Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Blaðsíða 14
Nútíma skúlptúrar og hreySlistaverk á Markaðstorginu í Stuttgart. Eitt af musterum myndlistarinnar í Þýzkalandi er Staatsgalerie í Stuttgart, sem um var fjallað í 39. tölublaði Lesbókar á síðasta ári. Þar er m.a. meistaraverk Diirers: Kristur 12 ára og hinir skriftlærðu. það var auk þess sannarlega hægt að láta fara vel um sig Hótel Steigenberger, enda er það heldur í dýrari kantinum. Það getur verið skemmtileg tilbreyting að búa á svona hóteli í eina eða tvær nætur, en svona að jafnaði finnst mér það aðeins flottræfils- háttur að eyða miklurti peningum í þesskon-' ar tildur og ég reyni að sneiða hjá þvi. í þetta sinn var ekki ráðrúm til að fara í ógeruna og ekki heldur á völlinn til að sjá „Ásgeir Sigurvinsson og félaga". Þeir sem lesa íþróttafréttir íslenzku fjölmiðlanna, hljóta að fá þá hugmynd að íslenzku strák- arnir í atvinnumennskunni séu allt í öllu; hinir sem heita „félagar" fá bara að gutla með. Þessa dagana stóð raunar yfír í Stuttg- art opið tennismót með stjömum eins og þeirra eigin Boris Becker og Bandaríkja- manninum McEnroe og fleiri köppum. Af þessu sést hvað sjónvarpið er gífurlega áhrifamikill miðill; maður tímir ekki að fara út úr hótelinu og missa af útsendingu á íþróttaviðburði í Englandi og tennismótið var svo vel sýnt í sjónvarpinu, að áhorfend- ur á staðnum hafa varla séð það betur. Á sunnudeginum í Stuttgart var mestan part verið á rölti, en það var fremur dauft yfír miðbænum og minnti mann jafnvel aðeins á doðann, sem færist yfir miðbæ Reykjavíkur á sunnudögum. Að vísu var miklu fleira fólk á randi á Hallartorginu, sem svo er nefnt og minnir í stórhuga víðáttu á Place de la Concorde í París. En daginn eftir, á mánudegi, var yfirbragð staðarins gerbreytt; stórborgarysinn kominn í stað róseminnar. Ef ég man rétt var dijúg sneið af þessum degi notuð til að fara í búðir í Königstrasse og við Markaðstorgið gegnt ráðhúsinu, þar sem Kaufhaus Breuninger stendur. Þar fæst til dæmis fatnaður eins og hann gerist beztur í Þýzkalandi og verð- ið er skikkanlegt. Umfang glæsilegra verzl- ana i Stuttgart er samt ekki á borð við það sem gerist í Köln og Diisseldorf. Einn magn- aðasti iðnaðar- og kaupahéðinn Þýzkalands er með aðalstöðvar í Stuttgart, nefnilega Hugo Boss. Þar á bæ er efnið ekki skorið við nögl og Boss-fatnaður í útstillingum er gjaman eins og tveimur númerum of stór og hver silkihúfan utan yfir annarri, ef svo mætti segja. Módelin, sem íklæðast Boss- fötum á myndum, segja líka skýrt og greini- lega hvernig markhópurinn er: Ungir menn á uppleið, eða uppar, vel fjáðir ungir menn, sem aka á Porsche eða Jaguar til dæmis. Þó er annar iðnrisi í Stuttgart, sem ber höfuð og herðar yfir aðra: Mercedes Benz. Á nýju og glæsilegu járnbrautarstöðinni í miðborginni gnæfír stjama Benz eins og heilagt tákn borgarinnar. Að vísu smíða þeir nú eitthvað af Bensunum norður í Brem- en, en mest hér og í Unterturkheim, sem er rétt hjá Stuttgart. Mistök er alltaf auðvelt að gera þar sem maður er ókunnugur. Það er til dæmis vill- andi að horfa einungis á kortið, þegar dag- leiðir em ákveðnar, því það er villandi. Mér virtist til dæmis, að varla gæti verið nema fjögurra stunda akstur frá Stuttgart til Garmisch Partenkirchen, þangað sem ferðinni var heitið í næsta áfanga. Sam- kvæmt því áttum við að hafa það nokkurn veginn í björtu, þó ekki værifarið frá Stuttg- art fyrr en kl. 3 síðdegis. Ég ætlaði mér á hraðbrautina til Ulm, sem liggur fyrir sunn- an borgina eins og áður segir, og eftir það átti gatan að vera greið. Ég þóttist vera með allt á hreinu, þegar ég sá skilti austantil í Stuttgart, sem vísaði á hraðbraut til Ulm. Allt leit vel út í fyrstu; ekið eftir dalverpi með margskonar stóriðn- aði, framhjá Esslingen og sem leið liggur til Göppingen. En viti menn; þar