög góð lýsing af. Einnig
er ætlunin að merkja þennan
stað við þjóðveginn og stika leið-
ina upp að minnisvarðanum og
kortinu. Þannig gefst ferðafólki
kostur á að kynna sér þessa
miklu orustu í máli og myndum
og átta sig um leið á öllum stað-
setningum fylkinganna og hvar
þeir feðgar Sighvatur og Sturla
féllu.
Minnisvarði um
Örlygsstaðafundinn.
Sæludagar í Skagafirði
Sumarhótelið Áning á Sauðár-
króki, undir stjórn Jóns Gauta
Jónssonar, mun standa fyrir
-sæludögum- á sumri komanda
fyrir litla hópa. Hótelið var með
slíka -sæludaga- í fýrrasumar
og þátttakendur voru almennt
Kortið af Örlygsstöðum.
Sumarhótelið Áning á Sauðárkróki.
mjög ánægðir. Ýmsu hagnýtu
og skemmtilegu verður blandað
saman á sæludögunum — menn-
ingarkvöldum, með upplestrum,
söng og tónleikum — skemmti-
ferðum um Skagafiörð og nú
stendur til að bjóða upp á margs-
konar námskeið, til dæmis í jur-
talitun, tóvinnu, torfhleðslu,
spuna og gömlum vinnubrögð-
um. „Við viljum hrekja á brott
þau ummæli, er ýmsir ferðamenn
hafa látið sér um munn fara, að
þeir viti ekki hvað þeir geti gert
af sér í Skagafirði," segir Jón
Gauti Jónsson.
Gönguleiðir á íslandí
Skíðagönguland
á Mosfellsheiði
Um leið og birtan færist
meira inn yfir sjóndeildar-
hringinn, fi-eistar tæra loftið
til útiveru. Hvít snjóbreiðan
gefur möguleika til skemmti-
legra gönguferða á skíðum,
sem er um að gera að nýta.
Á síðasta ári kom út bók, er
nefnist „Gönguleiðir á íslandi,
1. Suðvesturhomið“, eftir Einar
Þ. Guðjohnsen, gefin út af Al-
'menna bókafélaginu. Óhætt er
að mæla með bókinni, sem veltir
upp ýmsum gönguleiðum í ná-
grenni við Reykjavík — staðar-
kort fylgja. Við skulum líta á
kafla, sem ber nafnið „Skíða-
ganga frá Leirvogsvatni um
Borgarhóla að Hafravatni“ og
gera orð Einars í inngangi bókar-
innar að okkar: „Veðrið hefur
of mikil áhrif á göngur flestra.
Ef við klæðum okkur rétt hverju
sinni lærum við, að veðrið er
aldrei vont, aðeins mismunandi
gott.“
Á Mosfellsheiði er mjög gott
skíðagönguland. Hefja má
gönguna við Leirvogsvatn og
stefna næstum í sjónhendingu á
Borgarhóla — gera þar góðan
stans í víðum útsýnishring. Betra
að hefja gönguna sunnan undir
Litla Sauðafelli og forðast með
því nokkrar brekkur upp í móti.
Frá Borgarhólum má taka stefnu
til suðvesturs — eftir Seljadal eða
Seljadalsbrúnum, niður Þor-
móðsdal eða Miðdal og Hafra-
vatni. Á góðum sólskinsdegi fæst
þarna löng og góð ganga móti
sól. Gangan er um 16 km að
tekur 3-5 klst.
Annar möguleiki, þegar komið
er að Borgarhólum, er að stefna
til austurs nokkru norðan við
Sköflung og á Hæðir 375 m.
Þaðan er frábært útsýni yfír
Þingvallavatn og umhverfi. Frá
Hæðum má síðan stefna á Litla
Kort er sýnir göngnleiðir, þetta
er bara ein leið af mörgum.
Sauðafell, þar sem gangan hófst
— eða Leirvogsvatn. Þessi
gönguleið er um 25 km og tekur
5-7 tíma, nema fyrir vant skíða-
göngufólk. Þriðji og léttasti
möguleikinn er að snúa við í
Borgarhólum og ganga sömu
leið til baka — láta 15 km göngu
nægja.
Sigling með
finnskum
ísbrjóti
Það er ævintýralegt að sigla
um ísi lögð sundin í Finnlandi
að vetrarlagi. Um miðjan vetur
frystir heimskautakuldinn haf
og Iand og snævi þakin íshella
hafsins blindar augun í sólinni.
Og mörgum finnst þetta svo
ævintýralegt að núna eru í boði
sérstakar ferðir með ísbrjót.
Frá desember fram í maí siglir
ísbtjóturinn SAMBO með ferða-
menn í tvo til sex tíma í senn.
Það er undarleg tilfinning að
heyra brakið í margra metra
þykkum ísnum, þegar brotist er í
gegnum hann. Uti á miðju sundi
er numið staðar og farþegar fá
tækifæri til að fá sér göngutúr.
Hægt er að halda ferðinni áfram
á vél- hreindýrasleðum eða ganga
á skíðum yfir ísinn og þeir ríkustu
geta pantað sér þyrlu til að láta
ná í sig! Það eru greinilega marg-
ir möguleikar fyrir þá, sem leggja
upp frá Kemi, innst í Bottenviken,
með — eina ísbijótnum í heimin-
um, sem siglir eingöngu til að
skemmta ferðamönnum!
Laugavegi 59, 2. h., sími: 1 52 50
16