Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Blaðsíða 10
Volvo 740 með ríkulegum búnaði. Driflæsingin Driflæsingin var kynnt í byijun síðasta árs og er fáanleg á allar gerðir 700 línunn- ar. Hún er sjálfvirk og er virk allt upp í 40 km hraða. Þegar ekið er á ísingar- eða hálkubiettum kemur læsingin sér vel. Fari annað hjólið að spóla grípur læsingin strax inní og færir átakið á það hjól sem betra grip hefur. Það getur sveiflast á milli hjóla en þetta skilar bílnum mun betur áfram við ákveðnar erfiðar aðstæður og getur því komið sér mjög vel. Ólæsanlegu hemlarnir voru til umræðu í síðasta bílaþætti og skal það aðeins árétta helstu kosti þeirra. Hemlamir læs- ast sem sagt ekki, hjólin dragast ekki og því hefur ökumaður jafnan fulla stjórn á bílnum þótt snögghemlað sé og stigið af afli. Skynjarar og tölvubúnaður stjórna helmun á hveiju hjóli og hemla ótvírætt til hins ítrasta án þess að láta hjólin drag- ast. Við allan venjulegan akstur má vissu- lega segja að þetta ráði engum úrslitum en við vissar aðstæður geta þessir hemlar skipt öllu máli. Þegar snögghemla þarf í hálku, bleytu eða lausamöl vegna þess að eitthvað kemur uppá er hætta á að öku- menn læsi hjólunum og fá þá lítið við bílinn ráðið, geta ekki stýrt honum. Þessi hætta er ekki fyrir hendi á bíl með læsi- vörðum hemlum. Því skyldu menn athuga þennan kost þegar bílakaup eru framund- an. Þessi hemlategund kostar vitanlega meira en það hlýtur líka að koma að því að hún verði útbreidd. Þægindi Volvo 740 GLTi með sjálfskiptingu og vökvastýri er þægilegur á allan hátt. Rý- mið er gott í framsætum sem aftursætum og farþegar geta notið stuðnings armpúða og komið smádóti sínu fyrir í hinum ýmsu hólfum. Bíllinn er lipur í borgarakstri en það sem ökumaður helst myndi kjósa til að fullkomna myndina er meiri snerpa. Þessum bíl verður ekki hælt fyrir góða vinnslu þótt vissulega sé hún þokkaleg. Þægindi og öryggi eru aðalsmerki GLT pakkans hjá Volvo 740 og það er líka tals- vert fengið með þeim. Og til þess að öðl- ast það verða menn að vera reiðubúnir að leggja fram talsvert fé. jt Iveco sendi- bflum flölgar Sendibílar frá Iveco hafa ekki verið mik- ið á ferðinni hérlendis en þó í vaxandi mæli. ístraktor heitir innflytjandinn og segir Páll Gíslason að ætlunin sé að selja milli 20 og 30 bíla í ár. Iveco Daily heitir sú gerð sem lögð verð- ur áhersla á. Er það sendibíll er millistærð og hefur til þessa mestmegnis verið keyptur til sendiferða en nokkrir þó í öðrum til- gangi. Þannig hefur Slökkviliðið í Vest- mannaeyjum fengið slökkvibíl með öllum Morgunblaðið/Þorkell Góður Volvo pakki í 740 GLT Sendibílar frá Iveco eru að ryðja sér til rúms hérlendis. nauðsynlegum búnaði frá Iveco og Vest- fjarðaleið hefur látið smíða yfir bíla frá Iveco, m.a. einn tveggja drifa. Páll Gíslason segir að sendibflstjórar vilji í auknum mæli kynna sér Iveco þegar end- umýjun stendur fyrir dyrum. Segir Páll að þessir bílar standi sig vel í verðsamanburði við aðra evrópska sendibíla en japanskir séu skæðir keppinautar. Volvo 740 sem við skoðum í dag hefúr ekki tekið róttækum breytingum frá því hann kom lyrst á markað. Stöðugt er þó unnið að endurbótum og með 1990 árgerðinni má finna þær hið ytra sem innra. Örlitlar útlitsbreytingar má sjá, sérstaklega hvað varðar framend- ann, en ýmsar tækninýjungar eru þó kannski eftirtektarverðari. I síðustu viku var rætt nokkuð um ólæsanlega hemla (ABS- hemlakerfið) og verður það einnig til umræðu nú ásamt dri- flæsingunni nýju sem er fáanleg í 700 linuna. Volvo 700 línan hefur alls ekki breyst mikið hið ytra en ýmislegt er þó þar að finna. Framendinn er orðinn lægri, vélar- hlífin meira byggð niður að framan og grillið því lægra eða mjórra. Sérstakur rammi markar nú aðalljósin og stuðarinn og vindskeiðin að framan renna saman í eitt stykki. Grillið er fáanlegt bæði dökkt og ljóst. Að aftan hefur ljósum verið breytt lítillega og að innan má segja að breyting- amar felist að miklu leyti í meira vali á innréttingum og samsetningu þeirra. Hlaðinn aukahlutum Volvo 740 GLTi með sjálfskiptingu og hlaðinn aukahlutum er sá bíll sem rætt verður um í dag. Brimborgarmenn hafa ákveðið að taka hann með ýmsum sérbún- aði og bjóða í einum pakka. Hafa náðst allgóðir samningar um pakkaverð fyrir bflinn og er hann með svofelldum búnaði: Vélin er 121 hestafla með beinni inn- spýtingu, bíllinn er sjálfskiptur, með vökvastýri og álfelgum, rafmagni í rúðum að framan og aftan, raflæsingu, rafdrifn- um hliðarspeglum, hita í framsætum, hæðarstillingu á bílstjórasæti, hemlaljós- um í afturglugga, ólæsanlegum hemlum og driflæsingu. Tvö síðast töldu atriðin eru þeirra merkust enda dýrust, kosta hátt í 300 þúsund krónur ef þau eru sérpöntuð. Fyrir þennan pakka þarf að greiða kr. 1.985 þúsund á borðið. Venjulegur GLi með sjálfskiptingu kostar yfir 1.700 þús- und krónur og vissulega er hann ríkulega búinn einnig. Pakkabíllinn hefur hemla- kerfið, driflæsinguna og álfelgurnar fram yfir og vilji menn hafa þessi atriði með á annað borð er einfaldast að kaupa pak- kann. Fyrir utan þetta má síðan bæta við sóllúgu og ef menn vilja getur hún verið rafdrifin. Sú viðbót kostar um 140 þúsund krónur. Volvo 740 er 4,785 m langur, 1,75 m breiður og 1,435 m hár. Lengd milli hjóla er 2,77 m og hann vegur 1.290 kg og ber 510 kg. Farangursrýmið er 475 lítrar og má tvímælalaust hæla því fyrir hversu mikið það gleypir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vestfjarðaleið notar Iveco til farþegaflutninga. Ólæsanlegir hemlar gera það að verkum þótt nauðhemlað sé t.d. í hálku í beygju. Mælaborðið veitir allar nauðsynlegar upplýsingar. að hægt er að hafa fúlla stjórn á bílnum Farangursými ætti að nægja í flestum tilvikum. Varahjólið er einnig geymt þar. 10

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.