endaði sú hraðbraut og við tók sannkölluð sniglabraut gegnum ótal smábæi með umferðarljósum, sem stöðvuðu alla umferð, svo lestirnar voru orðnar óhugnanlega langar. Mig minnir það tæki heila þijá tíma að komast spölinn til Ulm, sem er þó ekki helmingur leiðarinn- ar. Það bíður betri tíma að sjá þann gamal- fræga bæ með einni af tignarlegustu kirkj- um Þýzkalands. Nú var ekki um annað gera en að slá í á hraðbrautinni til Augs- burg, sem er annar gamalfægur bær, snertuspöl frá Miinchen. Um leið fór að dimmna. Við Augsburg er sveigt útaf hraðbraut- inni og tekin leið 17, sem liggur nánast eins og beint strik suður yfir Bæjaralandið, unz fera að halla upp í Álpana hjá Schon- gau. Það vildi til að umferðin var lítil á þessum vegi, því komið var myrkur og þar að auki úrhellisrigning og sumstaðar þoku- belti. Það er varla hægt að paufast áfram á meiru en 40-50 km hraða við svona að- stæður og þegar ofar dregur og vegurinn ákaflega hlykkjóttur, verður meðalhraðinn varla yfír 25 km. Það var eins og þessi leið ætlaði aldrei að taka enda og auðséð eftirá, að þarna hafði verið lagt í of langa dagleið. Það var frekar slæptur ökumaður, sem lagði Kadettinum við járnbrautarhótelið í Garm- isch. Það var eitthvað í dýrari kantinum og lifir bæði á gamalli frægð og nýrri. Innan- stokks er allt á grófu nótunum; mublurnar úr sverum plönkum og víða eru eldfornir munir. Þetta er að sumu leyti eins og byggðasafn. Gfa|i Framhaldið birtist í næsta blaði. Frá Luxemburg Til Stuttgart Fyrsti áfanginn var ákveðinn frá Luxem- burg og suður á bóginn til Stuttgart í sam- bandsríkinu Baden Wúrtemberg. Ætli það geti ekki talizt skikkanlegur fjögurra tíma akstur miðað við að vera rúmlega á hundrað- inu allan tímann. Flugleiðavélin kemur um hádegi til Luxemburgar og síðan fer ein- hver tími í að fá sér í gogginn og taka bíla-i leigubílinn. Það á ekki að vera nein ofætlun að aka þennan spöl seinnipart dagsins og reyndist auðvelt. Stefnan er undir eins tek- in á Saarbrucken, höfuðborgina í Saar- landi, og skilti með því nafni sjást þegar við flugvöllinn í Luxemburg. Leiðin út úr furstadæminu liggur eftir sveitavegum og búsældarlegum dölum með fima hávöxnum skógi. Þorp og bæir eru með sama brag og í Frakklandi; allt dálítið sjúskað og illa við haldið, - en á því verður heldur betur mun- ur þegar komið er yfir landamærin til Þýzka- lands. Landamæraverðir nenna ekki lengur að tefja vegfarendur; þeir eru eins og verð- irnir í hliðinu við Keflavíkurflugvöll sællar minningar og láta nægja að veifa. Þarna er ekið yfir Mósel, en við látum Móseldalinn eiga sig núna og eftir skamman akstur er komið á vatnasvæði árinnar Saar og þar hefst hraðbraut númer 8, sem liggur í fögru landslagi meðfram ánni til Saarbrúcken. Þangað er um það bil hálfs annars tíma akstur, en örugglega hægt að komast þá leið á klukkutíma, ef ekið er eins og æði margir gera á hraðbrautunum. Ég var ákveðinn í að þreyta mig ekki á hraðakstri og lónaði á 120 á vörubílaakreininni lengst til hægri, eða þá á miðjunni. Svo sá maður þá birtast í baksspeglinum á akreininni Iengst til vinstri, stundum langt í burtu, en það skipti engum togum að þeir fóru fram- úr og voru horfnir um leið; bílar eins og Mercedes Benz, BMW og Porsche algeng- astir í þeim flokki. Samt fannst mér þetta afslappaður og'þægilegur akstur á hrað- brautinni, vegna þess að maður getur dálít- ið haft sína hentisemi og ekið út á merkt hvíldarsvæði ef svo ber undir. Það vakti aftur á móti undrun mína á allri þessari leið til Stuttgart, hversu sparir Þjóðverjar eru á veitingastaði meðfram hraðbrautun- um. Það er varla nokkur Staðarskáli á þess- ari leið og vilji maður stansa til að fá sér hressingu, verður helzt að sveigja útaf og finna slíka staði í nálægum bæjum. Saarbrucken er hrífandi borg á fallegum stað við fljótið, en nú var haldið framhjá