Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Blaðsíða 11
Giugiario hannar r • nyjan Jagúar Abílasýningunni í Genf nú í vetur, vakti einna mesta athygli ný út- færsla á 12 strokka Jagúar, eftir hinn heims- kunna ítalska hönnuð Giugiario, sem rekur hönnunarfirmað Italde- sign. Hann hefur oft verið ráðinn til að fara höndum um nýjar gerðir ýmissa dýrra bíla, þegar mikið stendur til og stundum verið gagmýndur fyrir að teikna bara Giugiario- bíla, sem bera augljósan svip hönnuðarins, en hinsvegar hafi gleymst að viðhalda því Óneitanlega svipsterkur bíll og legur: 12 strokka útfærsla Giugiarios. sérstaka svipmóti, sem tegundin þykist hafa áunnið sér. Giugiario vildi taka tillit til þessarar gagn- rýni þegar hann fékk tækifæri til að endur- hanna stóra Jagúarinn, enda hefur það tekizt í þeim mæli að allir sjá við fyrsta augnakast, að þarna er Jagúar. Breytingin felst einkum í því að fleiglagið hefur verið aukið; Jagúarinn er lægri að framan og hærri að aftan en áður og til þess hefur þurft að minnka kæliristina og halla henni meira aftur en áður var. Giugiario nefnir nýju gerðina Kensington, en yfirhönnuður Jagúar, Geoff Lawson, er ekki allskostar ánægður og telur að 12 strokka Jagúarinn verði aldrei framleiddur alveg svona. En sjálfsagt er eins þungt á metunum hvað nýr eigandi fyrirtækisins segir, nefnilega sjálfur Ford í Ameríku, sem ætlar að hressa uppá ímynd sína með þess- um fræga gæðingi. Það er eftirtektarvert, að þessi teikning minnir talsvert á milistærð- ina af Jagúar, eins og hún var fyrir um það bil tveimur áratugum, og vegna fleigforms- ins og hækkunar afturhlutans er trúlegt að hann sé ekki eins rennilegur eins og sá Jagúar, sem nú fæst og hefur verið fram- leiddur óbreyttur í tvo áratugi. GS Gamli tíminn Timbraður eftirstríðs- áravagn Margir kannast eflaust við svipinn á honum þessum, þótt trúlega hafi enginn verið flutt- ur inn hingað til lands af nákvæmlega þess- ari gerð. Ford V8 Super DeLuxe Sports- man, ekki dugir minna í nafngiftina og ár- gerðin er 1946 til ’48. Fyrsta framleiðslan eftir stríð og hönnunin síðan fyrir stríð. Þegar ekki var hægt að bjóða nýja hönnun, svo skömmu eftir heimsstriðið mikla, varð að gera eitthvað annað til að laða kaupend- ur að, og það var gert með timburverki! Hliðar bílsins voru smíðaðar úr harðviði og þótti flott. Þessi var sá dýrasti af Fordunum og seldist fremur illa. ’46 voru framleiddir 1.209 bílar þessarar gerðar, ’47 voru þeir 2.250, en ’48 aðeins 28, enda fallnir á tíma þá. Engar nýjungar voru í bílnum, vélin var gamla góða Ford átta gata flathaus maskín- an, 240 kúbiktommur og skilaði 100 hestöfl- um. Þótt bílinn hafi verið gamaldags á sínum tíma og selst illa, hefur tíminn breytt dæm- inu svolítið. Nú er hann eftirsóttur af söfnur- um og safnarahandbókin okkar segir að góður bíll kosti 6.000 til 10.000 dollara, það gera 360 til 600 þúsund krónur á Banda- ríkjamarkaði. Óaðfinnanlegur bíli kostar allt að 18 þúsund dollurum, eða tæpar 11 hundruð þúsund krónur. ÞJ Hraðbrautagæðingur frá Mitsubishi og Chrysler Þessa dagana virðist svo sem ótal iðnrisar séu í samstarfs- ef ekki samrunahugleiðing- um hver við annan. Taiið er að stór flugfé- lög þurfi að sameinast til að lifa af í sam- keppninni og risarnir þrír í bandarískum bílaiðnaði eru orðnir á hálfgerðum brauð- fótum og reyna nú að styrkja stöðu sína með eignarhaldi eða samvinnu við evrópska og japanska framleiðendur. Chrysler berst nú um á hæli og hnakka til að bæta bágborna stöðu sína og hefur leitað eftir samstarfi við Mitsubishi f Japan. Arangurinn þótti óvenju fljótur að sýna sig, Samvinnuverkefni japanskra og banda- rískra bílasmiða: Mitsubishi 3000GT - Dodge Stealtli. því á bílasýningu í Detroit í janúar, var sýndur hraðbrautagammurinn Mitsubishi 3000GT/Dodge Stealth. Það er sami bíllinn, en seldur undir Dodge-nafninu í Banda- ríkjunum. Þetta er meira kraftalegur en rennilegur sportbíll, enda er kraftur í kögglum. Hann er knúinn 3 lítra, 296 hestafla V-6 vél og vinnslan er með þvílíkum ágætum, að að- eins Ferrari Testrarossa er 0,2 sek fljótari í kvartmíluna, sem er um 400 metar. Aflið fer síður í að spóla á fyrstu metrunum, því hér er sítengt aldrif og seigjutengsli. Þar að auki er stýring á öllum hjólum og raf- eindastýrð fjöðrun og ÁBS hemlakerfi með 16 tommu diskum, sér um leiftursnögga hemlun og að sjálfsögðu er loftpúði, sem kemur til sögunnar ef eitthvað ber útaf. Að lokum má geta þess, að herlegheitin kosta sem svarar 3 milljónir króna í Banda- ríkjunum. GS LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 31. MARZ 1990 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.