Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1989, Qupperneq 13
LESBOK
MORGUNBLAÐS I NS
16. SEPTEMBER 1989
IERMRIAÐ
LESBÓKAR
Ullin þvegin og þurrkuð.Börnin byrja snemma að hjálpa til.
Bandaríkjadollar gengur
jafnvel betur í Ekvador en
gjaldmiðillinn „sukres". Svarta-
markaðsbrask borgar sig yfir-
leitt ekki. Þokkaleg hótelher-
bergi eru frá 60-180 kr. á
mann. Hætt er við að okkur
finnist þau skítug. Rottugangur
og stífluð salerni! Hótelherbergi
í evrópskum gæðaflokki kostar
frá 600-1.000 kr. á mann. Góð
máltíð kostar um 100 kr. Hrein-
læti er mjög ábótavant. Maga-
töflur og malaríutöflur eru
nauðsynlegar í farangri. Heilsu-
gæsla og fæðisval e"r afar tak-
markað í þorpunum. Borðið
ekki syínakjöt! Afhýðið alla
ávexti! Mótmæiahópar safnast
saman vikulega til að mótmæla
verðhækkunum. Gætið ykkar,
þeim er alltaf tvístrað með
táragasi! Þjófnaðir eru daglegt
brauð! Góð verðtilboð eru alltaf
í gangi á ferðum til Suður-
Ameríku, til dæmis frá London
og Amsterdam. Vanir ferða-
menn geta ferðast sjálfstætt
með góðum leiðbeiningabókum.
Mælt er með „South America
on a Shoestring" og handbók
um Suður-Ameríku „South
America“.
Kona að selja baunir í Quito.
EKVADOR
Það er ekki mikið vitað um sögu Ekvador
fyrir 15. öld eða áður en inkarnir komu írá
Perú. Þó er vitað að allt frá 1200 f. Kr. hef-
ur fólk búið hér. En inkaveldið stóð ekki
lengi því Spánverjar voru um það leyti að
leggja undir sig lönd Suður-Ameríku. Árið
1533 náðu þeir Ekvador á sitt vald og var
það undir þejrra stjórn allt til 1822 þegar
Ekvador fékk sjálfstæði eftir langa
baráttu.
og
íbúar Ekvador eru svertingjar,
Spánveijar og indíánar. Þessir hóp-
ar samfélagsins eru mjög ólíkir og
blandast ekki. Þó að Spánveijar
séu aðeins 10% þjóðarinnar eru
þeir ráðandi í landinu og telja sig
yfir aðra liafna. Ekvador er mjög
fátækt land, aðaltekjulind er ban-
ana- og kakóframleiðsla auk olíu.
Skuldir eru miklar og bil milli ríkra
og fátækra mikið. Ástandið í þjóð-
félaginu veldur því að frumskógar-
lögmálið er ríkjandi, hver verður
að bjarga sér sem best. hann get-
ur. Þó hefur núverandi forseti
Greinarliöfundar „pústa“ við sæluliúsið.
landsins Rodrigo Boija (kosinn i
ágúst sl.), reynt að leysa einhver
félagsleg vandamál, t.d. opnað hús-
næði fyrir munaðarlaus börn þar
sem þau geta leitað skjóls og feng-
ið fæði. En óvíst er hversu lengi
þessar úrbætur endast, því fé er
af skornum skammti.
Töframeðul á oflilöðuum
mörkuðum
Höfuðborgin heitir Quito og er
í 2.850 m hæð. Algengt er að ferða-
menn fái þar svokallaða hæðar-
veiki, mikinn svima og ógleði. Við
stúlkurnar sluppum samt nokkuð
vel. Borgin skiptist í tvo liluta. Sá
nýi er lilaðinn stórhýsum og breið-
götum. Gamli hlutinn var mjög
heillandi með sínar þröngu stein-
lögðu götur fullar af litskrúðugu
mannlifi. Feitar og sællegar kerl-
ingar selja ýmiskonar baunir með
sterkri lauksósu, karlar hieð töfra-
meðul æpa: „Slöngujukk og apa-
heili er leiðin til betra lífs!“ Fólkið
kaupir óspart þessi galdrameðul.