Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1989, Blaðsíða 15
inn í frumskóginn i íeit að
nýju landi. Þetta er mikið vanda-
mál því olían er álitin mikilvægari
fyrir þjóðina en nokkrir indíána-
þjóðflokkar. Því er lítið hugsað um
hagsmuni og nauðsynjar þessa
fólks sem berst vonlítilli baráttu
fyrir tilveru sinni.
Það var skrýtin tilfinning að
þramma í gegnum háan þykkan
frumskóginn, nokkuð sem okkur
hefur dreymt um í mörg ár. íklædd-
ár stuttbuxum, regnjakka og
stígvélum óðum við í leðju á eftir
leiðsögumanninum sem hjó okkur
leið gegnum grænt þykknið. Það
hafði rignt mikið nóttina áður en
við lögðum á stað og um miðjan
dag var loftið ennþá mjög rakt.
Ekki getum við sagt að okkur líki
vel við köngulær og önnur skor-
kvikindi en þarna var það bara
heimilislegt að hafa þessi viðbjóðs-
legu, loðnu og slímugu skordýr
með þreifara skríðandi á sér. Fyrst
í stað öskruðum við eins og stúlkur
almennt gera en undir lokin hlógum
við bara að þessu. Vinátta okkar
var ekki gagnkvæm við moskító-
flugurnar. Þó við hálfböðuðum
okkur uppúr illa lyktandi gulum
vökva á hveiju kvöldi, sem átti að
verja okkur gegn moskítóbitum,
sjúkdóma og magavéiki. Éinnig
hafði hann milli handanna jurtir
sem hann sjálfur neytti til að finna
þjófa og morðingja.
Á leiðinni til baka heimsóttum
við hótel sem hafði til sýnis ýmis
villt dýr í búri. Á meðal þeirra var
pardus, sem er skyldur tígrisdýri,
í keðju. Linda hinn mikli dýravinur
hélt að parduskötturinn væri tam-
inn svo hún klappaði honum
blíðlega. Skyndilega réðst hann að
henni öskrandi með klærnar úti.
Það sem varð Lindu til bjargar var
vindjakkinn sem hún hafði saman-
brotinn i fanginu. Dýrið læsti klón-
um í jakkann og hvæsti á alla sem
nálguðust. Loks tókst leiðsögu-
manninum að lokka dýrið í burtu
með stórum safaríkum kjötbita.
líann leiddi svo Lindu frá sem var
stjörf af hræðslu.
Þó Ekvador sé ekki stórt land
þá er endalaust hægt að finna eitt-
hvað nýtt að sjá, því andstæður
eru miklar bæði í náttúru og
mannlífi. Það sannast kannski best
á því að við vinkonurnar erum bún-
ar að vera hér í tæpa fjóra mánuði
í stað eins mánaðar eins og upphaf-
lega var áætlað.
Linda Hólm,
Guðlaug Steinsdóttir.
Kátir krakkar í Ekvador
gagnaði það okkur ekki. Eftir
fyrsta daginn litum við út eins og
rauð gatasigti.
Eftir að hafa gengið í 3-4 tíma,
komum við að mosagrænni á og
tókum þar nokkra sundspretti.
íijádrumbur sem kom laumulega
siglandi niður ána hálfrotaði Gullu.
Eftir það höfðum við augun hjá
okkur. Maturinn var ljúffengur og
ávextirnir tíndir af tijánum. Við
prófuðum kakó sem var blaut hvít
froða í harðri skel. Við fundum nú
bara baunabragð svo ekki vitum
við hvaðan súkkulaðibragðið kem-
ur. Næstu þijá dagana_ reyndi
gangan mjög á okkur. Á einum
stað var brúin yfir hyldjúpa gjá
langur, mjórtijábolur, svo stundum
reyndi á Tarzan-hæfileikann sem
blundar í öllum. Allt gekk það nú
eins og í sögu nema einu sinni
þegar Linda ætlaði að taka Tarzan-
sveiflu með „stæl“, rann þá til og
hlammaðist ofan í leðjuna. Hún
fann hvernig hún byijaði að síga
niður í eðjuna með öll sín kíló og
tók að öskra tryllingslega og baða
út örmunum. Leiðsögumaðurinn
sagði þá rólega: „Viltu ekki bara
standa upp?“ Linda viðurkenndi að
henni leið hræðilega þegar hún stóð
á fætur hjálparlaust og drullan
náði henni bara upp að lærum.
Eitt stjörnubjart kvöldið fórum
við á kanó í leit að krókódílum.
