Lesbók Morgunblaðsins - 16.09.1989, Side 16
HMrf
B Æ 1 L A R
Mitsubishi Lancer GLX. Morgunblaðið/Þorkell
'
rafKV 1216 ■ V
Hiaðbakurinn frá Lancer með sídrifí er vel útbúinn Rmm manna bíll.
Fj ór hj óladr ifinn
hlaðbakur frá Lancer
'U
Fjórhjóladrifsbílar bjóðast hérlendis í sífellt meira
úrvali. Jeppar, landbúnaðartæki og ferða- eða
torfærubílar voru áður einu fjórhjóladrifsbílarn-
ir en nú fjölgar sífellt þeim gerðum fólksbíla
sem bjóða upp á fjórhjóladrif. Subaru og Toy-
ota eiga hér langa sögu sem framdrifsbílar
með fjórhjóladrifsmöguleikann og nú þróast
hratt þeir bílar sem bjóða upp á aldrif eða
sídrif. Frá Mitsubishi er til dæmis hingað
kominn Lancer sem umboðið, Hekla hf.,
kynnti á dögunum. Lancer hefur átt vin-
sældum að fagna hér í nokkur ár og heldur
enn vinsældum eftir síðustu breytingar sem
komu fram í fyrra. Auk þess sem hann er
boðinn með 1500 vél og með ýmsum bún-
aði er hann nú kominn sem hlaðbakur
(hatchback) og GLX fjórhjóladrifinn hlað-
bakur með 1800 vél. Er það slíkur bíll sem
skoðaður verður í dag.
Mitsubishi Lancer fimm dyra, GLX hlað-
bakur með sídrifi er fimm manna bíll af milli-
stærð og vel útbúinn. Eins og aðrir Lancer
bílar er hann af GLX gerðinni, þ.e. hann er
tekinn á íslenskan markað með ákveðinn
fastan búnað sem hefur áunnið sér vinsældir
hér og flestir kaupendur vilja. Má þar nefna
samlæsingu á hurðum, rafstýrða útispegla
og fleira og er hann boðinn sjálfskiptur eða
fimm gíra beinskiptur.
Sídrifinn og röskur
Lancer GLX með sídrifi er með 1800 rúms-
entimetra, 96 hestafla vél með rafstýrðri fjöl-
innsprautun og er óhætt að segja að hún
skilar bílnum vel og rösklega áfram í góðu
viðbragði. Bíllinn vegur 1.135 kg, og ber
kringum 500 kg til viðbótar, hann er 4,235
m langur, hæðin er 1,425 m og hann er 1,67
m breiður. Lengd milli hjóla er 2,455 m. Hæð
undir lægsta punkt er 16,5 cm.
Lancer hlaðbakur er hannaður með það í
huga að geta mætt fleiri og ijölbreyttari þörf-
um en hinn venjulegi Lancer. Flutningarýmið
er 320 lítrar eða hið sama og í hinum venju-
lega en það nýtist nokkru betur vegna þess
að skuthurðin opnast mjög vel. Hægt er einn-
ig að leggja fram bak aftursætis til að stækka
rýmið.
Ekki þarf að fjölyrða um útlitið eða hönnun
að öðru leyti þar sem Lancer er nokkuð áber-
andi í umferðinni og menn því farnir að
þekkja hann á götu. Mjúkar og ávalar línur
eru ríkjandi og S-laga bogadregin lína setur
sterkan svip á bílinn, á hliðum og við afturljós-
in. Stuðarar falla inn í heildarmyndina og það
er nýtískulegur svipur á bílnum og mikil
breyting frá því sem var á hinum kantaða
Lancer fyrri ára. Hlaðbakurinn er að mestu
leyti eins í útliti nema hvað afturendinn er
að sjálfsögðu með öðru sniði. Bogadregin
afturrúðan fellur að afturhurðunum og er
henni skipt með litlum glugga við hurðirnar.
Bílstjórar finna sig strax vel heima undir
stýri á Lancer. Sætin eru þokkalega góð svo
og stillingar þeirra og er allgott höfuð- og
axlarými bæði í fram- og aftursætum. Stjórn-
tækin liggja ágætlega við, sérstaklega armar
með stefnuljósum og þurrkum en lengra er
í rofa fyrir afturþurrku og hitara á sjálfu
mælaborðinu. Miðstöðvarstilling er einföld og
góð og blástur berst vel um allan bílinn og
tekur fljott móðu af rúðum. Stýrið er stillan-
legt og má ítreka að strax og sest er undir
stýri má segja að ökumaður kunni vel við sig.
Nýtur sín í beygjum
í akstri er Lancer GLX með fjórhjóladrifi
skemmtilegur bíll. Hann nýtur sín einna best
Bílstjóri Bnnur sig strax vel beima undir stýri í Lancer.
