Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1990, Side 8
Uppvöxtur Sigurjóns áEyrarbakka Sigurjón Ólafsson fæddist í Einarshöfn á Eyrar- bakka 21. október 1908. Einarshöfn varð heim- ili hans fyrstu fjórtán árin. Siguijón var yngsti sonur Ólafs Ámasonar (1855-1935) verkamanns og Guðrúnar Gísladóttur (1867-1958), en fyrir Krókurinn beygðist snemma og Sigurjón hafði meira gaman af því að teikna en önnur börn. Enginn veit hvernig farið hefði, ef drengurinn hefði ekki haft skilningsríkan og áhugasaman kennara, Aðalstein Sigmundsson, sem ýtti undir áhuga hans. Birt í tilefni sýningar í Listasafni Sigurjóns á andlitsmyndum, sem opnuð var 3. þessa mánaðar. Hluti úr ritgerð eftir SIGURJÓN BALDUR H AFSTEIN SSON áttu þau fimm börn, sem voru: Magnea Guðný (f.1895), Árni (f.1897), Gísli (f.1898), Guðbjörg Sigríður (f.1902) og loks Guðni (f.1906). Siguijón var skírður fæðingarárið 15. nóvember og voru guðfeðgin hans Jórunn Þorgilsdóttir, ekkja í Hólsbæ, Sigurður Þor- steinsson í Nýjabæ og Jóhann Gíslason Hofi. Nafngift Siguijóns á sér litla sögu og téngist hún þeim hamskiptum sem íslenskt þjóðlíf gekk í gegnum á síðustu tveimur áratugum síðustu aldar og fyrstu þremur þessarar, er eignalaus vinnuhjú fluttust úr sveitum í þorp, er voru að byggjast upp víða um land í kringum sjávarútveg. Sú saga verður þó ekki rakin hér. Foreldrar Siguijóns, þau Ólafur og Guðrún, voru í mikilii þakkarskuld við hjónin Sigríði Gísla- dóttur og Jón Gamalíelsson á Eystri-Lofts- stöðum í Flóa, en þau höðfu tekið Árna, bróður Siguijóns, í fóstur vegna fátæktar Ólafs og Guðrúnar. Vegna þessarar greið- vikni settu þau saman nafnið Siguijón í höfuðið á þeim hjónum á Eystri-Loftsstöð- um. Ævistef Siguijóns framan af svipa til annarra barna á Eyrarbakka, nema hvað Siguijón hafði mikla og meiri skemmtun af því að teikna en önnur börn. Nýtti Sigur- jón sér ijörusandinn til spennandi leikjar. Teiknaði hann í sandinn andlitsdrætti þekktra manna á Eyrarbakka, t.d. Jón í Norðurkoti hafnleiðslumann, og áttu leikfé- lagar hans að geta upp á hveijir væru. Þessi leikur þótti skemmtilegur og ekki síst fyrir þá sök að börnin þekktu persónurn- ar, svo fær var Siguijón í að ná svipmóti fólks. En gljúpur sandur nægði Siguijóni ekki til að draga upp myndir. Því hljóp hann í nálæga krambúð og fékk þar umbúða- pappír, sem hann síðan notaði heima í Ein- arshöfn, til að teikna seglskipin sem lónuðu á Ytrihöfn. Er fram liðu stundir, er Siguijón bólusett- ur og fermdur á ijórtánda árinu svona eins og gengur, og segir frá því í prestsþjónustu- bók Stokkseyrarhrepps að Siguijón hafi við ferminguna kunnað kristindóminn ágætlega mínus og hegðað sér bara þokkalega. Er þessi tímamót urðu í lífi Siguijóns hafði hann sótt Barnaskólann á Eyrarbakka í þijá vetur eða frá árinu 1918 og má með nokkrum rétti halda því fram að þau ár og kynni hans af nýjum kennara skólans, hafi orðið vendipunktur í hans lífi. í Barnaskólanum Um haustið 1919 tekur nýr skólastjóri við Barnaskólanum á Eyrarbakka, Aðal- steinn Sigmundsson (1897-1943), eftir að hafa lokið námi í Kennaraskólanum í Reykjavík þá um vorið. Af þeim sem kynni höfðu af Aðalsteini ber öllum saman um að þar hafi verið á ferð afburða skólamaður og Eyrarbakka til mikils happs að hafa feng- ið hann til starfa. Áhrif hans á Bakkanum, í starfi sem ungmennafrömuður, skátahöfð- ingi og kennari eru ómæld og mætti tína ótal margt til þar sem hann beitti kröftum sínum í þágu æsku landsins.-Aðalsteinn var skólastjóri á Eyrarbakka 1919-1929 og kenndi samhliða Jakobínu Jakobsdóttur (1877-1960) og Ingimari Jóhannessyni (1891-1982). Af heimildum má ætla að þeirra starf sé ekki síður mikilvægt til að endurvekja gullaldarbrag hjá þeim sem / þessa tíma minnast, en af þeim verður ekki ráðið að viðvera þeirra hafi haft talsvert að segja fyrir Siguijón Ólafsson. Sé farið fljótt yfir sögu má aðallega telja til þrennt í samskiptum Aðalsteins og Sigur- jóns Ólafssonar sem haft hefur töluverða þýðingu fyrir Siguijón: Nýstárlegar aðferðir við kennslu, stofnun Ungmennafélags Eyr- arbakka 1920 og sú hneigð Aðalsteins að gefa sig að þeim sem hann fann að í bjó mannsefni til stórra verka. Þessir þrír þætt- ir eru þó ekki skýrt afmarkaðir, heldur tvinnast saman í persónu Aðalsteins og sam- neyti hans við Siguijón. Ein nýlundan í skólastarfi Aðalsteins var að kenna börnunum landafræði með því að lesa fyrir þau sögur. Hafði hann þá kort sér við hlið og er á leið framvindu sögunnar benti hann