Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1990, Qupperneq 15
Eigin fararstjóri
á bíl um Evrópu
a_
Leitað upplýsinga hjá skrifstofu FIB
Límmiði í rúðu
tryggir betri lækn-
isþjónustu.
Mffrtrrrri
■ ' ■. . . •
'Æ
S5BB3HHSS1
■HflHfl
,/ : ...
„Að vera eigin fararstjóri" er
stöðugt vinsælli ferðamáti. En
það er eins gott að vera vel
undirbúinn, þegar komið er út
á hraðbrautir erlendis og þarf
að taka ábyrgð á farartæki,
fjölskyldu og fínna rétta leið.
Skrifstofa FIB er sérhæfð í öllu
sem viðkemur akstri erlendis.
Ferðablaðið leit við hjá Mörtu
Pálsdóttur á skrifstofu FÍB, til
að forvitnast um, hvernig best
er að undirbúa sig til að vera
„eigin fararstjóri á bíl erlend-
is“.
Að vera sjálfstæður
í eigin fríi
„íslendingar vilja gleypa heim-
inn í einu lagi,“ segir Marta. „Al-
gengt að fólk komi hingað og vilji
fá leiðbeiningar um hvernig hægt
sé að keyra um öll Evrópulöndin
á viku eða 10 dögum! Ég þarf oft
að byija á að koma landanum
niður fyrir 300 km á dag. Ekki
er vit í að aka meira, ef á að njóta
ferðalagsins. Þjóðmenning í Mið-
Evrópu stendur á gömlum grunni
og margt að sjá og skoða, það
er synd þegar of hratt er farið
yfir. Fólk á að fara oftar. Læra
að þekkja hvert hérað. Drekka í
sig andrúmsloft hvers staðar.
Tungumál á ekki að vera hindrun.
Það eru mannleg samskipti og
tjáning, sem skipta máli. Og til-
finningin fyrir að vera sjálfstæður
í eigin fríi, en ekki í hópi
skemmtanagíaðra íslendinga. Við
erum að verða heimsborgarar.
Þurfum ekki að láta mata okkur!“
Hvað gefúr félagsaðild að
FÍB?
„FÍB er lítið félag í litlu landi,
en hefur aðild að alþjóðasamtök-
um um allan heim. Félagsskírteini
gefur fyrst og fremst ÖRYGGI.
Erlendis er sjálfsögð öryggisregla
að vera í bíleigendafélagi. En
ýmis fríðindi fylgja því að vera
félagsmaður. 1. Ef þú ert á eigin
bíl sem bilar, færðu okeypis að-
stoð á næstu félagsskrifstofu og
aðstoð til þess að komast á næsta
verkstæði. Varahlutir eru útveg-
aðir o. fl. 2. Félagsskrifstofur eru
í öllum helstu borgum í V-Evrópu
og N-Ameríku. Bensínstöðvar eru
oftast með lista yfir næstu skrif-
Ferðamanni leiðbeint áður en lagt er í að vera „eigin fararsljóri í bíl“ um Evrópu.
Marta með nýju vegakortin, sem eru bylt-
ing í hönnun vegakorta.
stofur, þar sem félagsmenn geta
fengið ferðalýsingar og leiðbein-
ingar.
Við erum t.d. í nánu samstarfi
við danska bíleigendafélagið
FDM, sem gefur árlega út bók
yfír tjaldstæði sín í Evrópu. Og
það eru ekki tjaldstæði eins og
við þekkjum hér heima, heldur
þægilegar, vaktaðar þjónustumið-
stöðvar með verslunum og veit-
ingahúsum. Danir eru mjög á
varðbergi gagnvart neytendum.
Þeir styrkja sjálfir rekstur tjald-
svæða sinna og yfírfara þjónustu
árlega. Það er hægt að treysta
tjaldsvæðum undir merkjum
FDM.
/F. I.C.C.\
CARNET-CAMPING
INTERNATIONAL
n* 377'716 I)
Délivrt par
Fclag íslenzkra Bifreidaeigenda
Tjaldvegabréf.
