Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Side 13
19111 f ,111 f 13113 Itilllill 31 f 1 ft ,511;
IV 31
FERH4BMÐ
lesbókar
13
Miðbærinn í Stuttgart er glæsilega skipulagður, en yfir virðulegar, gamlar byggingar sjást allsstaðar skógi vaxnar hæðirnar umhverfís. Þetta er hlýlegur mið-
bær. Fyrir miðju er Nýja höllin og Hallartorgið fyrir miðju en fjær og til vinstri eru Operan og Listasafhið.
Ekið um Þýzkaland
Fyrir nokkrum árum ók höfimdur þessa pistils á bílaleigubíl um
Suður England, sem er yndislegt landsvæði og birtust nokkrar
greinar um þennan ferðamáta í Lesbókinni. Er skemmst frá því
að segja, að ennþá er verið að biðja um þessar greinar vegna fyrir-
hugaðra ferða á þær slóðir. Á þeim sjö árum sem liðin eru síðan
sú ferð var farin, hefur sú breyting orðið, að margfalt fleiri lands-
menn kjósa þann ferðamáta að taka bílaleigubíl og ferðast á eigin
spýtur.
Yfirgnæfandi meirihluti flýgur
til Luxemburgar og tekur bílinn
þar og það er í því ljósi, að hér
er birtur smávegis leiðarvísir um
akstur frá Luxemburg og suður
um Þýzkaland. Sú ferð sem hér
um ræðir tók 13 daga.
Þegar þessi ferðamáti er valinn,
eru í aðalatriðum þrír kostir um
að velja hvað gistingu áhrærir. í
fyrsta lagi er að hafa allt á þurru
landi; skipulegga ferðina dag fyr-
ir dag og láta ferðaskrifstofu
panta hótelin. Þetta hefur að vísu
þann annmarka, að það getur tek-
ið tímann sinn og verið snúið að
finna finna tiltekið hótel í borg,
þar sem maður er með öllu ókunn-
ur. í þetta sinn hafði ég þennan
háttinn á og hótelin voru í öllum
tilfellum við miðbik þeirra borga
og bæja, sem gist var í, svo það
reyndist ekki ýkja erfitt að finna
þau. Að sjálfsögðu eru viss þæg-
indi í því að búa í miðbæjum,
hvar sem farið er. Hótelin hafa á
sínum snærum bílageymslur fyrir
gesti sína, reyndar gegn sérstakri
greiðslu. Sú tilhögun er að
minnsta kosti ódýrari þegar mað-
ur er akandi að búa utan við borg-
ir og bæi, en aka inn í bæinn, ef
þar er eitthvað að sjá eða gera
og fyrir alla muni: Ekki reyna að
leggja bflnum annarsstaðar en í
bílageymslu á meðan staldrað er
við. í fyrsta lagi er reyndar ólík-
legt að öðruvísi bflastæði finnist
og ekki er það skemmtilegt að
uppgötva, að lögreglan hefur bara
hirt bílinn og flutt hann í burtu.
Annar kostur þegar farið er um
á bílaleigubíl er „ferð án fyrir-
heits“ ef svo mætti segja; ekið
af stað án hugmyndar um gisti-
staði og án þess að eiga nokkuð
pantað. Fyrir nokkrum árum ók
ég þannig um Sviss og var aldrei
neinum vandkvæðum bundið að
finna sér hótel. Það er kannski á
álagstímum sumarleyfa um há-
sumarið að þessi aðferð geti talizt
óvarleg og þess ber að geta, að
í Þýzkalandi getur verið útilokað
að fá inni á hóteli í sumum borg-
um, eða í nánd við þær, vegna
einhverra uppákoma sem draga
þangað ferðamenn í miklum mæli.
Síðla septembermánaðar voru til
dæmis öll hótel í Dússseldorf og
nágrenni sögð bókuð vegna „mess-
únnar“,árlegrar vörusýningar,
sem þar er haldin og sama var
uppi á teningnum í og við Frank-
furt vegna alþjóðlegu bílasýning-
arinnar, sem þar er ár hvert.