Við siluðumst varlega um síkin í
myrkrinu og til að koma auga á
► þá þurftum við að nota vasaljós.
En þeir voru hræddari við okkur
en við við þá og þeir voru ekki lengi
að forða sér er þeir urðu okkar
varir. En það var ævintýralegt að
sigla þarna um í húminu og heyra
í þeim allt í kringum okkur ásamt
öllum hinum dýrunum sem eru
ótrúlega fjölskrúðug og hávær.
Síðasta daginn fórum við í heim-
sókn til töfralæknis sem var klædd-
ur venjulegum vestrænum fötum,
með indíánahálsfesti og höfuðút-
búnað úr fjöðrum. Hann sýndi okk-
ur ýmsar tijátegundir sem læknað
gátu alla kvilla, aðallega þó blóð-
Kort af flugleiðum Luft-
hansa og Interflug á milli
ríkjanna.
Áætlunar-
flug hafíð á
milli A- og
V-Þýska-
lands
I fyrsta skipti eftir að
Þýskalandi var skipt í lok
seinni heimsstyrjaldar —
hafa ríkin tvö komið sér
saman um beint áætlunar-
flug sín á milli. Samninga-
umleitanir tóku 4 ár.
Lufthansa mun hefja áætl-
unarflug tvisvar í viku, mánu-
daga og fimmtudaga, frá
Frankfurt til Leipzig. Aust-
ur-þýska flugfélagið Inter-
flug mun líka verða með fast
flug tvisvar í viku, milli
Diisseldorf og Leipzig. Hing-
að til hefur áætlunarflug milli
þýsku ríkjanna aðeins verið
um Vestur-Berlín, sem liggur
innan austur-þýsku landa-
mæranna. Ferðamenn til
Austur-Þýskalands þurfa
vegabréfsáritun.
Þau eru vön að aðstoða magaveika ferðamenn!
Hinn hagsýni ferðamaður
Magatruflanir í
sólarlandaferðum
Sunday Times.
Magatruflanir hjá ferðafólki eru nokkuð algengar fyrstu
eina til tvær vikurnar, sem dvalist er í framandi umhverfí.
Algengustu orsakir eru gerlar og sýklar, sem leynast í fæðu
og vatni. Einkennin eru magakrampi, uppköst og sótthiti,
ásamt niðurgangi. Algengt er að slíkar magatruflanir vari í
2-3 sólarhringa. í heitara loftslagi er hætta á að sjúklingar
fái ekki nægan vökva í líkamann. Eftirfarandi aðferðir hafa
reynst vel:
1. Hvílið magann. Forðist
áfenga drykki og mjólkurafurðir
í 12 tíma, eftir að síðasta kveisa
gerði vart við sig. Ef mjög ung
börn veikjast, er nauðsynlegt að
koma mat ofan í þau.
2. Það er mjög nauðsynlegt
að bæta upp það vökvatap, sem
líkaminn verður fyrir. Byijið
strax að dreypa á vökva. Bland-
ið sléttfullri teskeið af salti og 8
sléttfullum teskeiðum af sykri
saman við lítra af hreinsuðu
vatni (flöskuvatn). Mjög mikil-
vægt að blandan sé rétt, einkum
ef hún er ætluð fyrir yngri börn.
Drekkið tvö glös af blöndu eftir
hveija kveisu. Fullorðinn maður
er talinn þurfa um 3 lítra á sólar-
hring.
Meðal annars eru Lepor-
amide-töflur taldar góðar gegn
niðurgangi. Takið eina töflu eftir
hveija kveisu — allt að 8 töflum
á dag. Ef magaveikin stendur í
meira en fjóra daga, eða blóð
kemur frá sjúklingi, skal leita
strax til læknis.
Nánari upplýsingar hjá:
„Medical Advice Services (fyrir
ferðamenn eriendis), Masta,
Keppel Street, London WCIE
7HT. Sími: 01-831-5333. Þaðan
er líka hægt að panta rétta syk-
ur- og saltupplausn í vatni. Kost-
ar um 100 kr. Athugið samt fyrst
hvort hún fæst ekki í næsta apó-
teki!
Veðurhorfur íseptember Hæsta/ lægsta hKastig Raka- stig Regn- dagar
Aþena 29/19 42 4
BuenosAires 18/ 7 45 5
Kaíró 32/20 69 0
Kaupmannahöfn 18/11 69 15
Jerúsalem 29/17 36 0
Lissabon 26/17 54 6
london 18/11 65 13
LosAngeles 27/14 51 1
Mexíkóborg • 23/12 54 23
Miinchen 19/ 9 61 13
Paris 21/12 65 13
Prag 29/ 3 51 10
Santa Fe 23/ 9 39 8
Sydney 19/11 55 12
Miðað er við rakastig siðdegis Heimild: The Times Books World Weather Guide“
Vagga
golfsins
Skotland er vagga golfsins.
