Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1989, Page 2
Dauði
embættismanns
Smásaga eftir ANTON TSEKOV
fögra kvöldi sat embættismaðurinn ívan
Dmítritsj Tsérvjakov á öðrum svalabekk í leik-
húsi og horfði á „Klukkurnar í Corneville“
gegnum leikhúskíkinn sinn. Þarna sat hann
og lét sér líða vel. En allt í einu ...!
í frásögnum rekst maður oft á þetta „en
allt í einu“. Og rithöfundarnir hafa rétt fyr-
ir sér, lífið er fullt af óvæntum atburðum.
En allt í einu skældi hann sig, augun
ranghvoifdust, andardrátturinn stöðvað-
ist... hann tók kíkinn frá augunum, beygði
sig fram og... atsjú!!! Hann hnerraði eins
og þið skiljið.
Það er alls staðar leyfilegt að hnerra og
engum hömlum háð. Bæði bændur og bæjar-
fógetar hnerra og stundum einnig háttsettir
embættismenn. Allir hnerra. Það kom ekki
hið minnsta fát á Tsérvjakov, hann þurrk-
aði sér með vasaklútnum og eins kurteis
og hann var, leit hann í kringum sig: hafði
hann truflað einhvern með hnerra sínum?
Og nú brá honum illa í brún. Hann tók eft-
ir því að eldri herramaður sem sat fyrir
framan hann á fyrsta bekk, þurrkaði vand-
lega á sér skallann og hnakkann með hanska
sínum, um leið og hann rumdi eitthvað.
Tsérvjakov sá að þar var kominn Brizz-
jalov, hershöfðingi í samgönguráðuneytinu.
„Ég hef frussað á hann! — hugsaði Tsérv-
jakov. — Ekki það að hann sé minn yfirmað-
ur, en það er nú samt klúður. Ég verð að
biðja hann afsökunar."
Tsérvjakov hóstaði, beygði sig örlítið
framávið og hvfslaði í eyra hershöfðingjans:
— Afsakið yðar náð, ég frussaði víst á
yður ... það var alveg óvart. ..
— Það var ekkert...
— Fyrirgefið mér í öllum bænum, ég ...
það var ekki ásetningur minn!
— Ah, setjist niður. Leyfið mér að hlusta!
Tséryjakov varð hálf ruglaður, brosti
vandræðalega og leit í átt að sviðinu. Hann
horfði á sviðið en vellíðanin var nú gersam-
lega horfin. Óróleikinn tók að kvelja hann.
í hléinu gekk hann til Brizzjalovs, stóð
við hlið hans skamma stund, bældi niður
kjarkleysið og tautaði svo:
— Ég frussaði víst á yður yðar náð...
Fyrirgefið mér... ég... ekki svo að
skilja...
— Ah, nú er nóg komið ... Ég var búinn
að gleyma þessu, og svo komið þér! sagði
hershöfðinginn og sneri upp á sig óþolin-
móður.
„Þykist vera búinn að gleyma þessu en
það skín út úr honum illskan, — hugsaði
Tsérvjakov og horfði tortrygginn á hers-
höfðingjann. Og ekki vill hann tala um það.
Ég verð að skýra út fyrir honum áð það
hafi alls ekki verið meiningin ... að það sé
náttúruiögmálið, en hann heldur víst að ég
hafi frussað viljandi. Og haldi hann það
ekki núna þá mun hanri halda það síðar!
Þegar hann var kominn heim, sagði
Tsérvjakov konu sinni frá klaufsku sinni.
Frúin tók þessu allt of létt, fannst honum;
hún varð bara hrædd, en eftir á, þegar hún
frétti að Brizzjalov væri ekki hans yfirmað-
ur, varð henni rórra.
— En samt sem áður ættir þú að fara
og biðjast afsökunar, sagði hún. — Hann
gæti haldið að þú kynnir ekki að hegða þér
meðal fólks!
— Það er einmitt það! Ég reyndi að biðj-
ast afsökunar, en hann tók því eitthvað
skringilega, sagði ekki orð af viti. Og það
gafst heldur ekki tími til að tala saman.
Næsta dag fór Tsérvjakov í nýja einkenn-
isbúninginn sinn, lét klippa sig og hélt af
stað til Brizzjalovs til að útskýra... Á bið-
stofu hershöfðingjans sá hann margt
manna, þar á meðal sjálfan hershöfðingj-
ann, sem var farinn að taka á móti umsókn-
um. Er hann hafði afgreitt nokkra umsækj-
endur kom hershöfðinginn auga á Tsérv-
jakov.
— í gær í „Arkadíus“, ef þér munið yðar
náð, — byijaði embættismaðurinn, — hnerr-
aði ég og... frussaði ég af tilviljun . .. ég
biðst afs ...
— Hvers lags smámunir . . . Herra minn
trúr. Hvað get ég gert fyrir yður, — sagði
hershöfðinginn og sneri sér að næsta um-
sækjanda.
„Hann vill ekki tala um það! — hugsaði
Tsérvjakov og fölnaði. Það þýðir að hann
er reiður. Nei, við svo búið má ekki standa.
Ég verð að skýra út fyrir honum ...“
Þegar hershöfðinginn hafði lokið samtal-
inu við síðasta umsækjandann og var á leið
inn til sín, tiplaði Tsérvjakov á eftir honum
og tautaði:
— Yðar náð! Ef ég má leyfa mér að
trufla yðar náð þá verð ég að segja að ég
iðrast af öllu hjarta. Það var ekki með vilja
gert megið þér vita.
Hershöfðinginn setti upp mæðusvip og
bandaði frá sér.