á staði á kortinu þar sem text- inn vísaði til. Þessi skemmtilega leið til að læra, ásamt óvenjulegum hæfileikum Aðal- steins að ná til barnanna, hefur ýtt undir þann möguleika að hafa tíma í skólastof- unni sem voru kallaðir frásögn og áttu þá krakkarnir að taka til máls. Þessi nýstár- lega aðferð átti ekki upp á pallborðið hjá eldra fólkinu á Bakkanum, sem alist hafði upp við þá trú, að lærdómur væri að muna stagl kennarans um staðreyndir málsins. En tilgangur Aðalsteins er augljós, að ýta undir þann tjáningarmátt sem býr í hveiju barni, svo að það öðlist aukið sjálfstraust og þroska. Þessar sögustundir í Barnaskól- anum og raddir barnanna hljómuðu einnig á Ungmennafélagsfundum, en þar var Aðal- steinn aðal drifijöðurin. í fundagerðarbók yngri deildar Ungmennafélagsins má sjá að börnin hafá verið hvött til að segja sög- ur t.a.m. af kynnum sínum við dýrin, ferða- sögur og ekki síst að tjá sig um álitamál. Þessar sögustundir í skólanum og á Ung- mennafélagsfundum eru lifandi í endur- minningum þeirra sem voru samferða Sigur- jóni á þessum árum. Fór þar saman frásagn- argleði Aðalsteins, skemmtilegar sögur og dramatískar uppákomur í skólanum svo sem eins og rafmagnsleysi, en þá var kveikt á kerti og sagan kláruð í skuggaspili þess. Samfara þessum söguáhuga hefur víðsýni Aðalsteins tendrað hugmyndir barnanna um möguleika sína og þann heim sem þau lifðu í. Af heimildum mætti ætla að hugmyndir og gildi þessa tíma í hugum eignalausra og bænda, hafi á Eyrarbakka og víðar um land verið bundin við það lokaða samfélag sem fólk hrærðist í og að fátt annað hafi skipt Ljósmynd/Haraldur Blöndal Sigurjón Ólafsson við myndir sínar á vorsýningu Barnaskólans á Eyrar- bakka. Ljósmynd/Aðalsteinn Sigmundsson Sigurjón á fermingaraldri á Eyrar- bakka. Myndin er birt með leyfí sjóminjasafns- ins á Eyrarbakka. það máli en vinnan og fáar tómstundir, ef þá urðu nokkrar á lífsleiðinni. Ferill Aðal- steins og hans starf gefa þó aðra mynd af þeim heimi sem hann hafði fyrir börnunum. Það skiptir okkur máli af tveimur ástæðum í þessari sögu: í fyrsta lagi hefur Aðalsteinn sagt bömunum að veröldin væri stærri en Eyrarbakki og að þar byggi fólk sem lifði við önnur gildi. í öðru lagi hefur sú vitn- eskja gefið þeim hugmynd um önnur störf en þau sem foreldrar þeirra stunduðu. Þess- ari tvískiptingu er aðallega haldið fram af þeirri einföldu ástæðu að iðja Siguijóns, að teikna og mála, var síður en svo litin hýru auga á þessum tíma, vegna þess að hún þótti ekki í askana látin. Það hefur því þurft þekkingu og áræði til að leggja stund á Iistsköpun þegar samfélagið hafði ekki nægan skilning að bera til að hlúa að lista- mannsefnum sínum. Þessu verða þó ekki gerð frekari skil hér, heldur á það minnst til að ítreka það að ástundun í teikningu og málun var ekki álitið sjálfsagt mál er Siguijón var að vaxa úr grasi. Nálægð Eyrbekkinga við danska menn- ingu í kringum verslunarfólkið á staðnum hefur vafalaust haft mikil áhrif á hugarfars- sögu fólks á þessum tíma. Þessu sambandi í íslenskri menningarsögu, með sérstakri áherslu á listir, hefur mér vitanlega ekki verið gerð góð skil. Hér er eflaust þreifað á máli sem verðugt er að skoða. Til umhugs- unar um þessi mál skal bent á Félaga orð(1982) eftir Matthías Johannessen og sérstaklega á greinina „íslensk alþjóða- menning". Hvað varðar tómlæti gagnvart lista- mannsefnum eru verð umhugsunar eftirfar- andi orð Kristins Björnssonar í Tímariti Máls og menningar (1954, 3. hefti) og þá í tengslum við Eyrarbakka, umhverfi Sigur- jóns. „Það er efnahagur og sambönd þjóðar- innar við aðrar þjóðir, sem ráða miklu um það, hvaða listgreinar listamenn okkar leggja stund á.“ Hvaða möguleika hafði drátthagur unglingur í byijun aldarinnar til að vinna að huðarefnum sínum? Fátækt og harðbýlt landið hefur beygt þjóðina til spar- semi og vinnuþrælkunar, svo að fátt hefur orðið um tóm til að útvega viðföng til teikn- inga og málunar. Samfara þessu hefur myndlistaþroski íslendinga takmarkast af fátæklegum húsakynnum, sem buðu ekki upp á annað en útskornar rekkjur. Eitt af því sem Aðalsteinn innleiddi í skólastarfið var teiknikennsla. Þetta voru sérstakir teiknitímar þar sem notaðar voru fyrirmyndir, eins og myndir á íslenskum póstkortum, ljósmyndir sem Aðalsteinn hafði tekið og hlutir úr náttúrugripasafni P. Nielsen fyrrverandi verslunarstjóra Lef- olii verslunarinnar. Þetta safn, sem gefið var skólanum 8.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.