Bærinn St. Andrews er eins
þekktur fyrir golf og Lech í í
Austurríki fyrir skíðin.
Golfhótelið í St. Andrews
stendur skemmtilega á milli
sjávar og golfvalla. Það býður
upp á „dvalarpakka“, þar sem
er innifalið: gisting, morgun-
verður, hádegismatur og 2-5
golfhringir á þekktum brautum
(að eigin vali). Verðið er (fyrir
hvern mann í tveggja manna
herbergi) frá 14.000 kr. fyrir
þriggja daga dvöl upp í 33.000
kr. fyrir vikuna.
Veiðitíminn
Englandi
Veiðitíminn í Englandi hefst
um miðjan september fyrir þá
sem vilja taka þátt í akur-
liænuveiðum.
Veiðifélag Suðaustur-Eng-
lands býður upp á 2-4 daga
dagskrá, þar sem gist er á
breskum herragörðum. Ef meiri
áhugi er fyrir anda- eða dádýra-
veiðum er líka hægt að útvega
þær. Oftast eru það herragarð-
seigendur sjálfir sem sjá um
gestina. Verð fyrir hvern skot-
inn fugl er frá 1.200-1.900 kr.
Tíu á toppnum
í DanmÖrku
Ferðaþjón-
usta gefur
frændum
okkar Dönum
milljarðatekj-
ur. Meira en
10 milljónir
ferðamanna
streyma til
Danmerkur. Og það er gaman
að vita í hvað allir þessir
ferðamenn sækja. Listi yfir
„tíu á toppnum" fylgir hér á
eftir:
1. Tívolí í Kaupmannahöfn, 4
milljónir ferðamanna
2. „Bakken“, 2 milljónir.
3. Dýragarðurinn í Kaup-
mannahpfn, 1,1 milljón.
4. Legoland, 1 milljón.
5. Tívolí í Álaborg, 600.000.
6. Louisiana-safnið, 475.000.
7. Dýragarðurinn í Álaborg,
400.000.
8. Konunglega leikhúsið í
Kaupmannahöfn, 380.000.
9. Tónlistarhúsið í Árhúsum,
350.000.
10. „Djurs Sommerland",
325.000.
Og það eru ekki aðeins bjór-
framleiðendur, sem hafa
þurft að setja í „hágír“ í sum-
ar. í fyrra innbyrtu Danir (og
ferðamenn) um 43,7 milljónir
lítra af ís. Núna benda allar
líkur til að hesthúsaðar verði
yfir 50 milljónir lítra — eða
um 10 lítrar á hvern Dana!
Geri aðrir betur!
V-
FLÓRÍDA ENN VINSÆLLI
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
GÍFURLEGUR ferðamanngQöldi hefúr verið á Orlando-
svæðinu í Flórída það sem af er árinu. Ferðir bandarískra
Qölskyldna þangað virðist álíka þýðingarmikill punktur í til-
verunni og Þingvallaferð er Islendingum. Að auki koma 10-12
milljónir erlendra ferðamanna til Flórída á hverju ári og flest-
ir leggja leið sína í Disney World-garðana.
Kuldinn í norðlægari ríkjum
Bandaríkjanna hefur líka haft
áhrif á straum ferðamanna suður
eftir, því í Flórída hefur hiti ver-
ið yfir meðallagi og úrkoma
hverfandi lítil.
Svo mikil hefur aðsóknin verið
í Disney-garðana að undanförnu,
að fólki hefur verið vísað frá um
miðbik dagsins eða á tímabilinu
frá kl. 13 til 17. Eftir kl. 17
hafa garðarnir síðan fyllst á ný
enda mikið þar um að vera langt
fram á kvöld.
Það hefur vakið athygli á Or-
lando-flugvelli að þegar farþegar
eru kallaðir út í flugvélar Flug-
leiða til Íslands og Lúxemborg-
ar, mæla starfsmenn félagsins
einungis á ensku og dönsku. Er
þetta sögð eina „stóra“ lending-
arstöð Flugleiða þar sem enginn
af starfsmönnum félagsins á
flugvellinum talar eða skilur
íslensku.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. SEPTEMBER 1989 15