— En þér eruð bara að spauga herra
minn! — sagði hann og hvarf inn um dymar.
„Hver er að tala um spaug? — hugsaði
Tsérvjakov. Þetta á að heita hershöfðingi
og skilur ekkert. Ég er þá ekkert lengur
að biðja þetta merkikerti afsökunar. Fjand-
inn hirði hann. Ég ætla að skrifa honum
bréf, en hér stíg ég ekki fæti inn framar.
Nei, það veit sá sem allt veit að það geri
ég ekki!“
Þannig hugsaði Tsérvjakov á leiðinni
heim. Hann skrifaði ekkert bréf til hers-
höfðingjans. Hann braut heilann ákaft en
þó tókst honum ekki að orða slíkt bréf.
Daginn eftir fór hann aftur til að útskýra.
— Eg var hér í gær og truflaði yðar
náð, — byijaði hann þegar hershöfðinginn
leit spyijandi á hann, — ekki til að gera
gys að yður eins og yður varð að orði. Ég
baðst afsökunar því ég fmssaði þegar ég
hnerraði, en það hefur aldrei hvarflað að
mér að spauga. Myndi ég voga mér að
spauga? Ef menn fara að spauga þá verður
engin virðing fyrir persónum ...
— Komið yður út!! — öskraði hershöfðing-
inn blár í framan og titrandi.
— Hvað? — spurði Tsérvjakov hvíslandi
og hann svimaði næstum af skelfingu.
— Komið yður út!! — endurtók hers-
höfðinginn og stappaði niður fótunum.
Það brast eitthvað í iðrum Tsérvjakovs.
Blindur og heyrriarlaús hörfaði hann að
dyrunum, gekk út á götuna og dróst heim
á leið.
Hann gekk heim eins og í svefni og þar
lagðist hann í sófann, án þess að fara úr
einkennisbúningnum ... og dó.
Frumtitill:_ Smért tsjinovnika (1883).
Þýðandi: Árni Þór Sigurðsson.
Anton Pavlovitsj TSÉKHOV fæddist árið
1860 í Taganrog, litlum bæ í Úkraínu. Fað-
ir hans var kaupmaður sem ól börn sín upp
í strangri trú og vandlætingu. Um móður
hans er minna vitað, en á einum stað hefur
Tsékhov skrifað: „ Við fengum gáfurnar frá
pabba en sálina frá mömmu. “
Strax í barnæsku sýndi Tsékhov leik-
húsinu áhuga. Hann var rétt þrettán ára
þegar hann tók fyrst þátt í áhugamannasýn-
ingu og lék bæjarfógetann í „Eftirlits-
manni“ Gogols. Nítján ára gamall lauk hann
við Latínuskólann og fluttist til Moskvu og
fór að lesa læknisfræði sem hann lauk við
fimm árum síðar. Árið 1880 komu fyrstu
smásögur hans út og 1881 leikritið „Pla-
tonov“ sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu nú í
haust. Þekktustu verk Tsékhovs eru leikrit-
in „Mávurinn" (Tsjajka frá 1896), „Vanja
frændi“ (Djadja Vanja frá 1887), „Þrjár
systur“ (Tri sestryfrá 1900) og „Kirsuberja-
garðurinn“ (Vísjnjovyj sad frá 1903).
En þó nafn Tsékhovs beri oftast á góma
í sambandi við leikrit hans sem stöðugt eru
sett upp víðs vegar um heiminn, eiga hinar
fjölmörgu smásögur hans ekki síður athygli
skilið. „Dauði embættismanns“ sem hér birt-
ist er einmitt ein þeirra. Hún kom fyrst út
árið 1883 og er á margan hátt einkennandi
fy'rir smásögur Tsékhovs. Aðalpersónan er
hálfhátíðlegur, hálfkíminn embættismaður
(Tsjínovnik) syona á miðjum virðingarstig-
anum í hæsta lagi. Slíkir embættismenn
voru vinsælt viðfangsefni rithöfunda í Rúss-
landi á þessum tíma. Fyrirmyndin virðist
sótt í „Frakkann" eftir Gogol (1842), en
einnig hefur Dostoévskíj skrifað um svipaða
manngerð (t.d. „Fátækt fólk“ frá 1846).
í „Dauða embættismanns" virðist Tsék-
hov fyrst og fremst Ieggja áherslu á hin
skoplegu áhrif þegar hann segir frá því
hvernig þessi litli skrifstofuþræll, Tsérv-
jakov, æsir upp sér háttsettari mann með
endurteknum afsökunum fyrir að hafa
hnerrað á hnakka hans; að honum er fleygt
á dyr og hann deyr síðan af einskærri skelf-
ingu. En lesandinn (a.m.k. hinn rússneski)
skildi að hin ofboðslega hræðsla við met-
orðamenn var mergurinn í hinum rússneska
skrifræðisveruleika.
Anton Tsékhov var alla tíð fremur heilsu-
lítill og sótti því oft til Jöltu á Krímskaga
þar sem loftslagið var heilsusamlegra. Árið
1901 giftist hann leikkonunni Olgu Knipper
sem Iék m.a. í mörgum leikrita Tsékhovs í
Moskvu. Það voru svo berklarnir sem drógu
hann til dauða árið 1904, aðeins 44 ára.
En þrátt fyrir tiltölulega stutt líf er Tsék-
hov trúlega meðal þeirra leikritaskálda og
smásagnahöfunda sem mest áhrif hafa haft
á evrópskan og amerískan skáldskap, í öllu
falli fyrstu áratugi þessarar aldar.
Þýðandi.
2