Síðustu tvær vikumar í september
stendur Oktoberfest yfir í Múnc-
hen; bjórhátíðin fræga, sem dreg-
ur að um milljón gesti, svo það
má nærri geta hvort mikið er um
laust hótelrými þar. í bæjunum
við vatnið Bodensee var mér sagt,
að nánast væru öll hótel full og
einkum af þeirri ástæðu, að eldri
borgarar í Þýzkalandi ferðast ein-
hver ósköp, og þeir voru þarna
að njóta haustfegurðarinnar í
stríðum straumum.
En Þjóðveijar búa afskaplega
vel af hótelum og ekki hefur
maður lengi ekið, þegar eitthvert
„gasthaus" ber fyrir augu, eða
þá að „Zimmer“ stendur utan á
íbúðarhúsi. Það er samskonar fyr-
irbæri og „Bed & breakfast“ hjá
Bretanum og má treysta því, að
þar sé hagstætt verð og hreinlæti
í fyrirrúmi. Það ætti því ekki að
þurfa að vera áhyggjuefni á öku-
ferð um Þýzkaland að hótel fáist
ekki.
Þriðji kosturinn, sem ég hef
ekki reynt og þekki ekki nema
af afspurn, er sá að hafa með sér
tjald og gista á skipulögðum tjald-
stæðum, þar sem öryggisgæzla
er og margvísleg þjónusta, til
dæmis þvottavélar. Til er og að
fólk ferðist í sérbúnum bílum, sem
hægt er að sofa í og þá er sjálf-
sagt öryggisins vegna að nota
tjaldstæðin. Algengast er að
fjórir taki bílaleigubíl saman, t.d.
tvenn hjón, og það er vissulega
kostur að geta skipst á um að
aka. Vert er að athuga gaumgæfi-
lega verð á bílaleigubílum, sem
fer eftir stærðarflokkum. Mað'ur
er betur varinn í stærri bíl, ef
eitthvað kemur fyrir, en verðmun-
urinn virðist meiri en í góðu hófi.
Vegna þess að við vorum í þetta
sinn aðeins tvö í bílnum, tók ég
bíl úr næst minnsta flokki, Opel
Kadett, sem var nýr og reyndist
að vísu dálítið vélvana upp í móti,
en að öðru leyti miklu geðþekkari
farkostur en mig hafði grunað.
Hann kostaði 21 þúsund krónur
í 13 daga fyrir utan bensín og
það var eitthvað lægra vegna þess
að ég pantaði hánn og greiddi fyrir-
fram hér heima hjá bílaleigu, sem
heitir Continental og er eins og
fleiri til húsa við hliðina á flugstöð-
inni í Luxemburg. Þar sá ég mér
til undrunar, að aðeins örlítið rúm-
betri bíll svo sem Ford Sierra,
kostaði helmingi meira í jafn
marga daga, eða um 42 þúsund.
Ef menn vilja hinsvegar splæsa
aukalega fyrir þægjndin, er
ástæða til að benda á ýmsar gerð-
ir af „mini-bussum“ eða „rúg-
brauðum", sem eru álitlegir far-
kostir til ferðalaga af þessu tagi.
Sá kostur er a.m.k. sjálfsagður
þegar fleiri kjósa að ferðast sam-
an.
Sjá bls. 14
Leiðin sem ekin var frá Luxemburg, til
Garmisch-Partenkirchen og aflur til
baka. í næstu grein verður sagt frá
áfanganum frá Stuttgart til Garmisch,
Miinchen og Lindau við Bodensee, en
í þeirri síðustu frá áfanganum frá Bod-
ensee yfir Svartaskóg, til Freiburg og
þaðan um Saarbrucken til Luxemburg-
ar.
Königstrasse í Stuttgart, göngugötu með trjágróðri og stórverzlunum.