og stefnan tekin í fyrstu á hraðbrautina til Kaiserslautern. En skömmu áður en komið er til Homburg verða mikil vegamót, þar sem önnur hraðbraut að norðan sker austur- leiðina. Þama hefur maður val um að taka á sig nokkurn krók og aka leiðina um Kais- erslautem, Ludvigshafen, Mannheim og Heidelberg - og þaðan suður til Stuttgart. Sá kostur væri freistandi, ef gist væri fyrstu nóttina í Saarbrucken og síðan tekinn heill dagur í að komast til Stuttgart. Þá væri þetta ósköp skikkanleg dagleið og hægt að gera stuttan stanz í Heidelberg, sem er einn mestur ferðamannastaður í Þýzkalandi og ekki sízt vegna þess að bærinn hefur af einhveijum ástæðum orðið draumastaður í augum Bandaríkjamanna og Japana, sem beinlínis flykkjast þangað. En vegna þess að við höfðum áður komið þangað og einn- ig hins, að tími var ekki til þess, var ákveð- ið að sleppa olboganum til Heidelberg og stytta sér leið til Stuttgart gegnum þann skóg, sem heitir Pfálzerwald. Frá fyrmefnd- um vegamótum er fyrst stefnt á Zweibruc- ken og síðan á Pirmasens og þrýtur þar hraðbrautir í bili. Þarna liggur leiðin eftir sveitavegum um hæðótt landslag unz komið er út á sléttuna, sem verður báðum megin vil Rín. Þar er á hægri hönd borgin Karlsruhe, sem ugg- laust væri freistandi áfangastaður. En degi var tekið að halla og enn dtjúgur spölur ófarinn til Stuttgart. Þar er enn komið á hraðbraut númer 8 til Leonberg, þar sem ber að beygja í vinkil til vinstri inná hrað- braut 81. Þar svaf ég á verðinum og hafði í fljótheitum sýnst, að hraðbraut 8 lægi al- veg framhjá Stuttgart og að það yrði lítið mál að finna „Ausfahrt", sem vísaði á mið- borgina. Samkvæmt kílómetratölunni átti Stuttgart að vera í sjónmáli; samt var að- eins smábæi að sjá og svo fór að standa Ulm og Múnchen á skiltunum. Þá vissi ég að Stuttgart var að baki; borgin sést nefni- lega ekki frá hraðbraut 8, sem er það langt fyrir sunnan: Þetta var svo sem augljóst, þegar kortið hafði verið athugað sem skyldi og nú var ekkert. annað að gera en snúa við og halda norður á bóginn. Eftir snertu- spöl kom Stuttgart í ljós í dvínandi dagsbirt- unni. SUNNUDAGURÍ STUTTGART Sumir vilja helzt af öllu forðast stórborg- ir, þegar farið er um meginland Evrópu á bíl. Það er skiljanlegt sjónarmið, en það eykur á fjölbreytnina að gista eina borg og auk þess getur Stuttgart kannski ekki talizt stórborg; mannfjöldi þar mun vera um 700 þúsund. Hún er samt nógu stór til að hafa til að bera allt það sem einkennir stórar borgir og ástæðan til þess að ég kaus að koma þar við var sú, að mig fýsti að sjá og koma í nýtt og talsvert frægt listasafn, Staatsgalerie, sem ég hef nú þegar skrifað um í Lesbók. Um það verður því ekki orð- lengt hér, en aðeins bent á að húsið sjálft, sem brezki stjömuarkitektinn James Stirling teiknaði, er talið meðal úrvalsverka í nútíma arkitektúr. Stuttgart er ekki borg umtalsverðra há- hýsa; hún lætur ekki mikið yfir sér og jafn- vel af aðaltorginu í miðborginni sér maður í skógi vaxnar hæðirnar í kring. Þetta setur á borgina notalegan svip og kannski er það rétt, sem þýzkur kunningi okkar í Saarbrúc- ken sagði:,, Stuttgart er hálfgert kmmmask- uð, þar sem aldrei er neitt að gerast og ekki sála á ferli á kvöldin, því þessi schwábíska reglusemi er svo yfirgengileg, að allir eru famir að sofa klukkan níu á kvöldin." Mig granaði að á bak við þetta væri ein- hver þýzk hreppapólitík, en nennti ekki að fara út á þessu laugardagskvöldi til að sann- reyna þetta. Ekki var það sízt vegna þess að þá stundina stóð yfir bein útsending frá Ryder Cup-keppninni í golfi, þar sem Banda- ríkjamenn og Evrópumenn eigast við. Og Þeim sem koma til Stuttgart og eru í verzlunarhugleiðingum, skal bent á stórverzlunina Kaufhaus Breauninger, þar sem bæði er hagstætt verð og mik- il vörugæði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.