þegar rösklega er ekið í beygjurnar og má
segja að það sé ánægjulegra að aka honum
á krókóttum og bugðóttum vegum en á sléttri
og felldri Reykjanesbrautinni. Þessi bíll var
á nokkuð grófum Good-Year hjólbörðum og
má segja að þeir séu hvimleiðir á borgarmal-
bikinu en hljóta að grípa vel í hálku og skila
bílnum vel og örugglega áfram. Bíllinn kemur
hins vegar hingað á venjulegum radíal börð-
um. Fjöðrunin er sjálfstæð gormafjöðrun að
framan og snerilijöðrun með gormum að aft-
an og virkar hún hæfilega stíf þegar bílnum
er rennt sæmilega hratt í beygjur.
Eftir fremur stuttan akstur má kannski
segja að hér sé helst um að ræða skemmti-
legt leikfang sem hægt er að aka af öryggi
nokkuð hratt við misjafnar aðstæður. Bíll sem
þessi hentar við erfiðar aðstæður, snjó-
þyngsli og aðra erfiða vegi og hlýtur því að
teljast góð viðbót við það sem fyrir er á
markaðnum. En fjórhjóladrifið gerir þennan
bíl aldrei að neinum jeppa heldur er það fyrst
og fremst til að gera góða aksturseiginleika
bílsins ennþá betri. Svokallað seigjutengsli
jafnar átakið milii fram- og afturdrifs og því
verður ekki vart tilhneigingar til hliðarskriðs
á vegum með þurru og sléttu yfirborði. Bíla-
framleiðendur leggja nú áherslu á að bjóða
fjórhjóladrif sem miðar ekki síður að góðum
almennum aksturseiginleikum en því að koma
þessum bílum áfram í það sem við myndum
kalla torfærur. Það hefur tekist vel með þess-
um bíl hjá Lancer.
Peninganna virði?
Hlaðbakurinn Lancer með sídrifi kostar
staðgreiddur kr. 1.148 þúsund krónur en á
afborgunarverði kr. 1.196 þúsund. Hlaðbakur
sem einungis er búinn framdrifi kostar 886
þús. krónur í staðgreiðslu svo menn eru að
greiða yfir 250 þúsund fyrir sídrifið og 1800
vél í stað 1500. Það má vissulega telja pening-
anna virði fyrir þann sem hefur ánægju af
akstri, þarf að aka mikið og er því kröfuharð-
ur við ökutækið. Hann fær það sem hann
borgaði fyrir í Lancer með sídrifi - fjölhæfan
og skemmtilegan bíl. Hinir geta sparað sér
þennan mismun.
jt
Bílastæðin og letingjarnir
Stundum er hreint ótrúlegt að sjá hvern-
ig bílum er lagt í Reykjavík. Engu er
líkara en að ökumenn hafi orðið bráð-
kvaddir í stórum stíl eða hlotið slíka
bráða kvilla að þeir hafí orðið að hlaupa
út úr bílum sínum á stundinni þar sem
þeir voru þá niður komnir, á miðjum
götum, þversum á gangstéttum eða á
öðrum stöðum þar sem allir vita að ekki
á að leggja.
Vitað er að víða á höfuðborgarsvæðinu
eru bílastæði af skornum skammti en það
leyfir bílstjórum ekki að skilja svona við
bílana. Hins vegar er það ríkjandi kækur
að nota ekki þau stæði sem fyrir eru. Mynd-
in hér er tekin við Snorrabraut en í vor var
henni breytt nokkuð og bílastæðin færð frá
miðeyju götunnar til hliðanna. Þessu hafa
margir ekki tekið eftir og halda áfram að
leggja bílunum við miðjuna þar sem nú er
önnur akrein götunnar. Þarna sést hugsun-
ar- og athugunarleysið glöggt. Hefði öku-
maður litið örlítið í kringum sig hefði hann
strax séð hvar stæðin - hin réttu og leyfðu
bílastæði - biðu eftir honum hægra megin
á götunni.
Ennþá er mjög algengt er að sjá bíla sem
þannig er lagt á Snorrabraut og hafa stæðis-
verðir reyndar stundum verið þarna á vappi
á annatímum til að benda þessum sofandi
ökumönnum á villu sína og er það vel.
Þetta er bara dæmi um það sem sjá má
nánast í annarri hverri götu í borginni. Slíka
sjón má einnig sjá víða á stórum bílastæðum
til dæmis við verslunarkjarna. Bílstjórar aka
rakleiðis að aðalinngangi verslana og finni
þessir fullfrísku ökumenn ekki stæði við
dyrnar er bara lagt við gular línur, í stæði
merkt fötluðum, við vörudyr, á gangstéttir
eða bara á götunni við innganginn þar sem
bílar þeirra trufla og tefja umferð um stæð-
ið. A sama tíma má yfirleitt sjá fjölda af
lausum stæðum svona 30 til 50 metra í
burtu. Svona lagað er náttúrlega ekkert
annað en leti sem þarf að hjálpa mönnum
til að sigrast á með einhveiju móti.
Jt
Sumum ökumönnum getur dottið í hug að leggja bílum sínum hvar sem er og það
jafiivel á miðjum götum eins og þessi Ijósi Fiat.