Þeir sem ætla á tjaldsvæði
kaupa tjaldvegabréf, sem gildir
fyrir bíl og farþega. Á tjaldsvæð-
um, eins og öðrum gististöðum,
verður að afhenda vegabréf, til
þess að halda skrá yfír gesti, ef
eitthvað kemur upp. Margir eru
á móti þvi að láta þjóðvegabréf
sín af hendi, en tjaldvegabréfið
kemur í staðinn. Áð auki gefur
það tryggingu gagnvart þriðja
aðila. Til dæmis ef barn sparkar
bolta í bíl og skemmir lakk - eða
ef neisti af grilli berst í nágranna-
tjald, þá er gengið frá málum með
hjálp tjaldvegabréfsins. Félags-
maður gengur fyrir á tjaldsvæð-
um og getur hringt á undan sér
■
íiiii
Margir farþegar með Norröna leigja sér „fjarðarhyttu“ rétt ltjá Bergen.
I Frakklandi býður FÍB félags-
mönnum sínum gistingu í 4-7
manna íbúðum. Villefranche
sur Mer liggur 15 km norðan
við Nice, miðsvæðis fyrir skoð
unarferðir til Mónakó, Cannes
og Nice.
og látið taka frá stæði. Mörg tjald-
svæði gefa líka 5-20% afslátt til
félagsmanna. Eldri borgarar fá
afslátt og stundum er fjölskyldu-
afsláttur.
Læknisskírteini og ódýr
gisting í 15 löndum
Félagsmenn, sem þarfnast
sérstakrar aðgæslu í læknisþjón-
ustu, geta fengið ókeypis
skírteini, til að tryggja sitt eigið
öryggi. Þetta er geysimikið öryggi
fyrir t.d. sykursjúkt eða flogaveikt
fólk. Heimilislæknir fyllir út hvað
er að. Skírteinið er sett í hanska-
hólf og límmiði í framrúðu bílsins.
Og ef eitthvað kemur fyrir, trygg-
ir límmiði og skírteini öruggari
læknisþjónustu. - Danska félagið
FDM býður líka upp á góða, ódýra
gistingu í 15 löndum, sem vert
er að kynna sér. Fjölbreytni er
mikil - sumarhús og íbúðir uppi
í sveit eða gisting í vinsælum
ferðamannaþorpum.
Bíllinn sem fjölskylduvinur
Við hjá FÍB vinnum að því að
taka bílinn inn í fjölskylduna sem
vin, eins og hesturinn var. Bíllinn
á ekki að vera aðeins tæki frá
A-B. Og við reynum að birgja
ferðamanninn upp, með eins góð-
um gögnum í ferðalagið og kostur
er. Hann fær „ferðapakka“ með
nákvæmum leiðarlýsingum, öku-
kortum, skírteini og vegabréfi.
Hjá okkur er hægt að kaupa
bækur og ökukort. Við erum með
góðar vegahandbækur - frá bæ
til bæjar - og leiðarlýsingar - frá
þorpi til þorps. Til dæmis voru
ný ökukort að koma út hjá
Kúmmerly & Frey, sem eru nýj-
ung fyrir „eigin fararstjóra á bíl“.
Kostir þeirra eru: Ekkert kross-
brot, trufla ekki við akstur, ljósir
litir, betri til lestrar í hálfrökkri
inni í bíl eða tjaldi, litamerkt eftir
svæðum, endingarbetri í plasti og
fer lítið fyrir þeim.
Flestir sigla með Norröna, fara
af í Hanstholm, taka feijuna til-
baka frá Bergen (eða öfugt) og
aka um Evrópu. Með Eimskip
opnaðist nýr ferðamöguleiki í
fyrra og margir sigla með þeim
til Hamborgar og frá Rotterdam
tilbaka. Svo eru aðrir sem fljúga
út og leigja bil ytra. Ef fólk er
óvant akstri á hraðbrautum erl-
endis, þá er öruggara að undirbúa
sig vel. Og við erum hér til að
leiðbeina ferðamönnum, sem
hyggja á akstur erlendis.“
Tjaldvegabréf FÍB kostar 1.000
kr. Endurnýjun á eldra skírteini
500 kr. Ársgjald í FÍB er 2.800 kr.
Skrifstofa FÍB er með nám-
skeið fyrir þá sem ætla að aka
um erlendis og hafa áhuga á að
skipuleggja ferðalagið sjálfir.
Námskeiðin verða haldin á Hótel
Loftleiðum- 28. apríl og 19. maí
kl. 13.30-18. Þar er tekið fyrir:
1. Ferðaundirbúningur 2. Fjár-
hagsáætlun/ vátryggingar 3.
Skipulagning, áfangar, gisting 4.
Notkun korta/ upplýsingaöflun
5. Sérákvæði í umferð erlendis
6. Akstur á hraðbrautum.
Oddný Sv. Björgvins
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 31.MARZ 1990 15